Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓEL KR. JÓELSSON
garðyrkjubóndi,
Reykjahlíð,
Mosfellsdal,
sem lést, laugardaginn 16. júní, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 3. júlí kl. 15.00.
Salome Þorkelsdóttir,
Anna Jóelsdóttir, G. Thomas Fox,
Jóel Kr. Jóelsson, Kristín Orradóttir,
Þorkell Jóelsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
GUÐBJÖRG JÓHANNA LÁRENTSÍNUSDÓTTIR,
sem lést sunnudaginn 17. júní, verður jarðsungin
frá Stykkishólmskirkju þriðjudaginn 26. júní
kl. 13:00.
Sævar Geir Gunnleifsson, Helga Birkisdóttir,
Lárentsínus Gunnleifsson,
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, Hildur Einarsdóttir,
Birkir Már, Aron Elí, Signý María, Ester Ósk
og systkini hinnar látnu.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og
mágur,
HILMAR J. HAUKSSON,
Kóngsbakka 10
og Aflagranda 20,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut, fimmtudaginn 14. júní.
Útför Hilmars verður gerð frá Hallgrímskirkju,
mánudaginn 25. júní kl. 13.00.
Monika Blöndal,
Sara Hilmarsdóttir,
Haukur Steinn Hilmarsson,
Svava J. Brand,
Þórunn Helga Hauksdóttir, Guðmundur Sveinsson,
Björn Torfi Hauksson, Laufey Birkisdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra,
SIGFÚSAR STEFÁNSSONAR,
Dalsgerði 7e,
Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og
hjúkrunarfólki lyflækningardeildar 1 á
Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar fyrir góða umönnun
og hlýhug.
Áslaug Þorleifsdóttir,
Gunnhildur Hilmarsdóttir, Guðbjörn Jónsson,
Gylfi Hilmarsson, María Ýr Donaire
og aðrir aðstandendur.
✝
HRAFNKELL THORLACIUS
arkitekt,
lést á heimili sínu að morgni sunnudagsins 17. júní.
Útförin fór fram í kyrrþey en minningarathöfn
verður haldin í Dómkirkjunni, þriðjudaginn 26. júní
klukkan 15.00.
Vinsamlega látið Heimahlynningu njóta minningar-
gjafa (Krabbameinsfélagið, sími 540 1990).
Kristín Bjarnadóttir,
Áslaug Thorlacius,
Halla Thorlacius, Sveinbjörn Þórkelsson
Ragnhildur Thorlacius, Björn Ægir Hjörleifsson
Steinunn Thorlacius, Guðjón Ingi Eggertsson,
Gunnlaug Thorlacius, Sigurjón Halldórsson,
Eggert Thorlacius, Stefanía Guðmundsdóttir,
Hrafnkell, Anna, Kristín Lilja, Þórunn Edda,
Vilhjálmur Atli og Halldór Hrafnkell.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
GUÐNÝJAR JÓHANNSDÓTTUR
hússtjórnarkennara,
Hraunbrún 21,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks kvennlækningadeildar
Landspítala fyrir góða umönnun.
Berent Sveinbjörnsson,
Sveinbjörn Berentsson, Auður Björgvinsdóttir,
Jóhanna Berentsdóttir, Dagur Jónsson,
Hólmfríður Berentsdóttir,
Jóhann Berentsson
og barnabörn.
✝ Anna Magða-lena Vilhjálms-
dóttir fæddist á
Ólafsfirði 16. októ-
ber 1931. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 27. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Sigríður Gísladótt-
ir, f. 5.11. 1908, og
Vilhjálmur Jóhann-
esson, f. 5.12. 1902,
d. 1978. Systkini
Önnu eru: Gísli
Kristinn, f. 1933, d.
1898, d. 1979, og Júlíana Jóns-
dóttir, f. 27.7. 1899, d. 1931. Systir
Sveins er Jóhanna, f. 1928, maki
Valdimar Gunnarsson.
Anna og Sveinn eignuðust tvö
börn, þau eru: 1) Júlíana, f. 13.5.
1955, börn hennar eru Sveinn
Daði og Berglind Anna Ein-
arsbörn. Sambýlismaður hennar
er Jón Már Jóhannesson. 2) Vil-
hjálmur, f. 16.8. 1957, maki Hulda
Fríða Berndsen, sonur þeirra er
Ísak. Stjúpbörn: Ingvi Reynir,
Mikael og Lilja.
Útför Önnu var gerð frá Graf-
arvogskirkju 6. júní.
1999, maki Soffía
Árnadóttir; Viðar
Sævaldur, f. 1937, d.
2005, maki Lóa
Helgadóttir; og
Svanlaug, f. 1944,
maki Þorsteinn Jó-
hannesson.
Hinn 17. júní 1955
kvæntist Anna eft-
irlifandi eiginmanni
sínum, Sveini Sæ-
mundssyni, f. 8.11
1929. Foreldrar hans
voru Sæmundur G.
Sveinsson, f. 29.7.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast Önnu tengdamóður minnar.
Það var árið 1981 sem ég kynntist
Villa syni hennar og var hún fyrst
ekki mjög hrifin af þessari konu sem
hann var búinn að kynnast. Kannski
ekki skrýtið, því ég var einstæð
þriggja barna móðir og prinsinn
hennar kominn með stóran pakka.
En hún var fljót að jafna sig á því
þegar við fórum að ræða málin og
upp frá því tengdumst við sterkum
böndum og tryggri vináttu, enda
ekki annað hægt, tengdó eins og ég
kallaði hana ávallt var hjartahlý
kona. Hún bar ekki tilfinningar sín-
ar á torg, hún reyndist mér góð og
yndisleg í alla staði, þó við værum
ekki alltaf sammála.
Hún og eftirlifandi eiginmaður
hennar, Svenni, bjuggu í Keflavík en
fluttu til Reykjavíkur árið 2000 til að
vera nær börnum sínum og barna-
börnum. Hún var svo glöð að vera
flutt í Grafarvoginn. Hún breyttist
mjög mikið við þessar breytingar,
hún var svo glöð og hamingjusöm.
En síðustu mánuði var hún mjög
áhyggjufull út af veikindum sínum.
Áhyggjurnar voru aðallega af því
hvað yrði um hann Svenna hennar.
En hún barðist fyrir því að hann
kæmist í öruggt skjól því hann
þurfti mikla umönnum vegna Alz-
heimer-sjúkdómsins. Það var eins
og hún leyfði sér ekki að hugsa um
sín veikindi fyrr en hún væri búin að
ganga frá sínum málum með hann
Svenna sinn. Nú er hann í öruggum
höndum á Eir.
Síðustu vikurnar lá Anna á
krabbameinsdeildinni við Hring-
braut, á 11-E, og barðist hún hetju-
lega og kveinkaði sér aldrei. Hún
var svo ótrúlega viljasterk. Hún
naut mikillar umhyggju hjá starfs-
fólkinu á 11-E og sinni elskulegu
systur Svanlaugu og börnum sínum
og einnig reyndi ég að leggja mitt af
mörkum.
Við fjölskyldan gátum tekið hana
og Svenna heim í Vallengið einn
laugardag í maí. Það var yndislegur
dagur fyrir hana og okkur. Hún naut
þess að koma heim og vera með okk-
ur og Svenna sínum.
Elsku Anna mín (tengdó), nú ert
þú búin að fá hvíld og frið. Ég mun
sakna þín mikið, en minningin lifir í
hjarta mínu.
Guð geymi þig. Þín tengdadóttir,
Hulda Fríða.
Elsku amma mín.
Síðustu dagar hafa verið mjög erf-
iðir. Ég hef saknað þín mikið og
hugsað stanslaust um þig. Ég á svo
margar minningar um okkur sem ég
mun aldrei gleyma. Ég man svo vel
eftir síðasta deginum sem ég sá þig
lifandi. Ég var að fara til pabba yfir
helgina og ætlaði að kveðja þig
fyrst. Ég tók í höndina á þér og
horfði á þig sofandi og var næstum
farin að gráta, svo kyssti ég þig og
sagði bless.
Ég fann það á mér um helgina að
eitthvað myndi gerast og sunnu-
dagskvöldið 27. maí hringdi mamma
og sagði að nú værir þú dáin. Ég
grét allt kvöldið og næsta morgun
þegar ég vaknaði hugsaði ég að það
gæti ekki verið að þú værir dáin. Ég
hugsaði mikið um þig þennan morg-
un. Amma mín, ég sakna þín svo
mikið.
Ég man þegar ég var yngri og
kom til þín, þá vildir þú allt fyrir mig
gera og ég var svo glöð. Það var ekki
bara þegar ég var lítil, heldur hefur
það alltaf verið þannig. Þú hefur
verið svo ofsalega góð amma. Þú
hefur alltaf verið besti kokkur í
heimi í mínum huga. Þú gerðir bestu
kökurnar, matinn og allt var bara
svo frábært sem þú gerðir. En allt í
einu varstu orðin svo veik. Æ amma,
það var svo sárt að sjá þig svona
Anna M. Vilhjálmsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar