Lögfræðingur - 01.01.1897, Page 90
í)0
Klomens Jónsson.
liafi orðið árangurslaust, Gjaldkeri verður því að ábyrgj-
ast, að allar tíundir, aukaútsvör og helgidagahlutir komi
inn, og það sama virðist eiga sjer stað um sektir hrepps-
ins eptir dómi, sátt eða yfirvaldsúrskurði, nema lögtak
liafi verið reynt, og það orðið árangurslaust, og verður
lögtaksgjörðin að fylgja reikningunum því til sönnunar.
Aðrar tekjur hreppsins, svo sem endurgreiðsla í lánum,
hefur hann aptur á móti eigi ábyrgð á,
Eptír 2, gr. í sömu lögum má veita oddvita þóknun
úr sveitarsjóði 25. kr. til 75. kr. árlega, ef meirihluti gjald-
enda samþykkir á sama hátt, og áður er sagt, Ef gjaid-
lieimtan skyldi vera falin oddvita, sem helst ekki ætti að
vera, þá getur hann bæði haft oddvitalaun, og þóknun
sem gjaldkeri, þ>ó sagt sje, að þóknun þessa eigi að veita
á vorhreppaskilum, getur þó varla verið vafamól, að það
má eins veíta hana á öðrum löglega boðuðum hreppsfundi,
ef einungis meiri hluti kjósenda er þar, og greiðir atkvæði
með því, og auglýst hefur verið í fundarboðinu, að slíkt
mál myndi verða borið upp. Varaoddvita er eigi ákveðin
nein borgun; hafi hann mikið að starfa í forföllum odd-
vita, þá virðist það sjálf sagt, að hann fái tiltölulegan hluta
ftf þeirri þóknun, sem oddvita er ákveðin. Samþykki
lireppsbúa til að greiða þessa þóknun úr sveitarsjóð gildir
nð eins í 3 ár í senn, og rísi nokkur ágreiningur út úr
þessu, þá leggur sýslunefndin fullnaðarúrskurð á það. Enn-
fremur ber oddvita borgun úr sveitarsjóði fyrir ritföng,
embættisbækur, burðareyri undir embættisbrjef o, sv, frv,
eptir sanngjörnum reikningi (25, gr.).
Eptir sömu grein skal sömuleiðis endurgjalda oddvita,
nútgjöld til sendiferða í þarfir hreppsins,« þetta hafa
margir viljað skilja svo, að það ætti einungis við ferðir,