Morgunblaðið - 28.09.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
5
Iðnaðarráðuneytið:
Einkaleyfa-
stofinm verði
komið á fót
Iðnaðarráðuneytið hefiir
markað þá stefiiu að sjálfstæð
skráningarskrifstofa (einka-
Ieyfastofiiun) verði sett á lagg-
irnar. Einkaleyfalaganefiid hef-
ur verið falið að semja frumvarp
til laga um skráningarskrifstof-
una sem tæki við verkefiium
einkaleyfa- og vörumerkjadeild-
ar iðnaðarráðuneytisins. Akveðið
hefur verið að flytja starfsemi
einkaleyfa- og vörumerkjadeild-
ar í næsta mánuði úr húsakynn-
um ráðuneytisins í húsnæði á
Lindargötu 9. Forstöðumaður
deildarinnar er Gunnar Gutt-
ormsson.
Umsóknum um vemd eignarrétt-
inda í öllum greinum atvinnulífsins
hefur fjölgað verulega á undanföm-
um ámm. Um 40% fleiri vöru-
merkjaumsóknir hafa til dæmis
borist það sem af er þessu ári mið-
að við sama tíma á síðasta ári.
Iðnaðarráðherra skipaði 18. nóv-
ember 1987 einkaleyfalaganefnd tii
að endurskoða löggjöf um einka-
leyfa-, vömmerkja- og mynstur-
vemd. Nefndin mun innan tíðar
skila til ráðuneytisins fmmvarpi að
nýjum einkaleyfalögum og drögum
að reglugerð þar að lútandi. Nefnd-
inni var einnig falið að semja fmm-
varp til laga um mynsturvemd og
fmmvarp um réttarstöðu manna
sem vinna að uppfmningum í þjón-
ustu annarra. Stefnt er að því að
leggja fmmvörp um þessi efni fyrir
næsta þing.
Formaður einkaleyfalaganefndar
er Þorgeir Örlygsson prófessor en
aðrir nefndarmenn em Gunnar Öm
Harðarson tæknifræðingur og Jón
L. Arnalds hæstaréttarlögmaður,
segir í fréttatilkynningu frá iðnað-
arráðuneytinu.
Karvelsamdi
við borgina
SÆTTIR hafa tekist í dómsmáli,
er Karvel Pálmason, alþingis-
maður, höfðaði gegn Reykjavík-
urborg í nóvember 1987.
Málavextir vom þeir, að 1. ágúst
1985 gekkst Karvel undir hjartaað-
gerð í London. Við aðgerðina komst
sýking í skurðsárið, sem uppgötvað-
ist alllöngu síðar. Var Karvel þá
lagður inn á Borgarspítalann. Af
hálfu Karvels var því haldið fram,.
að læknar Borgarspítalans bæm
alla ábyrgð á örorku hans, sem
metin var 75%, en af hálfu borgar-
innar var talið, að orsök örorkunnar
væri hjartaaðgerðin sjálf og sýking-
in í London, en ekki mistök á Borg-
arspítalanum.
Stefnukrafa Karvels var kr.
12.000.000 að viðbættum vöxtum
frá 1. júní 1986, auk málskostnað-
ar, en við þingfestingu málsins
gerði hann tölulega grein fyrir um
8 milljón króna tjóni. Samkvæmt
sáttinni greiðir Borgarspítalinn
Karvel kr. 2.950.000 vaxtalaust og
auk þess lögfræðikostnað hans.
Dómsmálið hefur verið fellt niður.
Með sátt þessari viðurkennir
Reykjavíkurborg ekki bótaskyldu
og Karvel Pálmason viðurkennir
ekki lækkun bótakröfu sinnar, en
aðilar em sammála um að hætta
við erfið, langdregin og óviss mála-
ferli með þessum hætti, segir í
fréttatilkynningu frá lögmönnum
málsaðila.
! £ «
*!í;
1 J J
New York er nefnilega hreint engu lík.
Dagarnir eru fljótir að fjúka í iðu
borgarlífsins á Manhattan: þegar þú
nýtur útsýnisins úr Empire State, ferð í
leikhús á Broadway, lætur berast með
fólksstraumnum á götunum, heimsækir
Museum of Modern Art, Lincoln
Center eða snæðir á ítölskum
veitingastað. New York rúmar allt sem
þér dettur í hug og dreymir um ... og
rúmlega það.
Nú bjóðast helgar- og vikufargjöld til
New York á hagstæðu verði:
Helgarverð 3 dagar frá kr. 23.590,-*
Helgarverð 5 dagar frá kr. 28.720,-**
Vikuverð 7 dagar frá kr. 37.980,-***
* Gildistími frá 1/10 '88-31/3 '89, fim.-sun./ lau.-þri.
** Gildistími frá 1/10 '88-31/3 '89, fim.-þri.
***Gildistími frá 1/10 '88-31/3 '89.
Gistimöguleikar: Madison Towers,
Days Inn, Penta Hotel.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölu-
skrifstofum Flugleiða, ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt.
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2,
Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.
INNLENT
L -J
jttxgiMifrliifcift
Metsölublaó á hverjum degi!