Helgarpósturinn - 04.12.1986, Qupperneq 7
eftir Helga Má Arthursson mynd: Jim Smart
*
I stríd viö valdakerfi
viðskiptalífsins
SHELL VILDI FÁ EIGNIR OLÍS Á SILFUR-
FATI SKJÁLFTI í LANDSBANKANUM ÓLI
KR. SELUR HÚSEIGNIR, BÍLA OG
LENDUR OLÍS FYRITÆKIÐ FLYTUR í
SKÚRANA - EKKERT MAGHÓNÍ Á
VEGGJUM ÆTLAR AÐ REKA FYRIR-
TÆKIÐ í ANDA HÉÐINS VALDIMARS-
SONAR VERÐSTRÍÐ VIÐ SHELL OG
ESSO FRAMUNDAN.
Miktar sviptingar hafa verid í ís-
lensku viðskipta- og fjármálaltfi að
undanförnu. Það hefur ekki farið
framhjá neinum. Kaup Óla Kr. Sig-
urðssonar á Olís er dœmi um þetta.
Kaup sama manns á Vörumarkað-
inum er annað dœmi. Fyrirtœki
hafa farið á hausinn. Banki hefur
hrunið. Gífurleg samkeppni er í
verslun og samkeppni í innflutningi
fer harðnandi. Óli Kr. Sigurðsson er
einn þeirra nýju kraftaverkamanna
í viðskiptalífinu. Maður sem fer nýj-
ar leiðir. Býður fram vöru á lœgra
verði en aðrir — og selur grimmt fyr-
ir bragðið. Hann er þekktur fyrir
heildverslunina Sund. Nú hefur
hann haslað sér völl í olíu.
EITT STYKKI OLÍUFÉLAG
Kaup Óla Kr. Sigurðssonar á Olís
tóku ekki langan tíma. Viðræður
um kaupin hófust síðdegis á föstu-
dag og þeim lauk með sölu Olís á
sunnudegi. Eigendum hlutabréfa
var gefinn mjög skammur tími til að
ákveða sig. Óg viðskiptabanki Olís,
Landsbanki íslands, var ekki látinn
fylgjast með nákvæmlega fyrr en sá
fyrir endann á viðskiptum Óla Kr.
og hluthafanna. Bankaráðsmenn
vissu ekkert um það sem var að ger-
ast og verður málið ekki rætt form-
lega í bankaráði fyrr en í dag,
fimmtudag. Fyrir hönd L.í. sá Jónas
Haralz um viðskiptin. Það kemur
nokkuð á óvart, að Óla Kr. skuli hafa
tekist að semja við fyrrverandi eig-
endur Olís framhjá L.Í., en banka-
stjórar og bankaráð hafa síðustu
misseri fylgst mjög náið með öllu
því er varðar Olís. Hafa ákvarðanir
vegna fyrirtækisins alltaf verið
teknar af bankaráði og bankastjór-
um.
L.í. hefur margoft farið fram á
breytingar hjá Olís. Fyrst og fremst
hefur þess verið krafist að hlutafé
yrði aukið, eða, eins og ákveðnir
aðilar innan bankans og annarra
olíufélaga hafa viljað, að fyrirtækið
yrði selt öðru tveggja samkeppnis-
fyrirtækja — Shell eða Esso.
Shell — Skeljungur — velti lengi
fyrir sér kaupum á Olís. Og nutu
þær hugmyndir velvilja valdamik-
illa einstaklinga í banka- og fjár-
Öli Kr. Sigurðsson: Ætlar að reka Olís t anda Héðins.
HELGARPÓSTURINN 7