Morgunblaðið - 15.03.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.03.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1983 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1983 25 Sigur IR-inga var aldrei í hættu ÍR-ingar bættu tveimur dýrm- ætum stigum í safn sitt er þeir sigruðu Njarövíkinga í úrvalsd- eildinni í körfubolta í íþróttahúsi Hagaskólans ó sunnudagskvöld- ið. Sigur sem aldrei var í hættu og heföi jafnvel getað orðið enn meiri, en lokatölurnar urðu 95—82. Staöan í hálfleik var 48—39. Leikurinn var langt frá því aö vera skemmtilegur eöa spenn- andi, og var það einkum áhuga- leysi Njarðvíkurmanna sem olli því, en flestir leikmenn liösins af- greíddu leikinn meö hangandi hendi. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins sem Njarövíkingar Tíu Skotar Markvöröurinn Bill McOwen var nokkuö sér á báti í liöi Liver- pool í fyrsta deildarleik félagsins — árið 1983. Hann var eini Eng- lendingurinn í liöinu, hinir tíu voru allir Skotar. Yfirburöa- sigur Týs í Eyjum TÝR vann yfirburöasigur, 36:12, yfir Skallagrími frá Borgarnesi í 3. deild handboltans í Eyjum um helgina. Staðan í hálfleik var 12:5. IR — UMFN 95:82 fóru að taka á, og upphófst þá mikill hamagangur, en þaö var full seint því ÍR-ingar höföu náö það góðri forystu aö henni varö ógnaö þrátt fyrir villuvandræöi þeirra. Njarðvíkingar höföu forystuna fyrst í leiknum, en það var þó ekki lengi því á sjöundu mínútu komust ÍR-ingar yfir, 15—14, og 5 mín. siöar voru þeir komnir með 9 stiga forystu, 25—16. Þessi munur hélst síöan út fyrri hálfleikinn og staðan í hálfleik var eins og áöur segir, 48—39, ÍR í vil. Það sama var upp á teningnum í seinni hálfleiknum. Njarövíkingar voru heillum horfnir, fóru varla í fráköstum og ÍR-ingar héldu sínum hlut og um miöjan seinni hálfleikinn var staöan 72—57, en mestur var munurinn 81—53 þegar 15 mín. voru liönar af hálfleiknum og síöan stuttu síö- ar, 89—71. Pétur Guðmundsson besti maöur ÍR varö aö yfirgefa leikvöllinn meö 5 villur þegar tæp- ar 3 mín. voru eftir af leiknum, og síöan Jón Jörundsson og Hreinn Þorkelsson rétt á eftir, en þaö kom ekki aö sök þar sem svo lítið var eftir af leiktímanum, og sigurinn því þeirra, 95—82. í ÍR-liöinu var Pétur manna bestur, skoraöi mikiö og hirti tals- vert af fráköstum, sem einnig var Kristinn Jörundsson ágætur ásamt Gylfa og Hreini. Njarövikingar áttu frekar slæm- an dag, Bill Kotterman meö ein- dæmum óheppinn í fyrri hálfleik, skoraði aöeins tvö stig, en bætti þaö vel upp í þeim seinni og skor- aöi alls 18 stig. Valur Ingimundar- son var ekki heldur í essinu sínu, átti frekar erfitt meö aö hemja skap sitt og fór af leikvelli með 5 villur þegar leiktíminn var aö renna út. Gunnar Þorvaröarson var skástur í liðiö Njarövíkur og skor- aöi alls 21 stig. Stig ÍR: Pétur Guömundsson 28, Hreinn Þorkelsson 19, Kristinn Jör. 18, Gylfi Þorkelsson 17, Kol- beinn Kristinsson, Hjörtur Odds- son og Jón Jör. 4 stig og Ragnar Torfason 1 stig. Stig UMFN: Gunnar Þorvaröar- son 21, Kotterman 18, Valur Ingi- mundarson 16, ísak Tómasson 8, Júlíus Valgeirsson 7, Árni Lárus- son og Ingimar Jónsson 6 stig hvor. Stjörnur ÍR: Pétur Guömundsson ★ ★★ Kristinn Jörundsson ★ ★ Gylfi Þorkelsson ★ Hreinn Þorkelsson ★ UMFN: Gunnar Þorvaröarson ★ ★ ísak Tómasson ★ Valur Ingimundarson ★ „Þetta hafðist með stórkostlegri baráttu - sagði Guðmundur Guðmundsson, nýskipaður fyrirliði Víkings áá — BJ. • Pétur Guömundsson skoraöi flest stig átt stærstan þátt í því aö liö ÍR hefur náö vetur. ÍR-inga eöa 28. Hann hefur sér mjög verulega á strik í „Eg hélt að möguleikar okkar væru búnir er Sverrir varöi frá mér hraöaupphlaupið í lokin. Staöan þá 25:26 fyrir FH og þeir fengu boltann. En við náöum að tryggja okkur sigur og viö höfö- um þetta meö stórkostlegri bar- áttu eftir aö vera komnir fimm mörkum undir,“ sagöi Guömund- ur Guömundsson, hinn nýskipaði fyrirliöi Víkinga, eftir sigurleikinn gegn FH í bikarkeppni HSÍ í gærkvöldi. Guðmundur tók viö fyrirliöastöðunni af Páii Björg- vinssyni. Æsispennandi leik lauk meö Víkingssigri — 27:26. Leikur- inn var oft á tíðum hraður og skemmtilegur og kunnu áhorf- endur vel aö meta hann. FH-ingar voru komnir meö fimm marka forystu er tólf mín. voru liðnar af síöari hálfleik, en Vík- ingarnir gáfust ekki upp og sigur- inn varð þeirra. Sigurmarkiö gerði Lykilmenn vantaði Þorbergur Aðalsteinsson og Kristján Sigmundsson léku ekki með Víkingi í gær og Þorgils Óttar Mathiesen ekki með FH. Voru þaö vissulega skörð fyrir skildi fyrir liðin. Urslitakeppnin í 2. deild: Haukarnir sterkastir UM SIÐUSTU helgi var leikin fyrsta lotan í úrslitakeppni 2. deildar í handknattleik. Áttust þar viö fjögur efstu líð deildar- innar. Keppni hófst á föstudag og voru þá leiknir tveir leikir, var svo haldiö áfram á laugardag og sunnudag, voru þá einnig leiknir tveir leikir hvorn dag. Flestir leikirnir voru æsispenn- andi og skemmtilegir og nokkrum sinnum réðust úrslit ekki fyrr en á lokasekúndunum. Hér fer á eftir stutt umsögn um hvern leik fyrir sig. Blikarnir burstuðu KA Gróttumenn voru einstakir klaufar „ .. .... .... . . í leiknum og brenndu m.a. af Breiöablik tok strax forystuna . þfemur vftuma j |okjn var aðejns leiknum gegn KA. Það var greini- legt aö þetta var ekki dagur þeirra norðanmanna. Þeir geröu margar vitleysur og brenndu af mörgum góöum færum. Staðan í leikhléi var 11—9. Kópavogsbúar voru ekki aö gefa eftir í seinni hálfleik og léku ákveðið og fast. Á 43. mínútu var staðan oröin 18—13 fyrir UBK. Brugöu þá norðanmenn á þaö ráö að taka tvo leikmenn UBK úr um- ferö. Gekk það miður vel. Síöustu 6 mínúturnar léku KA-menn varn- arleikinn „maður á mann“. Bar þaö þann árangur aö UBK-menn skor- uöu á þeim tíma sjö mörk gegn engu. Annars var þaö fyrst og fremst stórleikur Heimis Guðmundssonar, markvaröar UBK, sem skóp sigur- inn, varöi hann mjög vel í s.h. eöa 14 skot. Lokatölur uröu 28—16. Markahæstir UBK: Björn 7, 1 v., Kristján 7, Aö- alsteinn 6. KA: Sex leikmenn voru jafnir meö tvö mörk. Öruggur Haukasigur Seinni leikur föstudagskvöldsins var leikur Hauka og Gróttu. Var þar um slakan og svæfandi leik aö ræða. Grótta leiddi í fyrri hálfleik og hafði alltaf undirtökin. Sverrir Sverrisson, leikmaður Gróttu, átti sannkallaðan stórleik í f.h. og skoraði m.a. átta mörk. Haukar jöfnuöu fljótlega í seinni hálfleik og sigu síðan fram úr. spurningin sú hve stór sigur Hauka yröi, ekki hvort harin yröi. Markahæstir Grótta: Sverrir 10, 5 v., Jón 3, Sig- uröur 3. Haukar: Þórir 8, Höröur 6, Guö- mundur 5. Grótta skoradi ekki mark í tæpar 28 mín. Þaö er líklega einsdæmi aö lið skori ekki mark fyrstu 28 mínút- urnar í handboltaleik. Slíkt skeöi í leik KA og Gróttu á laugardaginn. KA-menn léku mjög sterkan varn- arleik og aö baki varnarinnar var Gauti markvöröur, en hann varði mjög vel í þessum leik, m.a. 3 víta- köst. Staðan í hálfleik var 8—2 fyrir KA. Fyrstu 20 mín. af s.h. höföu KA- menn sömu yfirburöina og í fyrri hálfleik og þegar 10 mínútur voru til leiksloka var staöan 18—9. Þá slökuöu leikmenn KA á klónni og Grótta lagaði stööuna fyrir leiks- lok. Lokatölur 21 — 15 fyrir KA. Markahæstir KA: Guömundur, Erlingur og Friö- jón 4 hver. Grótta: Gunnar Páll 5, 1 v., Jón 4, Axel 3. 14 mönnum vikið af velli í baráttuleik Hauka og UBK Leikur Hauka og UBK var einn af þessum leikjum þar sem ekki er þumlungur gefinn eftir. I þessum leikjum vilja oft veröa slagsmál. Oft jaöraöi viö það í þessum leik. Alls voru fjórtán leikmenn reknir af velli. Dómarar leiksins höföu eng- an veginn nægilega traust tök á leiknum, dómararnir voru Rögn- valdur Erlings og Gunnlaugur Hjálmarsson. Haukarnir tóku forystuna og leiddu framanaf. Um miðjan hálf- leikinn náöu UBK-menn aö jafna, en þeir misstu fljótlega af lestinni aftur og Haukar höfðu yfir í leik- hléi, 11—8. Haukar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og juku smátt og smátt viö forystuna og á 49. mín. var staðan orðin 20—14 fyrir Hauka. Þá tóku Blikarnir aö sýna klærn- ar. Mikill hasar var kominn í leikinn á síðustu mínútunum. Tókst UBK nærri því aö jafna en bara nærri því og Árni Sverrisson tryggði Haukum sigur 15 sek. fyrir leiks- lok. Lokatölur uröu 21 — 19 fyrir Hauka. Markahæstir UBK: Björn 4, Brynjar 4, 2 v., Kristján 4. Haukar: Árni 6, Þórir 5, Höröur 5. Tæpt jafntefli hjá KA Það munaöi ekki miklu aö Haukarnir heföu sigraö KA á sunnudaginn. Þaö heföi veriö mjög ósanngjarnt því KA-menn leiddu allan fyrri hálfleikinn og fram í miðjan seinni hálfleik. Tæpt var þaö þó aö KA næöi jafntefli. Jakob Jónsson jafnaöi úr vítakasti fáein- um sekúndum fyrir leikslok. Eins og fyrr greindi leiddi KA all- an fyrri hálfleikinn. Var forysta þeirra mjög örugg, 2—3 mörk. Þrátt fyrir góöan baráttuvilja tókst Haukum aldrei aö jafna. Staöan í hálfleik var 13—11 fyrir KA. KA-menn leiddu leikinn áfram í seinni hálfleik og fátt virtist geta komiö í veg fyrir sigur þeirra. En skyndilega féll liöið niöur í dal meðalmennskunnar og Haukarnir gengu á lagið og jöfnuöu á 49. mín., 20—20, og komust yfir. Mikill darraöardans var i rest- ina, en þrjú dýrmæt mörk Jakobs Jónssonar, KA-manns, björguöu liöi hans fyrir horn. Lokatölur voru 24—24. Markahæstir KA: Erlendur 6, 3 v., Kjeld 5, Flemming 4. Haukar: Höröur 8, Þórir 7, Ingimar 3. Heppnissígur Breiðabliks Breiöablik náöi aö sigra Gróttu meö 18 mörkum gegn 17 í viöur- eign liöanna á sunnudaginn. Leik- urinn var bókstaflega í járnum all- an tímann. Liöin skiptust á aö hafa forystuna sem var sjaldan meira en eitt mark. Staöan í hálfleik var 8—8. Gróttumenn léku mjög langar sóknir, allt upp í 5 mín. Þetta er eitt af því sem leikmenn UBK viröiast ekki þola því um leið og þeir kom- ast í sókn fá þeir skotæöi og því veröur árangur oft minni en efni standa til. UBK skoraði sigurmark sitt 15 sekúndum fyrir leikslok og var þar aö verki Þóröur Daðason. Akkúrat þegar leikurinn var flautaður af stóö einn leikmanna Gróttu meö boltann í dauöafæri á línunni, þannig aö tæpari gat sigur UBK ekki veriö. Markahæstir UBK: Brynjar 4, 2 v„ Aöalsteinn 3, Þóröur 3. Grótta: Jóhannes 5, Siguröur 4, 2 v„ Jón 3. — íben. Valur og IBK hnífjöfn fyrir síðasta leikinn — eftir sigur Vals á KR á sunnudag Eftir ieiki helgarinnar í körfu- boltanum er Ijóst aö viðureign Vals og ÍBK um næstu helgi í Laugardalshöll veröur algjör úr- slitaleikur um íslandsmeistaratit- ilinn. ÍBK sigraöi Fram á föstu- daginn og Valur vann svo KR á sunnudaginn, þannig aö liöin eru meö jafn mörg stig fyrir síöasta leikinn. Lokatölur { leik Vals og KR uröu 104:92, en Valur haföi eínníg yfir í leikhléi — 51:47. Sigur Vals var nokkuð öruggur og haföi liöiö forystu nær allan tím- ann. KR-ingar voru aö vísu aldrei langt undan og einu sinni náöu þeir aö jafna, 57:57, fljótlega í seinni hálfleiknum, en svo sigu Valsararnir fram úr aftur. Leikurinn var ekki sérlega skemmtilegur á aö horfa en góöir kaflar komu þó inn á milli, og var skemmtilegt aö fylgj- ast meö einvígjum þeirra Stu og Dwyer. Eins og í öörum leikjum Vals í vetur kom vel í Ijós hve sterk liös- heild liösins er. Tim Dwyer átti mjög góöan leik gegn KR og virö- ist hann aldrei eiga slakan leik. Mjög sterkur bæöi í sókn og vörn. Auk hans eru Torfi, Kristján, Jón Steingrímsson og Ríkharður allt snjallir leikmenn. Kristján og Torfi voru mjög sterkir undir körfunum, Ríkharöur hitti vel og Jón geröi góöa hluti þó oft hafi hann leikiö betur en nú. Hjá KR var breiddin ekki eins mikil frekar en vanalega, en þó hefur leikur liösins skánaö mikiö upp á síökastiö. Fleiri leikmenn eru farnir aö sýna hvaö í þeim býr, t.d. átti Birgir Guöbjörnsson sinn lang- besta leik í vetur. Garöar Jó- hannsson hefur styrkt liöiö veru- lega eftir aö hann hóf aö leika meö því á ný þó sýnilega sé hann ekki enn kominn f nægilega góöa út- haldsþjálfun. Annars var Johnson yfirburöamaöur í liðinu aö venju og hittni hans nokkuö góö. Varnar- leikur hans er hins vegar ekki til fyrirmyndar og mætti hann beita sér á þeim vettvangi. Stigin. Valur: Dwyer 30, Rik- haröur 24, Torfi 18, Kristján Ágústsson 14, Jón Steingrímsson 10, Hafsteinn Hafsteinsson 3, Tómas Holton 2, Leifur Ágústsson 2 og Björn Zoega 1. KR: Stu John- son 41, Garöar Jóhannsson 19, Birgir Guöbjörnsson 16, Jón Sig- urösson 8, Kristján Rafnsson 4, Ágúst Líndal 2 og Þorsteinn Gunn- arsson 2. — SH. Valur: Kristján Ágústsson ★ ★ Rikharður Hrafnkelsson ★★ Torfi Magnússon ★ Jón Steingrímsson ★ KR: Birgir Guöbjörnsson ★★ Garðar Jóhannsson ★★ Jón Sigurðsson ★ STAÐAN í úrvalsdeildinni eftir leiki helgarinnar: Keflavík — Fram 84—83 Valur — KR 104—92 ÍR — Njarövík 95—82 Valur 19 14 5 1708—1532 26 Keflavík 19 14 5 1586—1578 26 ÍR 19 8 11 1481—1511 16 Njarövík 19 8 11 1556—1592 16 KR 19 7 12 1596—1691 14 Fram 19 6 13 1625—1640 12 Hilmar Sigurgislason af linunni tíu sek. fyrir leikslok. FH-ingar höföu misst knöttinn klaufalega er 52 sek. voru eftir — og misstu þar með sigurinn út úr höndunum á sér — sigur sem heföi átt aö vera í öruggum höndum þeirra. Staðan var 15:11 fyrir FH í hálf- leik og eins og áður sagöi komst munurinn upp í fimm mörk — 20:15. En þá hófu Víkingar að minnka muninn og varö vel ágengt í þvi. Þeir breyttu stööunni í 18:20, FH skoraöi síöan 18:21 en þá var tveimur FH-ingum vikiö af leikvelli meö stuttu millibili. Víkingar minnkuöu muninn þá niður í eitt mark og fimmtán mín. eftir. Þar höfðu þeir því náö aö vinna upp þrjú mörk á þremur mínútum. Víkingar náöu svo aö jafna, 22:22, er tólf og hálf mín. voru eft- ir. FH náöi aftur forystu en svo var jafnt 24:24 og þá voru fimm mín. eftir. Hans skoraði þá 25:24 fyrir FH og Kristján Arason bætti ööru marki viö úr hraðaupphlaupi — 26:24. Ólafur Jónsson mlnnkaöi mun- inn niður í eitt mark, og í næstu sókn misstu FH-ingar boltann. Guðmundur fyrirliöi Guömundsson brunaöi fram, eldfljótur að vanda, en Sverrir Kristinsson geröi sér lít- ið fyrir og varöi. Atvikið sem Guö- mundur minntist á í upphafi. En Ellert í Víkingsmarkinu varöi á þýö- ingarmiklu augnabliki frá Pálma og Víkingar fengu boltann. Páll Björgvinsson jafnaði, 26:26, er ein mín. og tuttugu sek. voru eftir. Allt á suöupunkti í Höllinni. FH-ingar misstu svo boltann og Hilmar skoraöi eins og lýst var í upphafi. FH-ingum tókst ekki að skora á þeim stutta tíma sem eftir var og Víkingar fögnuöu innilega. FH-ingar að sama skapi daufir í dálkinn sem skiljanlegt er. „Þetta var ægilega sorglegt og hroöalega klaufalegt af okkur aö tapa þessu niður. Annars getur maöur ekkert sagt um þetta, maö- ur er ekki enn búinn aö jafna sig,“ sagði Kristján Arason eftir leikinn og var alveg miöur sín. Kristján átti frábæran leik, skoraöi 13 mörk, og var aö auki frábær í vörninni. Var hann yfirburöamaöur hjá FH en Víkingar tóku hann úr umferð mest allan leikinn. Pálmi Jónsson skor- aöi falleg mörk úr horninu, og Hans Guðmundsson var góöur i vörn, þó ekki naeði hann sér á strik í sókninni. Aðrir voru minna áber- andi. Hjá Víkingi voru Siguröur Gunn- arsson og Viggó Sigurösson mjög góöir í sókninni, og var Viggó í miklum ham í síöari hálfleiknum er Víkingar voru aö vinna upp for- skotið — skoraði þá átta mörk. Hilmar Sigurgislason átti einnig mjög góðan leik — og Ellert varði þokkalega í markinu. Mörkin. Víkingur: Viggó Sigurös- son 10 (2 víti), Siguröur Gunnars- son 9 (3 víti), Ólafur Jónsson 2, Steinar Birgisson 2, Hilmar Sigur- gíslason 2, Guömundur Guö- mundsson 1 og Páll Björgvinsson 1. FH: Kristján Arason 13 (7 víti), Pálmi Jónsson 4, Guðmundur Magnússon 3, Hans Guömunds- son 2, Guöjón Árnason 2, Sveinn Bragason 1 og Valgaröur Val- garðsson 1. Dómarar voru Grétar Vilmundarson og Ævar Sigurösson og komust þeir sæmilega frá erfið- um leik. Þeir stóöu sig vel í fyrri hálfleiknum, en misstu heldur tök- inn á leiknum eftir hléiö. Ekki bitn- aöi dómgæsla þeirra þó frekar á öðru liðinu. —SH. Kristján Arason átti frábæran leik meö FH í gær, þó ekki dygöi þaö liðinu til sigurs. Hér hefur hann skotið á mark Víkings án þess aö Ólafur Jónsson komi vörnum viö og stuttu síöar lenti boltinn í mark- ínu. Ljósmynd Kristján Einarsson. KR-ingar áfram í bikarnum: Unnu Ármann mjög léttilega í 16 liða úrslitum bikarkeppn- innar í handbolta léku einnig KR og Ármann í gærkvöldi. Fór leik- urinn fram í Höllinni að leik Vík- ings og FH loknum. Eins og vænta mátti fóru KR-ingar meö léttan sigur af hólmi — 31:21. Stærri heföi þó sigurinn getað oröiö hefðu þeir tekið á á fullu og allir þeirra bestu menn leikiö meö allan tímann. En þess þurfti ekki. Sigurinn var mjög öruggur. Markahæstir hjá KR voru Stefán Halldórsson meö tíu mörk og Gunnar Gíslason, sem gerði sjö. Haukur Haraldsson og Bragi Sig- urösson voru markahæstir hjá Ármanni, geröu fimm mörk hvor. — SH. Toppliðið í erfiöleikum með botnliðið KEFLVÍKINGAR tróna nú á toppnum ásamt Val í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik, eftir nauman sigur á Fram, er liöin mættust í Keflavík sl. föstudag. Frammarar leiddu leikinn fyrstu 5 mínúturnar, en munurinn var þó aldrei meiri en 4 stig, 6—10 eftir 4 mínútur, en er 6 mínútur voru af leiknum náöu Keflvíkingar foryst- unni, 14—12, og héldu henni það sem eftir var hálfleiksins. Um miöj- an hálfleikinn hófu Frammarar aö leika maöur á mann, en viö þaö opnaöist vörn þeirra illa, og voru eldfljótir Keflvíkingar snarir aö færa sér þaö í nyt og sigu óðfluga fram úr, og þegar 4 mínútur voru eftir af hálfleiknum voru þeir komnir meö 13 stiga forskot, staö- an 44—31. Frömmurum tókst þó aöeins aö laga stööuna fyrir lok hálfleiksins, en lokatölur hans voru 51—41. Frammarar hófu síöari hálfleik- inn af miklum krafti, skoruöu 2 körfur á fyrstu mínútunni, án þess aö Keflvíkingum tækist aö svara fyrir sig, og eftir 3 mínútur var munurinn aöeins 2 stig, 53—51. Þá tóku Keflvíkingar smá fjörkipp og tókst á næstu 3 mínútum aö auka muninn aftur i 8 stig, staöan 63—55. Var nú jafnræöi meö liö- unum fram í miöjan hálfleikinn, en þá hófu Frammarar aftur aö saxa á forskot Keflvíkinga, og þegar 6Vi mínúta var til loka, komust Fram- marar yfir í fyrsta skipti síðan í upphafi leiksins, 72—73, og hálfri mínútu síöar var staöan oröin 72—75, Fram í vil. Á þessum fjög- urra minútna kafla leiksins hittu Keflvíkingar mjög illa, einkum þó IBK — Fram 84:83 Brad Miley, og mikiö óöagot var á leikmönnum, virtust þeir ætla aö reyna aö skora tvær körfur í hverju upphlaupi. En Keflvíkingum tókst að ná aftur ró og festu í leik sinn, og er tæpar 3 mínútur voru eftir höföu þeir aftur náö forystu, 80—79. Þegar 1V4 mínúta var eftir var staöan 84—81, Keflavík í vil, en þegar 1 minúta var eftir skor- uöu Frammarar og staöan var 84—83 og allt á suöupunkti. Kefl- víkingar reyndu þá aö halda knett- inum og láta brjóta á sér en þegar 8 sekúndur voru eftir misstu þeir knöttinn klaufalega og dæmt var uppkast. Keflvíkingum tókst aö ná knettinum úr uppkastinu og sigur- inn var í höfn. Besti maöur Keflvíkinga í þess- um leik var Axel Nikulásson, og skoraöi hann 27 stig. Björn Skúta- son var mjög góöur í fyrri hálfleik, en minna bar á honum í þeim siö- ari. Brad Miley var traustur í vörn- inni en mjög óhittinn í sókninni. Jón og Þorsteinn stóöu vel fyrir sínu, en hafa þó báöir átt betri dag. Hjá Fram var Viöar Þorkels- son langbestur, skoraði 28 stig, þar af 16 í síöari hálfleik, en hann hóf hálfleikinn meö 4 villur, og heföi mátt ætla aö þaö myndi há honum, en reyndin varð önnur. Þá var Val Brazy góöur aö vanda, bæði í vörn og sókn. Þorvaldur og Guösteinn voru báöir góöir. Guö- steinn skoraöi að vísu ekki nema 8 stig, en var hins vegar einstaklega laginn viö aö krækja í knöttinn frá andstæöingunum. Stigin: IBK: Axel 27, Jón Kr. 20, Þorsteinn 14, Björn V. 13, Brad 8 og Óskar 2. Fram. Viöar 28, Val Brazy 25, ÞOrvaldur 16, Guðsteinn 8, Jóhannes 4 og Ómar 2. Ó.Th. Minniboltamót í körfu: Njarðvíkingar urðu Islandsmeistarar ÍSLANDSMÓT í minni-bolta 1982—1983 var haldiö í Njarövík dagana 5./6. mars. 15 skréö til keppni en skarðiö. Laugardagur 5. mars A-riöill: ÍR-a — UMFN-a ÍBK-a — ÍR-d ÍR-a — Fram UMFN-a — ÍBK-a ÍR-d — Fram B-riöill: ÍR-b — UMFN-b Haukar-a — HK ÍR-b — UMFG UMFN-b — Haukar HK — UMFG C-riðill: ÍR-c — Haukar-b ÍBK-b — Valur ÍR-c — Reynir Haukar-b — ÍBK-b Valur — Reynir Sunnudagur 6. mars A-riðill: voru ÍR-a — ÍBK-a 45:46 Jkar-b UMFN-a — ÍR-d 93:12 udeg- ÍBK-a — Fram 103:21 fylla í ÍR-a — ÍR-d 62:19 UMFN-a — Fram 95:18 B-riöill: ÍR-b — Haukar-a 24:59 41:56 UMFN-b — HK 31:43 120: 7 Haukar-a — UMFG 48—34 69: 8 ÍR-b — HK 12:47 52:33 UMFN-b — UMFG 46:26 6:52 C-riöill: ÍR-c — ÍBK-b 9:65 22:30 IBK-c — Valur 4:30 52:12 ÍBK-b — Reynir 54:35 28:34 ÍR-c — Valur 7:72 18:64 ÍBK-c — Reynir 31:31 42:20 Sigurvegarar A-riðill UMFN-a. Sigurvegarar B-riðill Haukar a. X Sigurvegarar C-riðill ÍBK-b. 45:42 Ursli taleikí r: 31:43 UMFN-a — Haukar-a 40:20 X Haukar-a — ÍBK-b 44:35 66:47 UMFN-a — ÍBK-b 80—27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.