Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 55 ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, STEINGRÍMS HELGA ATLASONAR fyrrv. yfirlögregluþjóns í Hafnarfirði, Hjallabraut 43, Hafnarfirði. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Einar Steingrímsson og fjölskylda, Atli Steingrímsson og fjölskylda. Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur hluttekningu vegna andláts, GARÐARS SIGURJÓNSSONAR fyrrverandi rafveitustjóra, Dverghamri 11, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunarinnar í Vestmannaeyjum fyrir einstaka umönnun og hlýju. Þórir Garðarsson, Þórunn Einarsdóttir, Kristín Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Einlægar þakkir til ykkar allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra, ÞORLEIFS GUÐFINNS GUÐNASONAR fyrrum bónda á Norðureyri við Súgandafjörð. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar og bráðadeildar Fjórðungssjúkrahúss Ísafjarðar. Fyrir hönd aðstandenda, Marianne Jensen, Ævar Einarsson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGUNNAR EIRÍKSDÓTTUR, Skúlagötu 20, Reykjavík. Færum hjúkrunarfólki á Landspítalanum í Foss- vogi, deild A7 og heimaþjónustu, okkar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun og hlýju. Gunnar Randrup Valdimarsson, Steinunn Þorsteinsdóttir, Hreinn Gunnarsson, Agnes Jónsdóttir, Jón Ólafsson, Eyrún Jónsdóttir, Stefán Stefánsson, Guðmundur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og einstakan hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og bróður, KOLBEINS SKAGFJÖRÐ PÁLSSONAR, Aðalgötu 1, Keflavík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Gjörgæslu- deildar Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Kolbrún Sigurðardóttir, Margrét Kolbeinsdóttir, Sigrún María Kolbeinsdóttir, Jósteinn Guðmundsson, Sigurður Kolbeinsson, Dýrleif Rúnarsdóttir, Anna Ósk Kolbeinsdóttir, Helgi S. Skúlason og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HAUKUR EINARSSON vélfræðingur, Jöklafold 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir fá allir sem komu að umönnun hans. Guðrún Kristjánsdóttir, Jóna Helga Hauksdóttir, Inga Guðný Hauksdóttir, Bernharð Antoniussen, Einar Birgir Hauksson, Kristín Óskarsdóttir, Edda Kristín Hauksdóttir, Anna Karen Hauksdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ANTONS SKÚLASONAR fv. póst- og símamálastjóra, Ægisíðu 60, sem lést mánudaginn 4. júní. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 12. júní kl. 15:00. Inga Gröndal, Skúli Jónsson, Sigríður Björg Einarsdóttir, Helga Jónsdóttir, Stefán Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum af alhug þeim fjölda sem sýndu okkur samúð með nærveru sinni og hlýjum kveðjum við andlát og útför minnar elskulegu eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, HILDIGUNNAR SIGURÐARDÓTTUR, Hamraborg 14. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heima- hlynningar og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, einnig deild 11B við Hringbraut. Viðmót ykkar og stuðningur var okkur ómetanlegur. Jónas Jónsson, Hulda Jónasdóttir, Jónas H. Þorgeirsson, Hildigunnur Jónasdóttir, Hrafnhildur Jónasdóttir. ✝ HÁKON FRANKLÍN JÓHANNSSON, f. 23. september 1915, d. 12. júní 2007. Kærustu þakkir fyrir kveðjur, kransa og blóm. Þakkir til starfsfólks á Landakoti og deild A6, Landspítalanum Fossvogi, og annara fyrir góða umönnun, einnig til Oddfellow bræðra sem fylgdu honum með virðingu og reisn síðasta spölinn. Þökkum einlægan hlýhug. Börn og fjölskyldur. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SESSELJU ZOPHONÍASDÓTTUR, Lellu, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir einstaka alúð, hlýju og frábæra umönnun. Hafsteinn Ólafsson, Þóra Bragadóttir, Jón Ólafsson, Þórhildur Sigurjónsdóttir, Örn Ólafsson, Margrét Elín Egilsdóttir, Theodór Ólafsson, Hulda Snorradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. veika, svo sárt að hugsa um að maður gæti ekkert gert fyrir þig nema vera bjartsýnn og góður. Elsku besta amma, ég mun alltaf sakna þín og minningarnar mun ég eiga alla ævi. Núna ertu á góðum stað hjá guði í himnaríki og þar líður þér vel og passar okkur á jörðinni. Þú hittir pabba þinn og bræður og munt fá eilíft gott líf. Þú munt alltaf vera besta amma mín. Þín Berglind Anna. Elsku amma mín. Núna ertu farin frá okkur, en þú ert komin á betri stað, þar sem þú þarft ekki að þjást af þessum hræðilega sjúkdómi sem er búinn að taka þig frá okkur. Þegar ég fer að hugsa aftur í tím- ann, þegar ég var að koma til þín og afa í Keflavík, þá eru þetta með betri minningum sem ég á frá því að ég var lítill. Sérstaklega þegar ég var heilu helgarnar hjá ykkur afa og bara að vesenast með ykkur, fara með afa í vinnuna og hjálpa honum og vera svo bara með ykkur og hjálpa þér í eldhúsinu ef þú varst að baka kleinur. Verst að þú náðir ekki að kenna mér nokkuð sem bara þú gast gert, t.d. að gera brauðtertu, kleinur og sykraðar kartöflur „a la amma“. Ég þarf víst að æfa mig í að gera það til að ná því eins og þú. Ég vona að þú sért búin að hitta bræður þína og ömmu Huldu. Þú ert komin á betri stað þar sem þér líður vonandi betur, en við munum öll sakna þín. Þinn Ísak. Við Íslendingar eigum margar hetjur. Anna systir mín var ein af þeim. Þegar hún greindist með krabbamein fyrir tæpum fimm árum sýndi hún fyrir alvöru hvað í hana var spunnið og hefur barátta hennar einkennst af æðruleysi og yfirvegun, ekki síst vegna fráfalls beggja bræðra okkar úr sama sjúkdómi. Hún var ótrúleg. Þegar ljóst var í hvað stefndi gerði hún ráðstafanir fyrir Svenna sinn sem var líka orðinn lasburða og fékk pláss á Hjúkrunar- heimilinu Eir. Þegar hann var kom- inn í öruggt skjól, þá var stutt eftir hjá henni. Hún var stóra systir mín sem var alltaf til staðar ef hún gat eitthvað gert fyrir mig og mína fjölskyldu og ekki var hann Svenni til að skemma sambandið. Þær eru orðnar margar ferðirnar í gegnum árin sem við höf- um farið heim á Ólafsfjörð með okk- ar mönnum. Sú síðasta var farin um miðjan október 2006. Var sú ferð far- in meira af vilja en mætti til að sjá mömmu okkar sem dvelst á Dval- arheimilinu Hornbrekku. Ég bið góðan guð að vaka yfir Svenna þínum, börnum ykkar og fjölskyldum þeirra og líka mömmu okkar sem sér nú á eftir sínu þriðja barni. Gott er ein með guði að vaka, gráta hljótt og minnast þín, þegar annar ylur dvín, – seiða liðið líf til baka, og láta huggast, systir mín! Við skulum leiðast eilífð alla, – aldrei sigur lífsins dvín. Ég sé þig, elsku systir mín. Gott er þreyttu höfði að halla að hjarta guðs – og minnast þín. (Jóhannes úr Kötlum) Elsku Anna mín, takk fyrir allt. Svanlaug.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.