Morgunblaðið - 28.09.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988
45
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
il'/itll
F eigðarós vímunnar
Yelvakandi góður.
Ég er með fyrir framan mig
tæplega 12 ára gamalt Morgun-
blað. A þrem síðum er sagt frá fjöl-
mennri ráðstefnu sem Samband
Sjálfstæðiskvenna og Hvöt héldu í
október 1976. Fyrirsögn þessarar
greinar er: „Þjóðfélagsvandamál
sem leiðir böl yfír þúsunda íslenskra
heimila".
A þessa ráðstefnu voru mættir
Jjölmargir góðir og gegnir borgarar
þessa lands, menn sem láta sig
varða vandamál þjóðlífsins og vilja
ekki fljóta sofandi að feigðarósi.
Ráðstefna þessi var um áfengis-
og fíkniefnamál.
Þessir hringdu . .
Sigurlaug Bjamadóttir var þá
formaður Landssambandsins. Hún
var ekki myrk í máli og talaði um
afengið sem skaðvald á heimiiun-
um. Fimm framsöguerindi voru
flutt. Jóhannes Bergsveinsson
læknir var ekki í vafa um að áfeng-
ið væri mest misnotaði vimugjafínn.
Hann sagði áfengisneyslu iðulega
leiða til mikils heilsu- og eignatjóns
og kom með ótal dæmi máli sínu
til stuðnings.
Ingibjörg Benediktsdóttir fulltrúi
í sakadómi skýrði þágildandi áfeng-
islög og taldi að hækka bæri sektir
við áfengislagabrotum. Sagði hún
það umhugsunarvert hversu mikið
væri um ölvun við akstur í
Reykjavík og það ógnaði borgurun-
um. Þáttur ölvunar í innbrotum og
líkamsárásum væri í vexti.
Haukur Kristjánsson yfírlæknir
slysadeildar sagði það vera ugg-
vænlega þróun, hvað konum hefðu
fjölgað áberandi mikið meðal hins
svokallaða útigangsfólks og hann
ræddi einnig um áfengisneysluna
sem tískufyrirbrigði. Þetta allt er
þeim áhyggjuefni sem þurfa að fást
við hjálp og lækningar.
Ásgeir Guðmundsson skólastjóri
ræddi um skemmtanalífíð og áfeng-
ið í því sambandi og hvemig hægt
væri að beina þeirri þróun í heil-
brigðara horf. Halldór Gröndal
sóknarprestur Grensássóknar var
heldur ekki í vafa um að áfengis-
vandinn væri erfíðasti þáttur prest-
starfsins og þama væri kirlq'unni
mikill vandi á höndum.
Um þetta allt urðu svo miklar
umræður sem íjöldi fólks tók þátt
í og fór allur dagurinn í þessa ráð-
stefnu. Voru allir sammála um að
brýna nauðsyn bæri tii að draga
úr vandanum sem af vímunni leiddi.
Neysla áfengis gerði þjóðfélagið
helsjúkt og í kjölfar neyslunnar
sigldu allskonar glæpir og vand-
ræði. „Við þurfum heilbrigt þjóð-
félag“ var tónninn í umræðunum.
Síðan þessi ráðstefna var haldin
hefur ástandið ekki batnað því nú
bætist bjórinn við. Er ekki mál fyr-
ir Landssambandið og Hvöt að efna
til annarrar ráðstefnu um þessi mál
og fá Kvenfélagasambandið og öll
góð félög í landinu til að taka alvar-
lega til hendinni? Ekkert má spara
til að bjarga þeim mannslífum sem
nú velkjast í feigðarósi vímunnar.
Árni Helgason
DULUX
FRÁ
OSRAM
— Ljóslifandi orku-
sparnaður.
- 80% lægri lýsingar-
kostnaður miðað
við glóperu.
S
5 W 1 = 250 Im = 25 W /
7 W = 400 Im = 40 W \
9 W li ■= 600 Im — 60 W
11 W = 900 Im = 75 W
Fimmföld ending ó
við venjulega peru.
Þjónusta í öllum
helstu raftækja-
verslunum og
kaupfélögum.
OSRAM
DULUK 7»
Í Í
tf
Heildsölubirgðir:
JÓHANN ÓLAFSSON & CO.HF.
43 Sundaborg 13 - 104Reykjavík-Sími 688 588
Lyklakippa týndist
Gróa hringdi:
„Fyrir skömmu var ég stödd
í versluninni Útilíf í Glæsibæ
og gleymdi lyklakippunni minni
á búðarborðinu þar. Líklega
hefur einhver viðskiptavinur
tekið hana í misgripum. Á
lyklakippunni er upptakari, 1
bfllykill, 2 húslyklar og 1 póst-
kassalykill. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 76250 kl. 10-18.
Fyrirspurn til
stjórnanda þáttarins
Ugluspegils
Jóhann Guðmundsson
hringdi:
„Sunnudaginn 25. septem-
ber var þátturinn Ugluspegill á
dagskrá Ríkissjónvarpsins. í
lok þáttarins birtist á skjánum,
merki eða teikning af þríhym-
ingi og regnboga. Ég vil koma
á framfæri fyrirspum til stjóm-
anda þáttarins um þetta merki.
Mér þætti fróðlegt að fá vit-
neskju um hvað þetta merki
táknar, hvort einhver félaga-
samtök eigi þetta merki og ef
svo er, hvaða félagasamtök það
eru."
Hulstur af myndavél
í óskilum
Guðrún hringdi:
„Þann 3. september fannst
hulstur af Minolta-myndavél
við Skógarfoss í Rangárvalla-
sýslu. Eigandi getur hringt í
síma 98-78842.“
Ullarkápa tapaðist
Fátæk námsnianneskja
hringdi:
„Föstudagskvöldið 23. sept-
ember var kápan mín tekin í
misgripum á veitingahúsinu
Gauk á Stöng. Kápan er svört
úr ullarefni og er eina skjólflík-
in sem ég á fyrir veturinn. Ég
hef ástæðu til að ætla að það
hafí verið karlmaður sem tók
kápuna í misgripum en það er
þó ekki ömggt. Þetta sama
kvöld var grár frakki skilinn
eftir á Gauknum og hef ég
hann í fórum mínum og vona
að eigandi hans gefí sig fram.
Sá sem veit hvar kápan mín
er niður komin er vinsamlegast
beðinn að hringja f síma
13123.“
Sýndá
öllum
sýningum
Nýjasta mynd
leikstjórans
John Hughes
(Pretty in Pink,
Ferris Buellers Day
off, Planes, Trains
and Automobiles)
Frábær
gamanmynd um
erfiðleika
lífsins
HÁSKÚLABÍÓ
SÍMI 22140
vrjytttiiMaftifo
Metsölublað á hveijum degi!