Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 32
íslensk náttúra
32 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmyndir: Ómar Óskarsson
Texti: Freysteinn Jóhannsson
Hverjum þykir sinn fugl fagur segir orðatiltækið og getur fuglinnþá verið margt fleira en fugl, eins og sást í Morgunblaðinu, þegarformenn háskólafélaganna sögðu álit sitt á úttekt ríkisend-urskoðanda á háskólunum í landinu. Fyrirsögnin var; Hverjum
þykir sinn fugl fagur.
Í Merg málsins nefnir Jón G. Friðjónsson fjögur orðatiltæki tengd fuglum;
eitthvað er hvorki fugl né fiskur, þegar það er lítils virði, og að fara sem fugl-
inn fljúgandi/sem fugl fljúgi og er eftir orðanna hljóðan haft um þann eða það
sem fer mjög hratt yfir. Lítill fugl hvíslaði því að mér segja menn þegar þeir
vilja ekki tilgreina hvaðan þeir hafa tiltekna vitneskju og eru eins og væng-
brotinn fugl/lóa/álft, þegar þeir eru niðurdregnir eða ná ekki að njóta sín.
En fuglinn er fleira en fóður í orðatiltæki. Hann er fjölbreyttur yndisauki,
sem gleður augu og eyru. Hann er vorboði og vetrarsýn. Hann deilir með
okkur sumardal og dimmum dögum. Og flugið er frelsi og framtak. Sveltur
sitjandi, en fljúgandi fær.
Flestir láta sér lynda að sjá þá fugla, sem þeir ramba á. En fuglaskoðun er
vinsælt áhugamál hjá fólki, sem leitar fuglana uppi og temur sér að fylgjast
með öllum hliðum fuglalífsins. Nokkrir hafa gert sér far um að ljósmynda
fugla og er Ómar Óskarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, í þeim hópi. Hann
fór nýlega hringinn og festi þá á filmu þá fugla, sem á vegi hans urðu.
Fuglarapsódía
Flórgoði Eini goðinn sem verpir á Íslandi. Hann er fimur sundfugl, en
lengi á loft og flýgur sjaldan. Þessi flórgoði spókaði sig við Mývatn.
Hrafnsönd Hún er meðalstór kafönd, hvergi algeng nema á Mývatni og nokkrum öðrum þingeyskum vötnum. Hún
er fim á sundi og góður kafari en léleg til gangs. Þessa hrafnsönd sá ljósmyndarinn á flugi yfir Grænalæk.
Skúmur Einkennisfugl sandanna sunnan- og suðaustanlands, kröftugur og
fimur og árásargjarn í sandríki sínu. Úthafsfugl utan varptíma.
Spói Stór vaðfugl, háfættur og rennilegur. Vell spóans er eitt af íslenzku sumarhljóðunum og svo flautar hann
margvíslega að auki. Hann er fremur ófélagslyndur utan fartímans. Þessi spói er á útkíkki í Mývatnssveit.
Straumönd Straumur og brim eru hennar kjörlendi. Á flugi fylgir hún ám og þræðir hverja bugðu. Þessi flýgur
með Laxá í Mývatnssveit. (Í flestum myndatextum er stuðzt við Íslenskan fuglavísi Jóhanns Óla Hilmarssonar.)