Morgunblaðið - 28.09.1988, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
JOHN YORK
Synti yfir
Ermasundið á
tæpum níu tímum
John York, sem er 27 ára gam-
all, afrekaði í síðustu viku að
synda yfír Ermasundið á 8 tímum
og 52 mínútum. Er það þriðji besti
tíminn í ár en metið, við ágætar
aðstæður, er um 8 tímar. Vega-
lengdin yfír sundið er um 35 kíló-
metrar þar sem synt er, en þurfti
John að synda yfír 40 kílómetra
vegalengd vegna ýmissa hindrana
á Ieiðinni.
Um síðustu helgi voru stödd hér
á landi, sundmaðurinn John York
og þjálfari hans Sigurrós Guð-
mundsson, bæði búsett í Kalí-
fomíu, í Bandaríkjunum. Sigurrós
Guðmundsson, sem er alíslensk,
hefur ekki komið hingað til lands
eftir að hún flutti með fjölskyldu
sinni vestur um haf þegar hún var
fímm ára gömul. Hún er þekkt í
Bandaríkjunum sem þjálfari og
íþróttakona og í 23 ár hefur hún
þjálfað sund, meðal annars var
hún þjálfari keppnisliðsins Viejo,
í Kalífomíu.
„Fólk í fréttum" hitti þau að
máli og byijaði á því að spyrja
Sigurrós hvort hún vissi hversu
margir hafa náð að synda yfir
Ermasundið?
„Yfír 4000 manns hafa reynt við
þetta sund en aðeins tæplega 400
hafa komist alla leið. Eins og allir
vita eru ýmsar hættur því samfara
að synda langar vegalengdir í
köldum sjó og þurfa sundmennim-
ir að vera í gífurlega góðri æfíngu
og hafa góða heilsu, enda eru þeir
undir eftirliti lækna fyrir sundið.
Þeir sem em undir þrítugu fara í
John York og Sigurrós Guðmundsson.
almenna læknisskoðun en eldri
sundmenn þurfa að fara í öllu
nákvæmari skoðun og meðal ann-
ars í röntgenmyndatökur" segir
Sigurrós.
—En hvemig voru skilyrðin fyr-
ir sundið? „John tók beina stefnu
frá Englandi til Frakklands. Ekki
vom vindar og veður honum hag-
stæð í byijun, fyrstu fjóra tímana
var talsverður öldugangur í 15
stiga köldum sjó, og fjölmörg skip
á leiðinni sem þurfti að sveigja
fram hjá og lengdi það leiðina
mjög. En við vomm mjög heppin
seinni hluta sundsins."
Morgunblaðið/RAX
Einar Guðjónsson stendur hér við gamaldags afgreiðsluborðið, en auk kaffisopans er ýmislegt
meðlæti á boðstólum.
REYKJAVÍK
Eina „bókakaffið“ sinnar tegnndar
ÆT
I hjarta borgarinnar, við Garðastræti, er að fínna
" svokallað „bókakaffí". Þetta er lítil blaða- og bóka-
verslun sem selur dagblöð og ýmis fréttatímarit frá
helstu jaðarsvæðum Evrópu og frá Bandaríkjunum. Á
veggjum hanga myndir eftir ýmsa listamenn íslenska,
og oft á tíðum mæta þangað tónlistarmenn og spila
fyrir frétta- og kaffíþyrsta.
Þetta bókakaffí hefur verið starfrækt í tæpt ár,
og er Einar Guðjónsson „forstjóri" þessa reksturs, og
dreifingaraðili fjölmargra heimsblaða. Blöðin koma
flest samdægurs, og em á svipuðu verði og íslensk
dagblöð. Ýmis fagtímarit, til að nefna um tískuhönn-
un, ljósmyndun og arkitektúr, er hægt að kaupa eða
fá lánuð, og einnig er hægt að panta þar Ijóðabækur
eftir „neðanjarðarskáldin" íslensku.
„Okkur langaði til þess að hleypa lífí í götuna, og
hef ég enga sérstaka fyrirmynd að þessari starfs-
semi“ segir Einar Guðjónsson í samtali við „Fólk í
fréttum". „Við sinnum sérþörfum ólíkra hópa og hing-
að slæðist daglega allskonar fólk til þess að kaupa
heimspressuna og koma til dæmis Finnar, Pólveijar,
ítalir eða Spánveijar og kíkja í sín blöð“.
Það var nóg að gera hjá fulltrúum heimspressunn-
ar, og var verið að setja upp sýningu á málverkum
Margrétar Lóu, sem betur er þekkt fyrir ljóðagerð.
Nokkrir viðskiptavinir komu inn úr kuldanum og skun-
duðu út aftur með glæný blöð undir arminum, aðrir
sátu sem fastast, grúfðu sig yfír prentaðan pappírinn
og dmkku í sig heimsfréttir með ilmandi kaffínu.
—Hver var þáttur þíns sem
þjálfara meðan hann synti? „Ég
'gaf honum merki þegar hann átti
að drekka sykurvatn, en sjálf var
ég á bát við hlið Johns, ásamt vin-
um hans, og sendum við honum
hvatningarorð skrifuð á stómm
borða. Eins og gefur að skilja
þarf að fylgjast vel með sundinu,
enda er alltaf hætta á því að sund-
maður verði sjóveikur eða missi
meðvitund mjög snögglega, og það
hefur komið fyrir að menn hafí
dáið á sundi, jafnvel þó að fylgst
sé með þeim.“
—Eni hve lengi hefur hún þjálfað
John? Ég hef þjálfað hann frá því
að hann var níu ára gamall, og
tíu ára fór hann fyrst að sýna
áhuga á að synda í sjó. Það var
aldrei vafí á því að hann væri
betri í sjó en sundlaug og hann
er bestur í löngum vegalengdum.
Hann er vel byggður, og er alger
„náttúmtalent"
—John, hefur þú synt lengri
vegalengd í einu en þessa 40 kíló-
metra? „Já, lengsta vegalengd sem
ég hef áður synt var yfír sund við
Catalena eyju í Kalífomíu árið
1979, og fram og til baka var
vegalengdin um 80 kílómetrar, en .
við mun betri aðstæður en núna.
Enda er veður ekki eins óútreikn-
anlegt þar og við Englandsstrend-
ur.“
—Hversu ströng var æfíngin
fyrir þetta sundafrek? „Ja, frá
þrettán ára aldri hefur mig dreymt
um að synda yfír Ermasundið.
FYrir ári síðan hóf ég að æfa fjóra
tíma daglega með það að eiginlegu
markmiði að synda yfír Ermasund-
ið.“
Morgunblaðið/Bjarni
—En John, hvemig leið þér
þennan óratíma niðri í köldu vatn-
inu, varstu aldrei að því kominn
að gefast upp? „Ég óskaði auðvit-
að öldunum veg allrar veraldar en
það hvarflaði aldrei að mér að
hætta við. Þetta var draumur sem
ég hafði einsett mér að láta ræt-
ast, mér varð að takast það. Ég
hefði ekkert getað án góðrar þjálf-
unar, en 90% styrksins er máttur
viljans, held ég“.
—Og þegar þú svo náðir strönd
Frakklands, fæ ég að vita hvað
þú varst að hugsa þá? „Já, mér
fannst þetta stórkostlegt. Þetta
var mikill sigur. Ég synti ekki
aðeins fyrir mig, heldur einnig
móður mína sem lést á þessu ári.
Hún hafði alla tíð hvatt mig og
gefíð mér þann stuðning sem ég
þurfti. Ég hugsaði um hana“.
—En hvað er næst, hefurðu
kannski þegar sett þér annað
markmið?
„Já, jafnvel. Okkur hefur dottið
í hug að ég synti Ermasundið aft-
ur, og þá fram og til baka. Kannski
læt ég verða af því á næsta ári.“
—Hvað vilt þú segja um það
Sigurrós. Getur hann það? „Já ég
held að hann geti það, hann hefur
ótrúlegan viljastyrk ef hann setur
sér markmið. Hinsvegar er það
mitt að halda honum í góðri þjálf-
un, öðruvísi syndir hann ekki.
langt!
Með þessum orðum þjálfarans
kveðjumst við. En hver veit nema
þau sæki landið okkar heim að
ári, eftir að hafa glímt við Erma-
sundið að nýju. Þetta galvaska
íþróttafólk fer að minnsta kosti
líklegt til enn stærri afreka.
COSPER
■ ■ ■ B |
n ■ ■ ™sa
OPIB
IOQI3 COSPER
—Kastaðu niður lyklinum.
IVIk í
fréttum