Morgunblaðið - 21.01.1990, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990
j Tp| i er sunnudagnr 21. janúar, sem er 3. sd. eftir
A Ux\.VJ þrettánda. 21. dagur ársins 1990. Agnesar-
messa. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 1.58 og síðdegisflóð kl.
14.20. Sólarupprás í Rvík kl. 10.40 ogsólarlagkl. 16.39.
Myrkur kl. 17.42. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.39
og tunglið er í suðri kl. 9.04. (Almanak Háskóla íslands.)
Ef þú snýrð þér til hins almátka, auðmýkir þig, ef þú
rekur ranglætið langt burtu frá tjaldi þínu. Biðjir þú til
hans, bænheyrir hann þig, og heit þín munt þú greiða.
(Job. 22,27.)
ÁRNAÐ HEILLA
O p' ára afmæli. í dag,
ÖO sunnudaginn 21. jan-
úar, er 85 ára Friðrikka
Bjarnadóttir vistmaður á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún
ætlar að taka á móti gestum
í samkomuhúsinu Garðaholti
í Garðabæ kl. 15-19 í dag,
afmælisdaginn.
PO áraafmæli. Á morgun,
OU mánudaginn 22. þ.m.,
er sextug frú Kristín Ingi-
björg Benediktsdóttir,
Esjugrund 28, Kjalarnesi.
Foreldrar hennar sem eru
látnir voru Björg Einarsdóttir
og Benedikt Jónsson. Maður
hennar er Kristþór Borg
Helgason skipasmíðameist-
ari. Hún verður að heiman á
afmælisdaginn.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
ÞENNAN dag árið 1895
fæddist Davíð skáld Stefáns-
son frá Fagraskógi. Og
þennan dag árið 1932 var
Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis stofnaður.
í DAG er Agnesarmessa.
„Messa til minningar um róm-
versku stúlkuna Agnesi, sem
talið er að hafi dáið píslar-
vættisdauða í Róm um 300
e. Kr.“, segir í Stjömu-
fræði/Rímfræði.
FRÍMERKI. í Lögbirtinga-
blaðinu tiik. Póst og síma-
málastofnunin að næsta
frímerkjaútgáfa komi út í
næsta mánuði. Verði útgáfu-
dagur 15. febrúar. Þá koma
út tvö frímerki að verðgildi
21 króna og 80 krónur. Sama
dag kemur einnig út frí-
merkja hefti með 16 frímerkj-
um. Eru 8 að verðgildi 5 kr.
og átta að verðgildi 21 króna.
Myndefni frímerkjanna eru
landvættimar fjórar í skjald-
armerki íslands.
SAKADÓMARAEMB^TT-
IÐ. í tilk. í Lögbirtingi frá
dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu segir að Júlíus
Georgsson lögfræðingur,
hafí verið skipaður aðalfull-
trúi við sakadómaraembættið
hér í Rvík. Hafí hann verið
skipaður frá 1. nóv. á síðasta
ári.
FÉL. Snæfellinga og Hnapp-
dæla í Reykjavík heldur árs-
hátíð sína laugard. 10. febrú-
ar nk. í Goðheimum, Sigtúni
3.
SELJAKIRKJA. Bama- og
æskulýðsstarf: Fundur hjá
KFUK á morgun, mánudag,
yngri stúlkur kl. 17.30 og
eldri kl. 18.30. Fundur í
Æskulýðsfélaginu Sela
mánudagskvöld kl. 20.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 hrósaði, 5
járni, 8 rándýr, 9 fingur, 11
staurs, 14 hleypt, 15 á, 16
peningar, 17 málmur, 19
tungls, 21 brosa lítið eitt, 22
afkvæmunum, 25 ber, 26
púka, 27 keyri.
LÓÐRÉTT: — 2 heiðurs, 3
ganga upp og niður, 4 með
fúkyrði, 5 fískurinn, 6 geisla-
hjúpur, 7 virði, 9 breidd, 10
sjófuglinum, 12 síma, 13 urg-
aði, 18 innyfli, 20 flan, 21
kvað, 23 aðgæta, 24 fmm-
efni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 málfar, 5 svalt, 8 feiti, 9 aldan, 11 áttan,
14 gil, 15 megni, 16 móann, 17 róa, 19 naum, 21 Ástu, 22
nálgast, 25 kúa, 26 áar, 27 afa.
LOÐRÉTT: — 2 áll, 3 afa, 4 rengir, 5 stálma, 6 vit, 7 lóa,
9 almanak, 10 dugguna, 12 trausta, 13 nunnuna, 18 ólga,
20 má, 21 ás, 23 lá, 24 ar.
Það er aldeilis viðhöfii. Er Stöðin orðin svona rík? Nei, nei. Hún skuldar svona mikið.
ÁRBÆJARKIRKJA. Æsku-
lýðsfundur í kvöld, sunnudag,
kl. 20.
FELLA- og Hólakirkja.
Æskulýðsfundur mánudags-
kvöld. kl. 20.30.
SELTJARNARNES-
KIRKJA. Æskulýðsfundur
mánudagskvöld kl. 20.
FUGLAVERNDARFÉL. ís-
lands heldur fræðslufund
annað kvöld, mánudaginn 22.
þ.m., í Odda, húsi hugvísinda-
deildar Háskólans, stofu 101
kl. 20.30. „Fuglar hafs og
nætur“ verður viðfangsefni
fundarins. „Erpur Snær
Hansen og Jóhann Óli
Hilmarsson segja frá hinum
leyndardómsfullu fuglum sæ-
svölu og skrofu, sem þeir
hafa rannsakað og munu
segja frá ýmsu í senn
skemmtilegu og fróðlegu.
Fyrirlesaramir sýna myndir
úr safni sínu, segir í frétta-
tilk. frá Fuglaverndarfélag-
inu.
FÉL. eldri borgara. í dag,
sunnudag, er opið hús kl. 14
í Goðheimum við Sigtún.
Frjálst spil og tafl. Dansað
verður kl. 20.
ÍSLENSKA málfræðifélag-
ið efnir til almenns fundar
nk. þriðjudag í Odda, stofu
101, og hefst hann kl. 14.
Fyrirlesari á fundinum verður
Kjartan Ottósson og nefnir
hann fyrirlesturinn: Breyting-
ar á persónubreytingu mið-
myndar: Málkerfisbreyting-
ar í félagslegu samhengi.
LÆKNINGALEYFI. í tilk.
frá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu í Lögbirt-
ingabíaðinu segir að það hafi
veitt þessum læknum leyfi til
að stunda almennar lækning-
ar hérlendis: cand.med. et
chir. Hans Gunnari Erlends-
syni, cand.med. et chir.
Gunnari Kristni Guð-
mundssyni og cand.med et
chir. Guðmundi Sigþórs-
syni.
ITC-deildin Ýr heldur opinn
fund annað kvöld kl. 20.3)3 í
félagsheimili frímerkjasafn-
ara í Síðumúla 17. Fræðsla
fer fram um tillöguflutning í
umsjá SólveigarÁgústsdóttur
ritara landssamtakanna. Þær
Kristín, s. 35149, eða Pálína
gefa nánari uppl.
KJALARNESHREPPUR.
Hjá skipulagi Kjalarnes-
hrepps, segir í tilk. í Lög-
birtingi, frá sveitarstjóra
hreppsins og skipulagsstjóra.
Skipulagstillagan nær yfír
alla núverandi byggð og fyrir-
hugaða á tímabilinu 1990 til
ársins 2010. Er tillagan til
sýnis ásamt greinargerð í
skrifstofu hreppsins í Fólk-
vangi, fram til 28. febrúar
nk. Athugasemdir, sem fram
kunna að koma, skulu hafa
borist í hreppsskrifstofu fyrir
14. mars næstkomandi, segir
í tilk.
ITC-deildin Kvistur heldur
fund annað kvöld, mánudag
kl. 20 í Holiday Inn veitinga-
húsinu. Nánari uppl. gefur
Þóra s. 627718.
SAMTÖK um sorg og sorg-
arviðbrögð hafa opið hús í
safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju nk. þriðjudagskvöld 23.
þ.m. kl. 20.30. Á sama tíma
eru veittar uppl. og ráðgjöf í
s. 34516.
SKIPIN______________
REYK JAVÍKURHÖFN:
Á morgun, mánudag, eru
væntanleg að utan: Laxfoss,
Dísarfell og Árfell.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í gær lagði togarinn
Víðir af stað í söluferð. í
kvöld fer Ljósafoss á strönd-
ina og í dag er væntanlegt
súrálsskip til Straumsvíkur.
Það er búið að vera nokkuð
lengi á leiðinni hingað vegna
storma.
ERLENDIS:
1606: Enska þingið dæmir
rómversk-kaþólska menn í
þungar sektir.
1769: Útgáfu „Bréfa Junius-
ar“ hefst.
1772: Útgáfa „Bréfa Junius-
ar“ hætt.
1793: Loðvík XVI Frakka-
konungur hálshöggvinn.
1907: Bretar viðurkenna í
fyrsta sinn tilveru leigubif-
reiða.
1919: Þing Sinn Fein í Dyfl-
inni samþykkir sjálfstæðis-
yfírlýsingu.
1924: Fyrsta þing kínverskra
kommúnista samþykkir þátt-
töku kommúnista og fagnar
sovézkum ráðunautum.
1924: Lenín, byltingarleið-
togi, látinn.
1936: Játvarður VIII lýstur
konungur Stóra-Bretlands.
1942: Afríkuher Rommels
hefur nýja sókn í vestureyði-
mörkinni.
1949: Chiang Kai-shek for-
seti segir af sér í Kína eftir
ófarir þjóðernissinna.
1950: George Örwell látinn.
ÞETTA GERÐIST
21.janúar
1962: Búlgarskur herflug-
maður brotlendir á Suður-
Ítalíu og biður um hæli.
1970: Sala á frönskum
Mirage-herþotum til Líbýu
kunngerð — Byltingartilraun
kæfð í fæðingu í írak og 12
líflátnir.
1976: Bretar og Frakkar taka
hljóðfráa Concorde-þotu í
notkun á leiðum frá London
til Bahrain og frá París til
Rio de Janeiro.
HÉRLENDIS:
1231: Jón Snorrason murtur
látinn.
1320: Árni biskup Helgason
í Skálholti látinn.
1828: Kambránsmenn dæmd-
ir.
1886: Bergur Thorberg
landshöfðingi látinn.
1904: dr. Jón Þorkelsson lát-
inn.
1944: Bréf Sveins Björnsson-
ar til forseta Alþingis um
kosningu þjóðfundar.
1895: D'avíð Stefánsson frá
Fagraskógi fæddur.
1917: Jón úr Vör fæddur.
ORÐABÓKIN
Innprenta - innræta
Snemma í. þessum mán-
uði rakst ég á þessa máls-
grein í dagblaði: „Ólafur er
að reyna að innprenta fólki,
að það séu „hinir róttæku",
sem séu að láta undan síga
í Austur-Evrópu." Hér
staldraði ég við so. að inn-
prenta. Heldur hefur verið
amazt við því í rituðu máli,
þar sem það er nær óbreytt
danska so. at indprente, sem
merkir að innræta e-m e-ð,
brýna e-ð fyrir e-m, koma
e-m á e-a skoðun. Ekki tók
Blöndal það upp í orðabók
sína og ekki komst það held-
ur í Viðbæti þeirrar bókar
1963. Hins vegar er það í
Orðabók Menningarsjóðs
frá því ári án nokkurrar
athugasemdar um erlendan
uppruna. Vafalítið hefur so.
að innprenta borizt inn í
íslenzku með dönskum emb-
ættismönnum fyrr á öldum.
Elzta dæmið í OH er frá því
fyrir miðja 18. öld og mörg
önnur dæmi eru frá sömu
öld og síðan. Henni bregður
fyrir í ritum Halldórs Lax-
ness á nokkrum stöðum,
t.d.: „það er þetta sem verð-
ur að innprenta okkar börn-
um.“ No. innprentun kemur
ekki fyrir í prentuðum ísl.
orðabókum, en eitt dæmi
er í OH frá síðustu árum
18. aldar. I stað so. að inn-
prenta má að jafnaði nota
so. að innræta og svo no.
innræting, þegar það á við.
- JAJ