Morgunblaðið - 28.09.1988, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
Greinargerð stuðningsmanna séra Gunnars Bjömssonar:
Markmiðið að hnekkja
brottrekstrinum
Forsagan
Stjóm Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík hefur á valdatíma sínum
síðan 29. maí ’88 komið öllum safn-
aðarmeðlimum og öðrum lands-
mönnum svo rækilega á óvart með
aðgerðum sínum og ákvörðunum,
að við stuðningsmenn séra Gunnars
Bjömssonar teljum að kominn sé
tími til þess að setja hlutina í sam-
hengi, sé þess þá yfírleitt nokkur
kostur.
Forsögu þessa máls má relg'a til
þess að 1985 var presti vikið frá
störfum vegna þess að hann hafði
um langa hríð verið ósammála
launaútreikningi þeim sem þáver-
andi gjaldkerar beittu. Þurfti hann
því miður að standa í stappi til
þess að fá greidd umsamin laun,
jaftivel þótt það væri tekið fram í
ráðningarsamningi að hann hefði
sömu kaup og kjör og prestar Þjóð-
kirkjunnar.
Til þess að réttlæta brottrekstur-
inn vom tíndar til sakir byggðar á
ummælum rifnum úr samhengi og
ýmislegt annað sem einn ræðumað-
ur á safnaðarfundi í september kall-
aði „tittlingaskít**. Góðu heilli náðist
samkomulag en stjómin var þá
ekki sein á sér að byija að brjóta
það á ýmsa vegu. Stjómarformaður
var þá Ragnar Bemburg, eigin-
maður Bertu þeirrar sem nú virðist
vera potturinn og pannan í því
stjómarbroti, sem enn heldur
dauðahaldi í „völdin“, af hvaða or-
sökum sem það nú er.
Ný stjórn nær kosningu
Þessi hópur „kirkjueigenda"
missti meirihluta sinn í kosningum
vorið 1987 og hófst þá mikill um-
bótatími i safnaðarstjóm. Keypt
vom tæki á borð við ljósrita og eld-
vamarkerfí, en auk þess var ráðist
í kaup á Betaníu fyrir safnaðar-
heimili. Þetta hús er mjög eftirsótt
vegna legu sinnar og þar að auki
er þetta ágætis bygging, þótt ýmis-
legt megi auðvitað lagfæraa, eins
og gengur. Það er þó ekkert sem
6.000 manna söfnuði með nær 12
milhona króna tekjur á ári ætti að
Nú fór allt í gang og fyrri stjóm
safnaði liði á aðaifund til þess að
fella þessa stjóm. — Það er nefni-
lega ekki sama hveijir framkvæma.
— Tókst henni að ná völdum með
u.þ.b. 130 atkvæðum (sjá síðar).
Hennar fyrsta (og reyndar einasta
verk hingað til) var svo að reka
séra Gunnar vegna „samstarfsörð-
ugleika" á stjómarfundi, þar sem 3
af 7 stjómarmönnum höfðu ekki
hugmynd um hvað til stóð. 2 þeirra
sögðu umsvifalaust af sér. Hér voru
130 atkvæði á bak við 5 stjómar-
menn fullnægjandi til þess að reka
prest að dómí stjómar. Þess má líka
geta að á bak við hið umdeilda laga-
ákvæði um brottrekstur prests em
innan við 50 atkvæði.
Mitt er valdið!
Stjómin hafði ekki neinn áhuga
á að leggja gerðir sínar frá 23. júní
undir dóm safnaðarfólks.
Mjög fljótlega kreQast 70 manns
safnaðarfundar til þess að ræða
þetta mál, en stjómin hummar fram
af sér að halda þennan fund þangað
til 12. september, eins og áður er
getið. í millitíðinni var reynt að
ræða við stjómarmenn, en þeir vildu
fátt segja og minna gera. Allt í einu
birtist svo safnaðarblað, sem var
nær samfelld árás á prestinn. Lá
nú í augum uppi að það var komið
að fundi og átti blaðið að vera rot-
höggið á séra Gunnar. Örfáum dög-
um áður en þetta blað kom út,
hafði stjóm með öllu hafnað skoð-
anakönnun um málið, en það var
tillaga biskups, æðsta manns
evangelísk-lútersku kirkjunnar á
íslandi.
Lýðræðið kemur
til sögunnar
Skömmu síðar var boðaður fund-
ur í Gamla bíói, en það tekur um
500 manns f sæti. Tilgangurinn var
greinilega sá að Jarða" séra Gunn-
ar endanlega, enda var til fundar
boðað á löglegan hátt og að öllu
leyti löglega að honum staðið. Þar
mættu á áttunda hundrað safnaðar-
„Hér er við hæfí að
upplýsa að þetta er stór
hópur fólks úr öllum
stéttum þjóðfélagsins
sem hefur komið saman
eftir vinnudag og unnið
mikið starf, vegna þess
að þeim ofbýður öllum
sem einum ofríki og
yfirgangur stjómarinn-
ar.“
lýst vantrausti á allar gerðir stjóm-
ar hingað til.
Stjómin fékk sjokk. Þau höfðu
gengið of langt og vakið þennan
„sofandi risa“ án þess að gera sér
nokkra grein fyrir því. Stjómin
hafði treyst á að safnaðarfólk tæki
þessu eins og hveiju öðra hundsbiti
og kysi sér nýjan prest án þess að
mótmæla. Var nú sest á rökstóla í
stjóminni og rætt um hvað gera
skyldi til þess að draga bitið úr
fundinum og helst að ónýta með
öllu ákvarðanir hans. í framhaldi
af því var gefin út yfirlýsing sem
líklega er algert einsdæmi í sögu
safnaða og félaga á íslandi. 700
manna fundur, væntanlega flöl-
mennasti safnaðarfundur f Islands-
sögunni, er lýstur dauður og ómerk-
ur vegna of lítils flölda fundargesta!
Þessi fundur var reyndar einnig
einstakur að því leyti að nafnskír-
teina var krafist við innganginn og
urðu menn að hafa gengið í söfnuð-
inn fyrir 1. desember 1987. Ekki
virtist safnaðarstjóm hér vera sam-
mála Jesú Kristi (Lúk. 15.7.).
Nokkrar spurning'ar
— Hvers virði er þá stjóm með 130
atkvæði á bak við sig?
RÍKISSTJÓRN Alþýðuflokks,
Borgaraflokks og Sjálfstæðis-
flokks hafði mest fylgi í skoðana-
könnun sem Tölvufræðslan
gekkst fyrir á sýningunni Tölvur
á tækniári, sem haldin var í
Laugardalshöll í síðustu viku.
Tölvufræðslan gekkst fyrir stutt-
um tölvunámskeiðum á sýning-
nnni og var lokaverkefni hvers
nemanda að mynda nýja ríkis-
stjórn sem hefði meirihluta Al-
þingis að baki sér.
398 manns tóku þátt í námskeið-
unum, sem vora 14 talsins. Að sögn
Kristjáns Kristjánssonar hjá Tölvu-
— Hvers vegna var þá fundur hald-
inn í húsi sem tekur 500 manns?
— Hefði ekki verið nær að nota
Laugardalshöliina, svo allir safnað-
armeðlimir gætu komist inn?
— Hvers vegna vora aðeins 3 borð
í notkun til þess að kanna skilríki
fundargesta, með þeim afleiðingum
að hundrað manna hurfu frá? Eldra
fólk stendur ekki úti á götu í nepj-
unni tímunum saman.
— Hvers virði er lýðræðið ef 700
manna fundur í félagi með rúmlega
4.000 atkvæðisbæram mönnum er
ómerkur? Það er einn af homstein-
um lýðræðisins að greidd atkvæði
gilda og annað ekki.
— Hefði stjóm lýst fundinn ólög-
mætan, ef útkoma úr kosningum
hefði verið henni þóknanleg?
— Hvers vegna var lagt slíkt ofur-
kapp á að vísa þeim meðlimum frá
sem einhver vafi lék á að væra
fullgildir meðlimir, fyrst fundurinn
var hvort eð er ekki marktækur?
„Sérfiræðingur“ stjómar-
innar í félagslögum
Elftir að hafa leitað til nokkurra
lögfræðinga, fannst einn, Skúli
Pálsson (?) sem var tilbúinn til þess
að skrifa undir að stjómin hefði
rétt fyrir sér. Ekki er vitað til þess
að viðkomandi lögfræðingur sé
neinn sérfræðingur í félagarétti.
Þvert á móti era mjög margir lög-
fræðingar sammála um það að þessi
fundur hafi verið að öllu leyti lög-
legur, og vfst er að fundarstjóri,
hinn virti lögmaður Jóhannes L.L.
Helgason, er þar sammála.
Hvað næst?
Öll hálmstrá era jafnan nokkurs
virði og nú greip stjómin það
síðasta. Skoðanakönnun skyldi það
vera, heillin! Fyrir 3 vikum var
hugmyndin algerlega ótæk, nú er
hún hin eina rétta!
Og þegar loksins verður búið að
telja í skoðanakönnuninni, má enn
drepa málið í dróma með þvf að
halda fund með löngum fyrirvara
og skipa kjörstjóm, sem síðan tekur
sér góðan tíma til að undirbúa kosn-
ingar. Svo er hægt að lýsa kosning-
amar ólöglegar vegna þess að ekki
nógu margir taka þátt í þeim og
þannig má halda skollaleiknum
fræðslunni var lokaverkefni nem-
endanna fólgið í að þeir spreyttu
sig á myndun meirihlutastjómar.
Flestir völdu Borgaraflokk í sína
óskastjóm, eða 82, sem er 21%
nemendanna. 78 nefndu Alþýðu-
flokk, eða 20%; 70 nefndu Sjálf-
stæðisflokk, eða 18%; 60 neftidu
Framsóknarflokk, eða 15%,
Kvennalista nefndu 48, eða 12%,
Alþýðubandalag nefridu 44, eða
11% og loks vora 16 sem nefndu
Samtök um jafnrétti og félags-
hyggju, eða 4%.
Vinsælasta ríkisstjómarmunstrið
sem kom út úr þessari könnun var
áfram þangað til að allir era dauðir
úr leiðindum!
Og meðal annarra orða: Hver á
að undirbúa skoðanakönnun þessa?
Er það kannski stjómin sjálf, sem
ætlar að ákveða hveijir Igósa,
merkja rið þá sem mæta og telja
síðan? Á að gerast dómari í sjálfs
sín sök einu sinni enn?
Hið eina rétta í stöðunni
I þessu leikhúsi fáránleikans er
nú komið að sfðasta þætti, og von-
andi verður hann skammvinnur.
Við stuðningsmenn séra Gunnars
lítum svo á að þessi „stjóm“ sé
ekki lengur starfhæf sakir fólks-
fæðar, því í 7. grein laga safnaðar-
ins stendur „Stjóm safnaðarins
skipa 7 menn, formaður og sex
fultrúar." Varamenn era 2. For-
maður hefur sagt af sér auk þriggja
annarra og eftir sitja 5 fulltrúar.
Einum aðalmanni og einum vara-
manni hefur verið meinað að sækja
fundi, er þeir vildu draga afsögn
sína tii baka.
Hið eina rétta er að halda safnað-
arfund umsvifalaust og þar á að
kjósa nýja stjóm. Þá og aðeins þá
er hægt að tala um að í Fríkirkju-
söfnuðinum í Reykjavík sé löglega
kjörin stjóm!
Hveijir eru skósveinarnir?
Einn stjómarmanna kallaði
stuðningsmenn séra Gunnars „skó-
sveina" hans. Hér er við hæfi að
upplýsa að þetta er stór hópur fólks
úr öllum stéttum þjóðfélagsins sem
hefur komið saman eftir vinnudag
og unnið mikið starf, vegna þess
að þeim ofbýður öllum sem einum
ofriki og yfirgangur stjómarinnar.
Ekkert er jafn flarri lagi og að segja
að hér sé um nytsama sakleysingja
eða einlitan hóp að ræða. Við höfum
rætt fram og aftur og komist að
niðurstöðu um framkvæmdir mál-
anna á lýðræðislegan hátt. Ekki era
alltaf allir sammála um leiðimar,
en markmið okkar allra er að
hnekkja brottrekstrinum og þessi
hópur mun aldrei gefast upp!
Matthías Kristiansen,
Sigríður Karlsdóttir,
Guðrún Pétursdóttir.
Alþýðuflokkur, Borgaraflokkur og
Sjálfstæðisflokkur. Næst vinsælast
var Alþýðubandalag, Alþýðuflokk-
ur, Framsóknarflokkur og Samtök
um jafnrétti og félagshyggju.
Kristján sagði að ekki lægi fyrir
hvemig samsetning nemendahóps-
ins væri, þ.e. aldursskipting og
kynjaskipting. Hann sagði að sam-
setning þessa hóps hefði ekki ráðist
af neinu vali til þess að gefa spegil-
mynd af þjóðfélaginu, heldur hefði
aðeins verið um að ræða fólk sem
sjálfviljugt valdi að koma á nám-
skeiðin.
vera ofviða. meðlima og f stuttu máli sagt var
SKÝRR auglýsir til sölu móður-
tölvu af gerðinni IBM 4341-M2.
Námskeið á tölvusýningri:
Lokaverkefíii að mynda meirihlutastj óm
Tölvan hefur 8Mb innra minni, 6 boðrása-
tengi og áætlaður vinnsluhraði er 1,3 Mips.
Tölvunni fylgir staðfesting frá IBM á ís-
landi um að hún hafi ávallt verið undir
viðurkenndu eftirliti og viðhaldi.
Stjórnskjáir, kaplar og handbækur tölv-
unnar fylgja henni og er tölvan tilbúin til
flutnings úr húsi SKYRR.
Frekari upplýsingar veitir Viðar Ágústsson
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs SKÝRR í
síma 695-100.
SKÝRSLUVÉLAR RÍKISINS
OG REYKJA VÍKURBORGAR
Háaleitisbraut 9.
HAUST.
SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
IIKINCII) I SIMA 82V0II
Sjálfstæðismenn, stöndum vörð um Sjálfstæðisflokkinn, eflum flokksstarfið
Gerum skil á heimsendum happdrættismiðum.
Skrifsloiun lláiileitisbraiil I er opin virka daga
frá kl. 9-17