Morgunblaðið - 05.12.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
27
Um lifrar-
söfnun og
þorskalýsis-
framleiðslu
eftir Ágúst Einarsson
í annars mjög góðum og fróðleg-
um þætti Vilhelms G. Kristinssonar
um nýtingu lifrar til niðursuðu og
lýsisframleiðslu, sem var á dagskrá
Stöðvar 2 fimmtudaginn 26. nóv.
sl., komu fram tölur sem stinga
afar mikið í stúf við raunverulei-
kann.
Hér var um að ræða tölur um
hráefnis- og afurðaverðmæti lifrar
sem hent er í sjóinn af þeim skipum
þar sem gert er að fiski um borð.
Þar sem ég var einn af þátttak-
endum í umræddum þætti hefí ég
orðið var við þann misskilning að
þessar tölur séu frá mér komnar,
en svo er ekki.
Augljóst má öllum vera að marg-
földun á framboði lifrar, a.m.k. til
bræðslu, hefði verðhrun í för með
„Mín hugmynd og sú
sem ég hefi fyrir
nokkru komið á fram-
færi við kvótanefndina
svokölluðu er sú, að
veita þeim skipum sem
koma með lifur að landi
einhverja umbun í
þorskkvóta enda nýta
þau betur þau verðmæti
sem þeim er úthlutað.“
sér á lifrarlýsi þar sem þorskalýsis-
markaðir eru mjög viðkvæmir fyrir
framboði svo sem aðrir lýsismark-
aðir. Það er því algerlega óraunhæft
að margfalda magn þeirrar lifrar
sem í sjóinn fer með núverandi hrá-
efnisverði, svo sem gert var í
þættinum.
Ennfremur er ég algerlega
andvígur þeim hugmyndum sem
komu fram í þættinum hjá Halldóri
Ásgrímssyni sjávarútvegsráðherra
að til greina komi að skylda menn
til þess að halda til haga þeirri lifur
sem til fellur.
Mín hugmynd og sú sem ég hefi
fyrir nokkru komið á framfæri við
kvótanefndina svokölluðu er sú, að
veita þeim skipum sem koma með
lifur að landi einhvetja umbun í
þorskkvóta enda nýta þau betur þau
verðmæti sem þeim er úthlutað.
Hugsanlega yrði slíkt til þess að
einhveijir útvegsmenn og sjómenn
sæju sér hag í því að hirða lifur
um borð í skipum sínum.
Þegar upp er staðið þá hlýtur
þó hráefnisverð hverju sinni að ráða
framboði á lifur svo sem öðru hrá-
efni og boð og bönn yfirvalda breyta
þar engu um.
Þannig hefur Lýsi hf. sem ég er
í forsvari fyrir hækkað verð á lifur
verulega á þessu ári og síðast vegna
góðrar afkomu fyrirtækisins og
m.a. borgað ölium viðskiptaaðilum
fyrirtækisins uppbætur á lifur frá
síðustu vertíð.
Þetta er að skila árangri sem
sést í auknum áhuga fiskframleið-
enda, útvegsmanna og sjómanna á
því að safna lifur og er það vel.
Höfundur er forstjóri Lýsis hf.
NIPPARTS
o
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina,
AMERISKAN BIL.
EIGUM A LAGER:
KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI/BREMSUHLUTI,
STARTARA, ALTERN ATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
OPUS
MEST SELDI VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐURINN!
Fleiri en 500 fyrirtæki nota ÓPUS.
Sýnum ÓPUS viðskiptahugbúnað á I3M PS/2.
Allt frá einum og upp í 10 notendur á sömu tölvu.
Nú sýnir IBM PS/2 hvað í henni býr!
GÍSLI J. JOHNSEN Nýbýlavegi 16. Simi 641222. m
íslensk
forritaþróun sf
^ Hvertisgölu 33. simi: 62-37-37
Akureyri: T ölvutæki - Bókval
f'ytt Kaupvangsstræti 4. simi: 26100 |