Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
• Glæsileg hönnun
• Álklæðning og harðviður að hluta
• Álklæddir timburgluggar
• Húsin þarfnast lágmarksviðhalds
• Fullbúin eða skemmra á veg komin að innan
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Ítarlegar
upplýsingar
um eignirnar
á vefsíðu okkar
www.iav.is
Raðhús
3ja–4ra herbergja 96–140 fm
Egilsstaðir
Reyðarfjörður
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
99,1 fm glæsileg 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með mikilli lofthæð. Íbúðin skiptist í
hol, stofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Stæði í bílageymslu. Glæsi-
legt hús. Íbúð 305. 27,9 millj.
Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 14.00.
Básbryggja 2 – opið hús
108,9 fm 3-4ra herbergja íbúð við Klappar-
stíg í Reykjavík. Íbúðin skiptist í hol, hjóna-
herbergi, barnaherbergi, baðherbergi,
stofu, borðstofu, eldhús, sérgeymslu í
sameign ásamt sérstæði í sameiginlegri
bílageymslu. Íbúð 301. 34,9 millj.
Opið hús í dag milli kl. 14.30 og 15.30.
Klapparstígur 1 – opið hús
116,7 fm 3ja herbergja íbúð í húsi byggðu 2004 við Norðurbrú í Garðabæ. Eignin
skiptist í anddyri, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, barnaherbergi, svefnherbergi,
þvottahús, sérstæði í sameiginlegri bílageymslu ásamt sérgeymslu í sameign. Íbúð
101. 36,9 millj.
Opið hús í dag milli kl. 16.30 og 17.00.
Norðurbrú 2 – opið hús
70,9 fm 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu húsi við Álagranda í Reykjavík. Íbúðin
skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og geymslu í kjallara. Svalir til
suðvesturs. Húsið var nýlega steypuviðgert og málað að utan. 18,5 millj.
Álagrandi
Til sölu 5.139 fm eignarlóð í landi Dagverðarness í Skorradal. Lóðin er kjarrivaxin með
stórkostlegu útsýni yfir vatnið í þessari einstöku náttúruperlu. Um er að ræða eina af
örfáum lóðum sem eru óbyggðar á þessu svæði. Leyfilegt að byggja allt að 150 fm
hús. Rafmagn og kalt vatn er komið að lóðarmörkum. 6,5 millj.
Dagverðarnes – lóð
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
91,3 fm 3ja herb. íbúð sem breytt hefur verið í
4ra. Alrými með stofu og borðstofu. Hjónaher-
bergi með fataskápum, tvö barnaherbergi, svalir
með útsýni. Eldhús með borðkrók. Baðherb. með
aðstöðu fyrir þvottav. Góð sameign. Hús nýlega
tekið í gegn að utan. Verð 18,7 millj.
Ásdís sölufulltrúi Akkurat tekur vel á móti þér.
S: 898 3474.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ 14:00-15:00
ÆSUFELL 2 - ÍBÚÐ 3C - 111 RVK.
Falleg fjögurra herbergja íbúð á
þriðju hæð í lyftuhúsi, suðvest-
ursvalir og bílastæði í bíla-
stæðageymslu ásamt góðri
geymslu í kjallara. Íbúðin skipt-
ist í 3 góð svefnherbergi, stofu,
borðstofu, eldhús, þvottahús og
bað. Öll herbergi eru parketlögð
og skápar sérsmíðaðir úr kirsu-
berjavið. Stofa er björt og park-
etlögð. Eldhús er flísalagt ásamt
borðstofu, innréttingar eru sér-
smíðaðar hjá HTH úr kirsuberjavið. Inn af eldhúsi er þvottahús. Baðherbergi,
rúmgott og er flísalagt í hólf og gólf. Íbúðin er 107,5 m2. Ásett verð 35m.
Allar frekari upplýsingar gefur Markús hjá Saga fasteignum
í síma 8971200 . markus@sagafasteignir.is
Opið hús í dag milli kl. 16.00 og 17.00
Norðurbrú 4 í Sjálandshverfi, Garðabæ.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
menn vera fagurt en Holtavörðu-
heiði hefur ekki vakið skáldlegan
hugmóð né að ráði héruðin þar
norður af utan nafntogaðir dalir
tveir eða þrír,
fyrr en kemur í
Skagafjörð, þar
hefst ljóðrænan á
ný. Þessu kann
að valda hversu
hratt menn fara
um sum svæðin,
betra er að
ferðast hægar og
gefa umhverfinu
gaum eigi það að
launa ferðalangnum einhverju.
Sögu hefi ég heyrt: Einar Jónsson
myndhöggvari frá Galtafelli þekkti
framan af ævi lítið til landsins nema
suðurhéraða. Vinir hans nokkrir
drifu hann í ferð um Ísland allt seg-
ir sagan, og spurðu hann að lokum:
Hvar finnst þér nú fallegast á land-
inu okkar? Einar hugsaði sig um en
sagði svo „Á Blönduósi.“ Hið næma
og vakandi auga listamannsins hafði
notið kyrrðarstundar við Blöndu og
myndir greypst í huga hans.
Blönduósbærinn hvílir á bökkum
jökulsárinnar á landi sem er lægra
en héraðið umhverfis, háir bakkar
afmarka þessa lægð til austurs og
vesturs – fyrir bragðið sjá aðkomu-
menn ekki byggðina fyrr en kemur
fram á brekkubrún. „Blanda-
drottning jökulköld“ er mikilúðug
þar sem hún beljast í kletta-
þrengslum eftir að hafa klofnað og
umflotið Hrútey. Eyjan er verð
skoðunar vegna landslags, fjölda
trjátegunda og fuglalífs, eftir að
flúðum sleppir, neðan við brúna
sem heldur á þjóðvegi númer eitt,
breiðir fljótið úr sér og er ósinn víð-
ur og lygn en þrengist þar sem
Blanda fer til fundar við Húnafjörð.
Krökkt er af fugli á þeirri slóð.
Sjávarfalla gætir í ósnum og þegar
mikið er útfiri koma upp leirur og
hefst þar veisla margra tegunda.
Áhugamenn um fuglaskoðun geta
átt hér góðar stundir. Í bænum
verður mörgum starsýnt á til-
komumiklar og vel mótaðar bygg-
ingar Heilbrigðisstofnunar aust-
ursýslunnar en þar er að finna bæði
heilsugæslu héraðsins og legu-
deildir ásamt skilvirkum rannsókn-
ardeildum. Allt er þar með mynd-
arbrag jafnt innanhúss sem utan.
Spölkorn frá bænum sjá menn land
bæði vítt og frítt. Horft til norðurs
blasir við Spákonufell krýnt kletta-
kórónu og vakir yfir byggðinni á
Skagaströnd, til austurs teygir sig
Langadalsfjall sem með öfgalausu
svipmóti sínu og grónum hlíðum
veitir huganum ró, í suðri eru þrjú
fjöll sem í einni mynd og er með
þeim ættarmót – ekki há fjöll en
skilja að sögufrægar byggðir í Víði-
dal, Vatnsdal og Sauðadal, á vest-
urvegg er fjallahryggurinn á Vatns-
nesi með lágum ásum og rishærri
kollum eftir endilöngu nesinu. Til n-
vesturs horft yfir dimmbláan Hú-
naflóann raða sér Strandafjöllin
með skörpum brúnum og kletta-
köstum í dráttskýrri mynd sem
verður mönnum ógleymanleg á
björtum degi. Hér er margt að
skoða og arðsamt fólki með marg-
lynt fegurðarskyn. Séra Bragi Frið-
riksson, sem á ættir að rekja í
Húnavatnssýslum, sagði mér eft-
irfarandi og var sjálfur vitni að.
Eggert Stefánsson söngvari (bróðir
Sigvalda Kaldalóns ) sat með vinum
sínum og sagði frá: „Elskulegu vin-
ir, ég hefi gist London og New
York, París og ROMA en hvergi séð
sumarkvöld jafn dásamlega fagurt
og við Blöndu.“
Nú ríkir þessi himneska vorbirta
sem kallar fram í fjöllunum bláma
sem er annars heims og enginn
kann orð yfir. Með okkur leynist
óspillt hrifnæmi – við tökum undir
með myndhöggvaranum og söngv-
aranum – það er fallegt við Blöndu.
EMIL ALS,
Blönduósi.
SÍÐAN Íslendingar komust al-
mennt til vitundar um fegurð í
landslagi, eftir að hafa öldum saman
ferðast álútir um kaldan kjöl í stríði
við erfitt náttúrufar, hafa nokkrir
staðir á landinu öðlast viðurkenn-
ingu sem nálgast vígslu, vegna töfra
í formi og litum. Í Borgarfirði segja
Er fallegt á Blönduósi?
Frá Emil Als
Emil Als