Morgunblaðið - 15.03.1983, Blaðsíða 48
^Vskriftar-
síminn er 830 33
munirt trulofunarhringa
litnivndalistann fffl)
(@ull Sc á§>tUur
Laugavegi 35
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1983
Matthías Bjarnason um Alþýðubandalag og Framsókn:
Svíkja samninga —
„þetta er valdníðslau
MATTHÍAS Rjarnason sagði í umræðum á Alþingi í gær, að
Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur hefðu svikið samkomu-
lag, sem þessir flokkar hefðu gert hvor um sig við stjórnarand-
stöðuna, Framsóknarflokkur um álviðræðunefnd og
Alþvöubandalag um samkomudag Alþingis. Sagði þingmaðurinn,
að núverandi ríkisstjórn hefði verið mynduð með svikum og hún
hefði verið að svíkja fyrirheit stjórnarsáttmálans allar götur
síðan. Það væri því í samræmi við framvindu lífdaga ríkisstjórn-
arinnar, þegar burðarásar hennar svikju gerða samninga.
Matthías Bjarnason sagði til-
gang þessara svika að framlengja
völd ríkisstjórnarinnar, þótt hún
hefði hvorki meirihluta með þingi
né þjóð. Þetta er valdníðsla, sagði
þingmaðurinn.
Geir Hallgrímsson vakti athygli
á því að milli aðila stjórnarsam-
starfsins væri samkomulag um, að
beita ekki þingrofsrétti nema
samþykki allra komi til. Þess-
vegna var hægt að ná fram málum
eins og ákvörðun um samkomudag
þingsins eftir kosningar og kjöri
nýrrar álviðræðunefndar, ef allir
flutningsmenn hefðu staðið heilir
að þeim. En flutningsmenn þess-
ara þingmála úr Alþýðubandalagi
og Framsóknarflokki hafa gerzt
ómerkir orða sinna. Þeir hljóta að
hafa staðið að beitingu þingrofs-
valdsins með þeim hætti sem nú
er sýnt að gert verður, sagði Geir
Hallgrímsson.
Ég og aðrir stjórnarskrárnefnd-
armenn, þ.á m. forsætisráðherra,
höfum lagt til breytingu á þing-
rofsrétti, þann veg að honum verði
ekki beitt, nema meirihluti Al-
þingis óski, sagði Matthías
Bjarnason efnislega. Við erum
siðferðilega skuldbundnir til að
breyta í samræmi við þessa tillögu
okkar, en sýnt virðist, að forsætis-
ráðherra ætli engu að síður að
beita þingrofsréttinum, að ýmsum
mikilvægum þingmálum óaf-
greiddum, án þess að þingvilja sé
leitað.
Tillögu til þingsályktunar þess
efnis, að sérstök þingkjörin nefnd
yfirtaki viðræður við Alusuisse úr
hendi iðnaðarráðherra, sem fram-
sóknarmenn fluttu ásamt stjórn-
arandstöðu og lögðu til skamms
tíma mikið kapp á að fá sam-
þykkta, dagaði uppi í Alþingi.
Sömu leið fór tillaga, sem þing-
flokkur Alþýðubandalagsins stóð
að ásamt stjórnarandstöðu, þess
efnis, að Alþingi lýsi yfir þeim
vilja sínum að þing komi saman
ekki síðar en 18 dögum eftir apr-
íl-kosningar. Matthías Bjarnason,
Geir Hallgrímsson, Pétur Sigurðs-
son og Friðrik Sophusson, þing-
menn Sjálfstæðisflokks, héldu því
fram á Alþingi í gær, að Alþýðu-
bandalagið hefði „skorið iðnaðar-
ráðherra niður úr snörunni" með
því að fylgja ekki eftir tillögu
sinni um samkomudag Alþingis.
Hrossakaup hafi verið gerð milli
Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks, þess efnis, að urða báðar
þessar tillögur undir þingrofi, sem
þýddi áframhaldandi setu núver-
andi ríkisstjórnar og stjórnun
hennar með bráðabirgðalögum
fram eftir árinu.
í eldhúsdagsumræðunum í
gærkvöldi, sagði Albert Guð-
mundsson, að á fundi frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins í Borg-
arnesi um síðustu helgi, hefði
komið fram sterkur vilji til þess
að berjast fyrir hreinum meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins í næstu
kosningum og yrði kosninga-
stefnuskrá flokksins birt síðar í
vikunni, en Halldór Blöndal lýsti
yfir því, að alger eining hefði ríkt
meðal frambjóðenda flokksins um
stefnuna á Borgarnesfundinum.
Forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen, les á Alþingi í gærkvöldi forsetabréf um þingrof og nýjar Alþingiskosn-
ingar. Morgunblaflift/Kristján.
Þinglausnir í gærkveldi:
Þingrof og nýjar kosn-
ingar 23. apríl nk.
Að loknum eldhúsdagsumræðum
á Alþingi í gærkveldi, sem var sjón-
Sjálfstæðisflokkur á Vesturlandi:
Ekki stjórnarmynd-
un gegn meirihluta-
vilja þingflokks
- Friðjón Þórðarson meðal undirritenda
Á FUNDI kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Vesturlandskjördæmi á
sunnudaginn undirrituðu allir fram-
bjóðendur flokksins í aðalsætum yfir-
lýsingu þess efnis, að þeir myndu
stuðla að sameiningu í Sjálfstæðis-
flokknum og ekki taka þátt í stjórn-
armyndun að kosningum loknum gegn
meirihlutavilja þingflokks og flokks-
ráðs.
1 hópi þeirra sem þessa yfirlýsingu
undirrituðu var Friðjón Þórðarson,
dómsmálaráðherra, sem skipar efsta
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi.
varpað og líta verður á sem upphaf
kosningabaráttu, sté Gunnar Thor-
oddsen, forsætisráðherra, í ræðustól
Sameinaðs þings og las upp forseta-
bréf um þinglausnir, þingkosningar
og þingrof. í forsetabréfinu segir
efnislega, að þar sem Alþingi hafi
samþykkt frumvarp að stjórnskipun-
arlögum beri að rjúfa þing og efna
til nýrra kosninga. Því hafi verið
ákveðið að rjúfa þing frá og með 23.
apríl nk. og að þingkosningar fari
fram þann sama dag. Jafnframt gaf
forseti forsætisráðherra heimild til
að slíta Alþingi fslendinga þann 14.
marz.
Aðloknum lestri forsetabréfs
sleit forsætisráðherra síðan þessu
105. löggjafarþingi íslendinga.
Þinglausnir þessar fóru fram um
kl. hálf tólf í gærkveldi. Umboð
núverandi þingmanna rennur út
þingrofs- og kosningadaginn, 23.
apríl nk.
Fyrr um daginn lauk starfi
þingdeilda með formlegum hætti.
Forsetar þökkuðu þingmönnum
störf og samveru sem og starfsliði
þingsins öllu, en talsmenn þing-
manna forsetum réttláta fundar-
stjórn.
Kötlufellsmálið:
Dæmd til 14 ára
fangelsisvistar
HÆSTIRÉTTIJK kvað í gær upp dóm í Kötlufellsmálinu svokallaða. Björg Benja-
mínsdóttir var da-md til 14 ára fangelsisvistar fyrir að hafa banað manni sínum
Sigfúsi Steingrímssyni með því að bera eld að honum 25. janúar árið 1981. í
undirrétti var Björg dæmd til 16 ára fangelsisvistar, en sá dómur var mildaður um
tvö ár í flæstarétti.
f dómsorði Hæstaréttar segir
meðal annars: „Ákærða, Björg
Benjamínsdóttir sætir 14- ára fang-
elsi, en gæzluvarðhaldsvist hennar
frá 29. janúar 1981 komi refsingu til
frádráttar. Ákvæði héraðsdóms um
sviptingu erfðaréttar og sakarkostn-
að eiga að vera óröskuð." Örn Clau-
sen hrl. var skipaður verjandi Bjarg-
ar, en Þórður Björnsson, ríkissak-
sóknari, sótti málið.