Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ É g var alltaf syngjandi þegar ég var lítil. Ég vaknaði oft á undan öll- um öðrum og fór fram í stofu, þar sem ég kveikti á útvarpinu og söng og dansaði. Þegar ég komst á grunnskólaaldurinn, fannst mér gott að liggja á teppinu á stofugólf- inu, gjarnan í sólskinsbletti, loka augunum og hlusta á tónlist. Ég persónugerði gjarnan hvert hljóð- færi og bjó til ævintýri í huganum, ég man að mér fannst gaman að hlusta á sinfóníur, þær urðu mér tilefni ævintýra.“ „Ég hef stundum velt því fyrir mér af hverju tónlistin hefur verið svona snar þáttur í lífi mínu,“ segir hún hugsi. „Mamma og pabbi, Guð- rún Guðlaugsdóttir og Júníus Kristinsson, voru bæði söngelsk og sungu vel og mamma lærði að syngja um hríð. Ég man þegar ég var lítil stelpa úti að leika fyrir ut- an húsið heima, að fyrir kom að út um eldhúsgluggann heyrðist söng- ur, þá voru þau að syngja saman. Leikfélögum mínum fannst þetta mjög fyndið, en ég skammaðist mín, fannst heyrast heldur hátt í þeim. Mamma söng alltaf mikið heima, og sönglaði við öll heim- ilisverk. Það var bara ef við vorum verulega óþekk systkinin sem hún hætti að syngja, þá höfðum við hægt um okkur þar til hún fór að syngja á ný. Ég er fædd árið 1968 á tímum mikilla umbyltinga og for- eldrar mínir voru talsvert bylting- arsinnuð. Þau byrjuðu ung að búa og heimili þeirra því samkomu- staður fjölskyldu og vina. Stundum kom Kristján Guðlaugsson móð- urbróðir minn með gítarinn og þá sofnaði ég út frá baráttusöngvum, eins og Ísland úr Nató, sem hann samdi. Heima var heilmikið af hljómplötum, meðal annars var þar gamla plötusafnið úr Tívolíinu í Vatnsmýrinni, það rataði heim til okkar í gegnum heimilisvin, sem erfði það eftir frænda sinn, sem rak Tívolíið. Við systkinin lærðum öll á hljóðfæri og spiluðum stund- um og sungum saman, bæði eftir nótum og upp úr okkur. Það var oft mikið fjör.“ „Nönnu, móðurömmu mína, dreymdi um að verða óperusöng- kona. Hún söng með Þjóðleik- húskórnum og hafði alla burði til þess að ná langt. Hún var mjög falleg kona, með mikla útgeislun og, ég hef það eftir þeim sem í henni heyrðu, með óvenjufallega og mikla rödd. Þegar henni bauðst að fara til söngnáms til Ítalíu var hún bundin fjölskylduböndum í báða skó. Örlögin höguðu því þannig að hún gat aldrei látið draum sinn rætast. Það var alltaf í henni harmur út af þessu. Það var henni sérstakt gleðiefni að ég legði fyrir mig söng, og einnig Móa systir mín sem enn var starfandi söngkona þegar amma dó árið 2000.“ Sterkar, hættulegar, dimm- ar og sjálfstæðar konur – Hvenær tókstu stefnuna á að verða söngkona? „Í fyrsta söngtímanum mínum. Ég ætlaði að verða leikkona, en strax í fyrsta söngtímanum mínum til undirbúnings leiklistarnáminu fann ég að þetta var það sem ég vildi gera, Það helltist yfir mig frelsis- og hamingjutilfinning þegar ég söng og eftir það kom ekkert annað til greina. Þá var ég 19 ára gömul. Ég var fyrst í einkatímum hjá systur ömmu Nönnu, Guð- mundu Elíasdóttur, og fór síðan í Söngskólann, þar sem Elín Ósk var minn aðalkennari. Eftir próf úr Söngskólanum var ég í London í tvö ár í einkatímum hjá Graziellu Schiutti, heimsþekktri ítalskri söngkonu. Ég sótti líka tíma á Ítal- íu. Eftir heimkomuna naut ég leið- sagnar Alinu Dubik. Mér hentar að mörgu leyti einkakennslan betur. Skólaumhverfið á ekki eins vel við mig.“ – Af hverju? Galvösk Ásgerður Júníusdóttir sópransöngkona þjáist ekki af hugmyndaskorti en hún segir hugmyndirnar stundum líða fyrir peningaskort. Ég heyri hana blístra fjörlega á stigapallinum. Þótt ég hlusti grannt, kannast ég ekki við lagið. Það er eflaust eitthvað sem Ásgerður Júníusdóttir ætlar að frumflytja einn góðan veðurdag. Morgunblaðið/Kristinn Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is MÉR FELLUR VEL AÐ FARA MÍNAR EIGIN LEIÐIR ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR Sumartilboð Vildarþjónustunnar Osló, Stokkhólmur og Gautaborg með Iceland Express aðeins 19.900,- með sköttum Tilboðið er bókanlegt frá 15. - 30. júní og er ferðatímabilið 15. - 15. júlí www.spar.is 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.