Morgunblaðið - 28.09.1988, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B/C
fflrjnntlrifofcife
STOFNAÐ 1913
221. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Osló:
Friðar-
verðlaun
til SÞ?
Ósló. Reuter.
FJÖLMIÐLAR í Noregi tejja
heldur ólíklegt, að þeir Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti og
Mikhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
hljóti friðarverðlaun Nóbels í ár
en þeir eru meðal þeirra 97 ein-
staklinga og stofhana, sem til-
nefiid hafa verið. Hallast þeir að
því, að friðargæslusveitir Sam-
einuðu þjóðanna og Alþjóða heil-
brigðismálastofiiunin, WHO, hafi
meiri möguleika.
Þeir, sem telja, að Reagan og
Gorbatsjov komi ekki til greina,
segja, að fengi Reagan verðlaunin
mætti líta á það sem stuðningsyfir-
lýsingu við George Bush, varafor-
seta Bandaríkjanna og frambjóð-
anda repúblikana í forsetakosning-
unum. Ríkisútvarpið í Noregi skýrði
frá þvi á sunnudag að ýmsar stofn-
anir Sameinuðu þjóðanna væru
líklegar til að hljóta verðlaunin.
Tilkynnt verður á morgun hver
hlýtur friðarverðlaunin að þessu
sinni en auk fyrrnefndra hafa Nel-
son Mandela, blökkumannaleiðtogi
í Suður-Afríku, og Jóhannes Páll
páfi II verið útnefndir til verðlaun-
anna.
Ársfundur-
inn settur
Helmut Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, setti
í gær ársfund
Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins í Vestur-Berlín. Hafa
ýmsir hópar efiit til
mótmæla vegna
fundarins og fyrir
nokkrum dögum var
starfsmanni
vestur-þýska
Qármálaráðuneytisins
sýnt banatilræði. 9.000
lögreglumenn og
hermenn sjá um að gæta
öryggis fundarmanna og
aðstoðarmanna þeirra en
þeir eru á milli 10 og 20
þúsund frá 150 ríkjum.
Reuter
Ársfundur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins:
Skuldamál og náttúru-
vemd ofarleffa á baugi
Vestur-Berlín. Reuter.
HELMUT Kolil, kanslari Vest-
ur-Þýskalands, setti í gær árs-
fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans í Vestur-
Berlín og skoraði á allar þjóðir
að grípa til tafarlausra aðgerða
gegn gróðureyðingu og meng-
un. Forsvarsmenn alþjóðastofii-
ananna hvöttu til, að ráðist yrði
gegn fátæktinni í þriðja heimin-
um og fulltrúar Japana og
Mexikómanna lögðu fram tillög-
ur u m úrlausn í málefnum skuld-
ugra ríkja.
„Það, sem skiptir okkur mestu,
er að spilla ekki andrúmsloftinu
og standa vörð um dýralífíð, höfín
og skógana. Þess vegna skora ég
á ykkur að taka höndum saman í
þessu alvarlega máli," sagði Kohl
í setningarræðunni en umhverfís-
mál eru nú í fyrsta sinn óvenjulega
fyrirferðarmikil á ársfundi þessara
alþjóðastofnana.
Mikill viðbúnaður er í Vestur-
Berlín vegna ársfundarins enda
hefur flykkst þangað alls kyns
mótmælafólk, sem heldur því fram,
að þessar tvær alþjóðastofnanir
beri meginábyrgð á fátæktinni í
heiminum og umhverfísslysum.
9.000 lögreglumenn gæta öryggis
fundargestanna, sem eru frá 150
ríkjum, en þeir gátu þó ekki komið
í veg fyrir það á mánudag, að
mótmælendur brytu rúður í glugg-
um verslana og banka í borginni.
Barber Conable, forseti Alþjóða-
bankans, sagði í ræðu sinni, að það
hefði verið og væri hlutverk bank-
ans að beijast gegn fátækt og
Michel Camdessus, framkvæmda-
stjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
skoraði á einkabankana að gera
meira til að létta þriðjaheimsríkj-
unum skuldaokið. Satoshi Sumita,
seðlabankastjóri í Japan, kynnti
áætlun um stofnun sjóðs, sem
skuldug ríki legðu til fé og fengju
í staðinn skuldabréf, sem þau gætu
aftur notað til að greiða með skuld-
imar á nafnverði. Gustavo Petrici-
oli, íjármálaráðherra Mexíkó, tal-
aði fyrir hönd ríkja í Rómversku
Ameríku og lagði til, að gerður
yrði nýr „Berlínar-sáttmáli" og
skuldugum ríkjum hjálpað á sama
hátt og Bandaríkjamenn hjálpuðu
Evrópuríkjunum eftir stríð með
Marshall-aðstoðinni.
Reuter
00
Omurleg heimkoma
Kanadíski spretthlauparinn Ben Johnson kom í gær heimaborgar sinnar,
Toronto, sem miðurbrotinn og ærulaus maður. Fyrir aðeins flórum dögum
var hann heimsmeistari og ólympíumeistari en nú hafa kanadískir ijölmiðl-
ar þau orð um lyfjanotkun hans, að hún sé „þjóðarskömm" og ríkisstjóm-
in hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á málinu. Myndin sýnir Johnson
þegar hann kom til New York en fréttamenn hafa setið um hann dag og
nótt og þeim tókst að hálffylla vélina frá New York til Toronto. Flugmenn-
imir sáu þá aumur á honum og leyfðu honum að halda til í flugstjómar-
klefanum.
Sjá fréttir i B-blaði.
Evrópudómstóllinn:
Umhverfisvemdarmál þyngri
á metunum en ftjáls verslun
International Herald Tribune.
Evrópudómstóllinn í Lúxemborg hefiir úrskurðað að dönsk
löggjöf sem bannar notkun einnota drykkjaríláta sé fyllilega rétt-
mæt ráðstöfún til veradar umhverfinu. Framkvæmdanefiid Evr-
ópubandalagsins hafði kært danska þingið og beitt sér gegn þess-
um lögum á þeirri forsendu að þau hindruðu frjálsa verslun inn-
an bandalagsins.
Samkvæmt dönskum lögum,
frá árinu 1981, er skylt að selja
bjór og gosdrykki í margnota
umbúðum með skilagjaldi. Erlend
fyrirtæki geta því ekki sett slfka
drykki á danskan markað í tindoll-
um, plastflöskum eða einnota
glerflöskum. Heimildir innan Evr-
ópubandalagsins herma að Vest-
ur-Þjóðveijar íhugi að setja sams-
konar lög.
í dönsku lögunum er einnig
ákvæði um kvóta á innflutningi
erlendra drykkja í flöskum sem
ekki eru eins og hinar hefðbundnu
dönsku bjór- og gosdrykkjaflösk-
ur. Hver framleiðandi má ekki
seija meira en 3.000 hektólítra á
ári í slíkum umbúðum.
Þetta er í fyrsta skipti sem
umhverfisvemdarsjónarmið eru
látin vega þyngra innan Evrópu-
bandalagsins en fríverslunar-
stefna. I úrskurði Evrópudóm-
stólsins sagði að Danir hefðu átt
rétt á því að grípa til þessarar
löggjafar þar eð Evrópubandalag-
ið hefði ekki enn sett lög um
umhverfisvemd.
Hins vegar úrskurðaði Evrópu-
dómstóllinn að lagaákvæðið um
takmarkað magn innflutnings er-
lendra drykkja í margnota flösk-
um, öðmm en þeim dönsku, fæli
í sér óeðlilegar viðskiptahömlur
og ætti því ekki rétt á sér.