Kjarnar - 01.05.1954, Qupperneq 19
húsrúm, þá skuluð þið fá að
njóta þess, svo sem það nú er.
Húsnæðið er þröngt, en þið eruð
lærðir menn. Þið getið sannað
með rökfræði, að tuttugu fet sé
ein míla. Nú skulum við sjá,
hvort ekki er nógu rúmgott
hérna, annars verður ykkur víst
ekki skotaskuld úr því að rýmka
til með ræðuhöldum; það er
ykkar fag.“
„Símon,“ sagði Jón, „við heil-
agan Cutberth, þetta var vel
svarað. Ég hef heyrt sagt, að
maður eigi að taka eitt af
tvennu, og að sá hafi nóg sér
nægja lætur. En ég bið þig, kæri
gestvinur, lát oss fá mat og
drykk, og auðsýndu okkur gest-
risni, við skulum borga þér fullu
verði. „Berhentur fangar enginn
fálka.“ Sjáðu, hér er silfur til
borgunar.“
Malarinn sendi dóttur sína út
eftir öli og brauði, steikti handa
þeim gæs og batt fyrir þá hest-
inn, þannig að hann gat ekki
slitið sig lausan, bjó upp rúm
fyrir þá í sínu eigin herbergi
með lökum og ábreiðum snyrti-
lega frágengið, tíu-tólf fet frá
hjónarúminu.
Dóttir hans svaf í rúmi sínu í
þessu sama herbergi. Það varð
ekki á betra kosið, því að betra
herbergi var ekki að fá á þess-
um stað. Þeir borðuðu kvöld-
verð og voru hinir kátustu og
Kjarnar — Nr. 35
drukku sterkt öl af miklum
dugnaði. Um miðnætti tóku þeir
á sig náðir.
Malarinn gerðist vel drukk-
inn, hann var orðinn fölur af
drykkjunni; búinn að vera rauð-
ur. Hann hikstaði og talaði fram
í nefið, eins og hann hefði and-
arteppu eða kvef. Hann háttaði
við hlið konu sinnar. Hún var
létt og fjörug eins og starri.
Vögguna setti hún til fóta við
hliðina á rúminu, svo að hún
gæti ruggað henni og gefið
drengnum að sjúga. Og þegar
kúturinn var tæmdur í botn, fór
dóttirin beint í bólið; Jón og Al-
lan háttuðu líka. Það var ekki
dropi eftir, svo að það var ekki
annað að gera. Malarinn hafði
drukkið svo fast, að hann hraut
eins og hestur í svefninum og
gáði ekki að botninum á sér.
Kona hans lék hressilega undir
í bassa, hroturnar í henni heyrð-
ust langt til. Unginn hraut líka
þeim til samlætis.
Allan klerkur, sem hlustaði á
þessa tónlist, hnippti í Jón og
sagði: „Ertu sofandi? Hefurðu
nokkurn tíma heyrt annan eins
söng? Það er meiri kvöldmessan
hjá þeim. Það er hlaupin í þau
ámusótt. Hefur nokkur maður
heyrt slíkt og þvílíkt. Ætli þau
verði ekki að láta í minni pok-
ann að lokum. Mér kemur ekki
dúr á auga í nótt, en það er sama,
17