Morgunblaðið - 05.12.1987, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
Frá fyrri síðu.
næði auk þess sem húseignin gaf
af sér drjúgar leigutekjur.
VII
Verslunarreksturinn einn svalaði
þó ekki athafnaþrá Axels Ketilsson-
ar nú fremur en fyrr. Hann reyndi
að hrinda úr vör lýsishersluverk-
smiðju en þá aðferð hafði ungur
ísfirðingur, Garðar Þorsteinsson,
kynnt sér í Kanada. Ekki hlaut
þessi ráðagerð náð fyrir augum
stjómvalda. Þetta var árið 1935.
Þá sneri Axel sér að ijárfestingu í
iðnaði: um tveggja ára skeið,
1935—37, átti hann helmingshlut-
deild í Kexverksmiðjunni Esju.
Þennan hlut seldi Axel er hann réðst
í húsakaupin í Austurstræti. Þá tók
hann þátt í annarri nýstárlegri at-
vinnustarfsemi á Islandi: Minka-
rækt, og átti um skeið hlut í þremur
minkabúum.
Loks kom að því að Axel Ketils-
son réðst á ný í útgerðarrekstur,
en þrátt fyrir velgengnina í verslun-
inni hafði sjávarútvegur ætíð átt
hug hans og hjarta. Árið 1939 réðst
hann í að kaupa togarann Hauka-
nesið ásamt Ásgrími Sigfússyni og
Ásgeiri Stefánssyni. Var Hauka-
nesið gert út frá Hafnarfirði og
voru margar ferðir Axels þangað.
Nú hafði hann bifreið sem farar-
skjóta en á ísafjarðarárunum hafði
hann farið um á forláta reiðhjóli
með hliðarvagni er þóti á þeim árum
nýstárlegur fararskjóti.
Hinu nýja útgerðarfyrirtæki
famaðist vel. Þeir félagar leigðu
flutningaskip til ísfiskflutninga til
Bretlands í stríðsbyrjun. Og þeir
höfðu samið um kaup á 150 tonna
dísel tréskipi frá Danmörku. Nýtt
þenslu- og vaxtartímabil — stríðsár-
in síðari — var að fara í hönd.
Axel Ketilssyni auðnaðist ekki að
fagna hinum nýja tíma. Vorið 1941
kenndi hann sér meins og 16. maí
gaf hann upp öndina 53 ára að
aldri. Útför hans fór fram frá
Fríkirkjunni 28. maí.
IX
I minningargrein sem Sigurður
Kristjánsson bóksali reit lýsir hann
lyndiseinkunn Axels Ketilssonar:
„Hann var maður frjálslyndur,
en ærslalaus. Honum var vel far-
ið í flestum hlutum: geðríkur en
stilltur vel, forsjáll og hófsamur,
en skorti þó aldrei áræði. Manna
örastur á fé, ef hans var leitað."
Axel Ketilsson lifði hæglátu
einkalífi. Heimili hans var mann-
margt; ósjaldan vom 15 manns til
'borðs á Laufásveginum. Eftir að
hann kom til Reykjavíkur hélt' hann
góðum tengslum við æskustöðvarn-
ar og voru ættingjar og vinir frá
ísafirði tíðir gestir á heimili Ólafar
og Axels. Hann gaf sig lítt að fé-
lagsmálum í Reykjavík; starfaði þó
innan vébanda Oddfellow-reglunn-
ar og var virkur félagi í samtökum
vefnaðarvörukaupmanna.
Axel og Ólöfu varð sjö bama
auðið sem öll komust á legg. Fimm
þau elstu fæddust á ísafirði: Sigríð-
ur (1920), Axel (1921), Soffía
Svafa Ólöf (1923), Elísabet (1927)
og Bjöm (1928); en tvö þau yngstu
Ketill (1930J og Ólöf (1940) í
Reykjavík. Olöf Bjömsdóttir stóð
því uppi sem ekkja með 7 börn þar
af eitt á fyrsta ári.
X
Axel Ketilsson var áræðinn at-
hafnamaður sem kom nálægt
margháttuðum, oft býsna ólíkum
rekstri um dagana. Þegar hann lést
var þessi fyrrum boðberi nýrra
verslunarhátta á ísafirði farinn að
fylla flokk „forretningsmanna" af
gamla skólanum. Á tímum síauk-
innar sérhæfingar í atvinnurekstri
varð það brátt óþekkt fyrirbæri að
fatakauþmaður ræki jafnframt út-
gerðarfyrirtæki. Enda hættu börn
Axels brátt útgerðarrekstrinum og
einbeittu sér að versluninni. For-
vitnilegt hefði verið að sjá hvemig
Axel sjálfur hefði brugðist við hin-
um nýju tímum. Athafnasaga Axels
Ketilssonar sem hér hefur verið
rakin að nokkm er á ýmsan hátt
dæmigerð fyrir íslenskan athafna-
mann á fyrri hluta þessarar aldar.
Afrekaskrá athafnamanna þessa
tímaskeiðs og sérkenni hafa geymst
í sagnaminni þeirra er muna þessa
umrótasömu tíma. Margt er þar
með goðsagnablæ. Nú fennir óðum
í spor þessara manna. Verði ekkert
að gert er hætt við að tuttugasta
og fyrsta öldin fái af þeim óljósar
fregnir.
Höfundur er sagnfræðingur.
22 til jóla
9
Jólasýpris
20% afsláttur
Vinsælogfallegplaplanta.
Pottahlífar
Eigum fallegar
pottahlífar úr
hvítu keramiki.
20-30% afsláttur.
Blandaður kór Laugarnessóknar
syngurjólalög í Blomavali,
laugardagkl. 14:00.
Jólatréssalan er hafin.
góðuverðiog3onnurp~
y Jólastiaman, 20 h atsiaaur
Hún er stúndum ne(M> P^tima
Pykir ómissandi a þessu
Dæmi um verð:
Ö80r 544’"
J590r 472’“
520r 416“
440r 352,-
Jólatilboð
Blómstrandi Alparós
20% afsláttur.
GróðurhúsinuviðSigtóaSími 689070.
Kringlunni. Sími 68 97 70