Morgunblaðið - 05.12.1987, Síða 36
36
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
Fundur Sihanouks og
Hun Sen vekur vonir
Jakörtu. Reuter.
SIHANOUK prins og Hun Sen
forsætisráðherra Kambódíu
áttu fund í Frakklandi í gær.
Gert var ráð fyrir að þeir undir-
rituðu sameiginlega yfirlýsingu
að fundinum loknum. Indónesar
lýstu í gær yfir bjartsýni vegna
þessarar yfiriýsingar. Sendi-
menn Asiuþjóða telja yfirlýsing-
Þrettán
farast í
flugslysi
íRúanda
- þar af ellefu
Bandaríkjamenn
Nairobi i Kcnya, Rcuter.
LÍTIL flugvél sem var á leið
frá Zaire til Kenya hrapaði í
Mið-Afríkuríkinu Rúanda I
una vera fyrsta skref í friðarátt
eftir níu ára blóðsúthellingar.
Utanríkisráðherra Indónesíu,
Mochtar Kusumaatmadia, sagði á
blaðamannafundi í gær að árang-
urinn af fundi þeirra Sihanouks
prins og Hun Sen forsætisráðherra
Kambódíu hefði vakið miklar von-
ir. „Við vonum að í framhaldi af
fundinum verði hægt að leysa
vandamál Kambódíu," sagði ut-
anríkisráðherrann. Hann sagði að
Indónesar og Víetnamar, sem
hefðu átt fund um málefni
Kambódíu í síðasta mánuði, myndi
eiga frekari viðræður í Hanoi 21.
og 22. desember næstkomandi.
Væri það hluti af aðgerðum til að
koma á friði í Kambódíu.
Útvarpið í Laos sagði að sú
staðreynd að Hun Sen og Sihano-
uk ætluðu að undirrita sameigin-
lega yfírlýsingu væri „ánægjulegt
merki um að vænta mætti sam-
komulags í málefnum Kambódíu
eftir níu ára ófrið," sagði í frétt
útvarpsins. Hanoi-útvarpið sagði
frá fundinum í Frakklandi án þess
að gefa yfírlýsingar. Vestrænir
sendimenn í Bankok bentu á að
Víetnamar yrðu að koma inn í
þessar viðræður ef semja á um
frið, en í Kambódíu er yfír 140.000
Reuter
Sihanouk prins og Hun Sen forsætisráðherra Kambódíu faðmast
eftir að hafa undirritað samkomulag um að stuðla að friði í
Kambódíu í Frakklandi í gær.
manna herlið frá Víetnömum sem
gerði innrás í landið árið 1978.
Einnig yrðu rauðu khmeramir að
taka þátt í viðræðunum.
Að sögn austrænna sendimanna
á að ræða hlutdeild Víetnama í
friðarviðræðum á fundinum í
Hanoi síðar í þessum mánuði.
Fréttastofan Nýja Kína sagði ekki
frá yfírlýsingunni en hafði eftir
Sihanouk prins að hersveitir hans
myndu halda áfram að beijast þar
til síðasti Víetnamski hermaðurinn
væri farinn úr landinu.
Kína:
Skjóta upp
gervihnetti
fyrir Svía
Hong Kong. Reuter.
KÍNVERJAR munu skjóta á loft
gervihnetti fyrir sænskt geim-
rannsóknafyrirtæki árið 1991,
að þvi er dagblað í Hong Kong
sagði i gær.
Blaðið Ta KungPao, sem er hlið-
hollt kínversku stjóminni, sagði, að
Kínveijar mundu nota „Gangan
mikla-2“ eldflaug til að koma gervi-
hnetti Svenska Rymdaktiebolaget á
braut. Svíar ætla að nota hnöttinn
til fjarskipta og geimrannsókna og
hafa þegar innt af hendi fyrstu
greiðsluna fyrir þessa þjónustu, að
því er blaðið sagði.
Umsvif Kinveija á sviði geim-
skota hafa aukist mikið síðan
bandaríska geimskutlan Challenger
fórst í flugtaki í janúar 1986 og
erfíðleikar steðjuðu að vegna evr-
ópsku Ariane-eldflaugarinnar.
Kínverska dagblaðið i Peking
sagði frá því í ágústmánuði, að yfir
tíu fyrirtæki í Bandaríkjunum,
Bretlandi, Frakklandi, Vestur-
Þýskalandi, Svíþjóð, Ítalíu og
Belgíu hefur undirritað samninga
við stjómvöld í Peking um að skjóta
gervihnöttum á loft.
gær. Um borð í vélinni voru
11 Bandaríkjamenn og tveir
Zaire-búar. Að sögn banda-
ríska sendiráðsins í Nairobi
fórust allir sem með vélinni
voru.
Að sögn talsmanns bandaríska
sendiráðsins í Nairobi voru Banda-
ríkjamennimir ellefu ferðamenn.
Vora þeir á leið til Kenya þaðan
sem þeir ætluðu að fljúga heim
til Bandaríkjanna. Auk þeirra vora
i vélinni flugmaður og leiðsögu-
maður.
Að sögn útvarpsins í Rúanda
missti vélin hæð skömmu eftir
flugtak frá flugvellinum í Goma
við landamæri Zaire og hrapaði í
fjalllendi skammt frá flugvellinum.
Sovétríkin:
Enn mikil
geislun við
Chernobyl
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKUR embættismaður
segir, að hættuleg geislun sé
enn vandamál við Chernobyl-
kjarnorkuverið í Úkraínu og
hafi af þeim sökum orðið þar
þrjú dauðaslys á árinu.
V. Lukyanenko, flokksformaður
í bænum Slavutich, sem reistur
var fyrir starfsfólkið við Chemo-
byl-verið, segir í skýrslu, sem
birtist í sovésku dagblaði, að á
síðustu tíu mánuðum hafí orðið
36 slys í orkuverinu, þar af þijú
dauðaslys. Kom það ekki fram
hvort þau hefðu orðið vegna geisl-
unar en sagt var, að forráðamenn
versins hefðu fengið alvarlega
áminningu fyrir að hafa ekki farið
nákvæmlega eftir öryggisreglum.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti í sjónvarpsviðtali:
Hlýt ad treystaþví ad Gor-
batsjov trúi eigin áróðri
Kveðst enn telja Sovétríkin „illt heimsveldi“
Washington, frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsviðtali á
fimmtudag að skoðanir hans á Sovétríkjunum og stjórnkerfi
kommúnista hefðu ekkert breyst frá því hann lýsti yfir því í
frægri ræðu að Sovétríkin væru „keisaradæmi hins illa“. Hins
vegar kvað forsetinn nauðsynlegt að auðsýna ákveðið traust svo
framarlega sem unnt væri að sannreyna að Sovétmenn stæðu við
gerða samninga. Sagði Reagan þetta hafa ráðið afstöðu Banda-
ríkjastjómar i viðræðum við sovéska embættismenn um uppræt-
ingu meðal- og skammdrægra kjaraorkuflauga og svo yrði einnig
í framtíðinni. I viðtalinu kom einnig fram að Reagan er bjartsýnn
á árangur í viðræðum sínum við Míkhafl Gorbatsjov, leiðtoga Sov-
étríkjanna, sem væntanlegur er hingað til Bandaríkjanna á
mánudag. Kvaðst forsetinn binda vonir við að þeir gætu náð ár-
angri í viðræðum um fækkun Iangdrægra kjarnorkuvopna og
sagðist telja ákaflega líldegt að hann færi til fundar við Gor-
batsjov í Moskvu á næsta ári.
1 viðtalinu svaraði Reagan
spumingum þriggja þekktra
bandarískra sjónvarpsmanna, sem
starfa við sjónvarpsstöðvamar
ABC, CBS og CNN og var víða
komið við. Reagan var fyrst spurð-
ur hvemig hann svaraði gagnrýni
þess efnis að samkomulag um
upprætingu meðal- og skamm-
drægra flauga væri Sovétmönnum
hagstætt þar eð þeir nytu yfír-
burða á sviði hefðbundinna vopna
og gætu þannig ógnað öryggi ríkja
Vestur-Evrópu. Forsetinn sagði
það óvefengjanlega staðreynd að
Sovétmenn hefðu yfírburði á þessu
sviði en menn yrðu að hafa í huga
að ekki væri verið að semja um
algera útrýmingu kjamorkuvopna
í Vestur-Evrópu. Eftir myndu
standa þúsundir vígvallarvopna
með kjamorkuhleðslum sem nauð-
synleg væru til að vega upp á
móti herafla Sovétmanna. Þessi
vopn yrði ekki unnt að fjarlægja
fyrr en tekist hefði að koma á jöfn-
uði á sviði hins hefðbundna
vígbúnaðar.
Reagan sagði ógnvænlegustu
vopnin vera þau sem beint væri
gegn borgum Vestur-Evrópu og
þau vopn væri verið að semja um
auk þess sem stefnt væri að því
að fækka langdrægum kjamorku-
vopnum sem væru ógnvænlegustu
vígtólin. Samningurinn væri því í
þágu ríkja Vestur-Evrópu og raun-
ar heimsbyggðarinnar allrar.
Gagnrýni á sáttmál-
ann
Nokkrir þekktir frammámenn í
Repúblikanaflokknum, flokki Re-
agans forseta, hafa gagnrýnt
sáttmálann um meðaldrægu flau-
gamar, sem undirritaður verður á
þriðjudag í næstu viku í Was-
hington, og sagt að ekki sé unnt
að treysta Sovétmönnum. Til
marks um þetta hafa þeir nefnt
brot Sovétstjómarinnar gegn
ákvæðum alþjóðlegra mannrétt-
indasáttmála og fyrri samninga
um takmörkun vígbúnaðar. Demó-
krataflokkurinn hefur á hinn
bóginn lýst sig fylgjandi samn-
ingnum.
Aðspurður um þetta sagði Reag-
an það rétt vera að nokkrir flokks-
bræðra hans fyndu samningum
flest til foráttu. Sagði forsetinn
þetta lýsa vanþekkingu viðkom-
andi manna. Einkum væri greini-
legt að þeir hefðu ekki kynnt sér
eftirlitsákvæði sáttmálans, sem
væru skýr og afdráttarlaus. Sagði
hann að svo virtist sem þessir
menn teldu „vopnuð átök óhjá-
kvæmileg". „Ég tel að meðan
einhver möguleiki er á að viðhalda
friðnum þá beri að gera það. En
friður má ekki merkja hið sama
og uppgjöf og við höfum ekki í
hyggju að gefast upp,“ sagði for-
setinn.
Reagan Bandaríkjaforseti svarar spurningum fréttamanna.
Útþenslustefna
Reagan sagði að þótt hann væri
reiðubúinn til að setjast að samn-
ingaborðinu þýddi það ekki að
skoðanir hans á Sovétríkjunum
hefðu breyst. „í gegnum tíðina
hafa Sovétmenn margoft gert það
ljóst að þeir eru trúir útþenslu-
stefnunni, sem er eitt helsta boðorð
marxismans. Nú er hins vegar
kominn fram á sjónarsviðið leiðtogi
sem segist reiðubúinn til að virða
sjálfsákvörðunarrétt annarra ríkja
og ólíka hugmyndafræði þeirra,"
sagði hann. Kvað Reagan nauð-
synlegt að sýna ákveðið traust í
samskiptum við Sovétmenn, en
mikilvægt væri að unnt yrði að
sannreyna að þeir stæðu við gerða
samninga.
Forsetinn kvaðst ekki efast um
að Míkhaíl Gorbatsjov væri heill í
afstöðu sinni. „Ég hlýt að treysta
því að hann trúi eigin áróðri," sagði
Reagan og bætti við að Gorbatsjov
væri alinn upp við að hlýða á
óhróður um vestræna siðmenn-
ingu. í ljósi þessa sagðist Reagan
telja sérlega mikilvægt að Gor-
batsjov kæmi til Bandaríkjanna til
að hann gæti sjálfur kynnt sér
háttu, viðhorf og siði Bandaríkja-
manna og lét í ljós þá von að
Sovétleiðtoginn sæi sér fært að
koma í opinbera heimsókn þótt
síðar yrði.
Forsetinn var spurður hvort
hann teldi líkur á því að risaveldin
næðu árangri í viðræðum um
fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna á leiðtogafundinum í
Washington og hvort hugsanlegt
væri að hann færi til fundar við
Gorbatsjov í Moskvu á næsta ári.
Sovéskir og bandarískir embættis-
menn hafa lýst yfír því að stefna
beri að helmingsfækkun lang-
drægra kjamorkuflauga og hafði
raunar náðst óformlegt samkomu-
lag um þetta á leiðtogafundinum
í Reykjavík á síðasta ári er Gor-
batsjov setti það óvænt sem
skilyrði fyrir samkomulagi að
Bandaríkjamenn féllu frá geim-
vamaáætluninni. Eru vonir
bundnar við að unnt verði að ganga
frá bráðabirgðasamkomulagi um
fækkun þess háttar vopna á fund-
inum í Washington, sem síðan
verði staðfest í Moskvu á næsta
ári.
Reagan sagði að það yrðu sér
mikil vonbrigði ef ekki yrði af
fundinum í Moskvu og kvaðst ekki
trúa öðru en að fundurinn færi
fram.„Ég tel allgóðar líkur á því
að okkur muni takast að stíga enn
eitt þýðingarmikið skref í átt að
algerri útrýmingu kjamorku-
vopna," sagði Reagan Bandarílqa-
forseti að lokum.