Morgunblaðið - 12.07.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1991
19
Tónleikar í Viðey;
Leikið á hljóðfæri sem
til voru í Viðeyjarstofu
TONLEIKAR verða haldnir í Viðey næstkomandi sunnudag, 14. júlí.
Leikin verður tónlist frá síðustu öld á langspil, flautu og orgel.
Þessi hljóðfæri voru öll til í Viðey í upphafi síðustu aldar, á tíma
er hljóðfæraeign landsmanna var fábreytt. Þá mun Dómkórinn synga
við Viðeyjarstofu ef veður leyfir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Marteinn H. Friðriksson dómorganisti, Magnea Árnadóttir flautuleik-
ari og Ólafur Kjartan Sigurðsson, sem leikur á langspil, munu flylja
tónlist frá tímum Magnúsar Stephensen í Viðeyjarkirkju.
Dómkórinn mun hefja söng sinn
við Stofuna kl. 13.30. Kóriníi er á
leið á kóramót á Spáni og eru þetta
síðustu tónleikar hans áður en hann
heldur utan. Sungin verða íslenzk
og erlend þjóðlög.
Kl. 14.15 hefjast tónleikar í Við-
eyjarkirkju, þar sem þau Marteinn
Hunger Friðriksson, Magnea Árna-
dóttir og Ólafur Kjartan Sigurðsson
munu leika tónlist frá síðustu öld á
Rafmagnsveita Reykjavíkur:
30 millj. króna hagnaður í fyrra
Afgjald til borgarinnar 226,2 milljónir króna
RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur var rekin með 29,5 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári. Er þar um að ræða bætta afkomu frá árinu
1989 en þá var tap á rekstri fyrirtækisins upp á 99,4 milljónir
króna. Hagnaður af reglulegri starfsemi var á árinu 255,7 milljónir,
en frá þeirri upphæð er dregið afgjald til borgarsjóðs að upphæð
226,2 milljónir króna, sem er 2% af hreinni eign fyrirtækisins.
Guðjón, að meðalverð á raforku
hafi farið lækkandi á undanförnum
árum og hafi það til dæmis lækkað
um 3,75% að raungildi frá 1984.
orgel, flautu og langspil. Þetta eru
hljóðfærin, sem til voru á heimili
Magnúsar Stephensen, konferenz-
ráðs, sem bjó í Viðey á nítjándu
öld. Mikið var leikið á hljóðfærin í
Viðeyjarstofu, en hljóðfæraeign
landsmanna þótti fábreytt i þá
daga. Á undan tónleikunum í kirkj-
unni verður hugleiðing um tón-
listarflutning á heimili Magnúsar
Stephensen.
Á eftir tónleikunum í kirkjunni
mun Dómkórinn syngja aftur við
Stofuna. Að söngnum loknum verð-
ur boðið upp á staðarskoðun, sagt
frá sögu eyjarinnar og náttúru og
gengið um hlaðið við Viðeyjarstofu.
Gestum og gangandi verður einnig
boðið far með léttikerru frá síðustu
öld eftir því sem aðstæður leyfa.
Veitingar er hægt að fá í Viðeyjar-
stofu frá fimmtudegi til sunnudags
og í Viðeyjarnausti frá mánudegi
til miðvikudags.
Samkvæmt ársreikningi Raf-
magnsveitunnar voru rekstrartekj-
ur á árinu 1990 samtals 2.721,2
milljónir króna en rekstrargjöld
2.516,2 milljónir. Tekjur fyrirtækis-
ins vegna vaxta og verðbóta voru
111,9 milljónir, fenginn arður 31,2
milljónir en reiknuð áhrif verðlags-
breytinga leiddu til gjaldfærslu upp
á 92,4 milljónir. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi Rafmagnsveitunnar
var því 255,7 milljónir króna, en
frá þeirri upphæð er dregið 2% af-
gjald til borgarsjóðs að upphæð
krónur 226,2 milljónir þannig að
hagnaður ársins var 29,5 milljónir
króna.
Samkvæmt ársreikningi Raf-
magnsveitunnar skiptust útgjöld
þannig í meginatriðum að orkukaup
voru rúmlega 50% útgjaldanna,
launakostnaður tæp 15%, eigna-
breytingar rúm 14%, afgjaldið til
borgarinnar 8% og ýmis rekstrar-
kostnaður tæp 13%. Skuldir fyrir-
tækisins námu í árslok 366,3 millj-
ónum króna en eigið fé var 16.485
milljónir króna.
Að sögn Guðjóns Ó. Sigurbjarts-
sonar, fjármálastjóra Rafmagn-
sveitunnar, var afkoman í fyrra
betri en árið þar á undan, en þá
hefði tap af rekstri fyrirtækisins
numið 99,4 milljónum. Hann segir
nauðsynlegt fyrir það að skila hagn-
aði til að unnt sé að stækka dreifi-
kerfi þess. Nú sé unnið að því end-
urnýja kerfið og auka öryggi þess
og á síðasta ári hafi verið varið til
slíkra fjárfestinga 398 milljónum
króna á verðlagi í árslok. Miðað sé
við að veija sambærilegri upphæð
í þessu skyni á árinu, sem nú er
að líða, en til samanburðar megi
geta þess, að á árinu 1986 hafi
þessi upphæð verið 120 milljónir á
verðlagi í árslok í fyrra.
Guðjón segir að bætt staða Raf-
magnsveitunnar á síðasta ári skýr-
ist ekki síst af því, að reiknuð áhrif
verðlagsbreytinga komi betur út en
talið hafi verið og að gjaldskrá fyrir-
tækisins til neytenda hafi hækkað
meira en sem nam hækkun á orku-
verði Landsvirkjunar. Munurinn á
þessum gjaldskrám hafi verið orð-
inn helst til of lítill á síðasta ári en
í ár sé ekki ætlunin að hækka gjald-
skrá Rafmagnsveitunnar umfram
hækkanir hjá Landsvirkjun. Segir
Sumartónleikar í Skálholtskirkju:
Dagskrá með Kar-
ólínu og Kolbeini
ONNUR helgi Sumartónleika í Skálholtskirkju verður dagana 13.
og 14. júlí. Flutt verða einleiks- og kammerverk eftir Karólínu
Eiríksdóttur ásamt einleiksverkum fyrir flautu eftir I. Yun, Atla
Heimi Sveinsson og M. Lavista. Á tónleikum helgarinnar verður
frumflutt sembalverk eftir Karólínu Eiríksdóttur er nefnist Vorvlsa.
Þetta verk er sérstaklega samið fyrir Helgu Ingólfsdóttur semballeik-
ara og Sumartónleika í Skálholtskirkju. Einnig verður flutt í fyrsta
sinni hér á landi verkið Hringhenda fyrir klarinett. Verkið var sam-
ið fyrir Einar Jóhannesson 1989 og flutt í Svíþjóð sama ár.
Að venju verða tónleikar kl. 15
og 17 á laugardag og kl. 15 á
sunnudag. Fluttar verða tvær ólíkar
dagskrár. Á tónleikunum á laugar-
dag kl. 15 verða flutt einleiks- og
kammerverk eftir Karólínu Eiríks-
dóttur: Hringhenda fyrir klarinett,
Hvaðan kemur lognið? fyrir gítar,
Vorvísa fyrir sembal og Sumir dag-
ar fyrir sópran, flautu, klarinett,
selló, gítar og sembal. Sumir dagar
hafa verið umskrifaðir fyrir Sumar-
tónleika í Skálholtskirkju, þ.e. í stað
Aðalskipulag Flateyjar:
Sættir takast í deilum
TILLAGA að aðalskipulagi Flat-
eyjar á Breiðafirði hefur verið
auglýst að nýju en miklar deilur
urðu um skipulagstillögu, sem
auglýst var á síðasta ári, á milli
hreppsnefndar Reykhólahrepps
og Framfarafélags Flateyjar, en
það er félagsskapur nokkurra
eigenda og forráðamanna hús-
eigna og lóða í Flatey. Ólafur
Jónsson stjórnarmaðuf í Framf-
arafélaginu, segir að sæmilegar
sættir hafi náðst í málinu þó fé-
lagsmenn séu ekki ánægðir við
allar breytingar sem gerðar hafa
verið á skipulaginu.
Hreppsnefnd Reykhólahrepps
samþykkti tillögu að nýju aðal-
skipulagi fyrir Flatey á síðasta ári
en gerði síðar breytingar á tillög-
unni, sem Framfarafélagið taldi að
væru ekki byggðar á innsendum
athugasemdum, heldur óskum ábú-
enda í eynni og fulltrúa þeirra á
hreppsnefnarfundum. Mótmælti fé-
lagið því harðlega. Athugasemdir
félagsins beindust m.a. að því að
göngustígar um ríkislandið hefðu
verið aflagðir að mestu, almenning-
ur skertur og byggðasafn aflagt i
almenningi.
Vegna þessa ágreinings um af-
greiðslu tillögunnar tókst ekki að
staðfesta tillöguna í Skipulags-
stjórn ríkisins. Einnig var deilt um
fyrirhugaðar byggingar Reykhóla-
hrepps í Flatey og úthlutun sumar-
bústaðalóða og byggingarsvæða
fyrir samþykkt og staðfestingu að-
alskipulagsins.
í síðasta mánuði fór stjórn
Framfarafélagsins sérstaka sátta-
ferð út í Flatey ásamt öðrum sátta-
nefndarmönnum, sem til voru
nefndir, til að ræða vtö ábúendurna
tvo í eynni, að sögn Ólafs. Annar
ábúandinn bauðst þar til að leyfa
lagningu göngustíga um land sitt.
„Þá var talið að sættir hefðu náðst
um að beina athyglinni að því sem
menn gætu verið sammála um og
láta annað liggja á milli hluta,“
sagði Ólafur.
I kjölfar þessa hefur skipulags-
stjóri ríkisins ákveðið að auglýsa
tillögu að nýju aðalskipulagi upp á
nýtt og er þar tekið tillit til sjónarm-
iða beggja aðila. „Almenningurinn
er þó ennþá skertur og það er mið-
ur. Það varðar hagsmuni ferða-
manna, Ferðamálaráðs, Náttúru-
verndarráðs og fleiri aðila. En ef
þessir aðilar hafa ekki áhuga á
verndun hagsmuna hins almenna
borgara mun Framfarafélagið ekki
gera það að deiluefni við ábúendur
í eynni. Við munum einbeita okkur
að verndun og lagfæringum í gamla
þorpinu í Flatey og aðeins andmæla
tillögum sem víkja frá því skipulagi
sem skipulagsarkitekt lagði fyrir á
sínum tíma,“ sagði Ólafur.
Athugasemdum við auglýsta
skipulagstillögu ber að skila til
sveitarstjóra Reykhólahrepps fyrir
6. september.
píanós áður er sembal og gítar nú.
Flytjendur einleiks- og kammer-
verkanna eru Signý Sæmundsdótt-
ir, sópran, Kolbeinn Bjarnason,
flauta, Einar Jóhannesson, klarin-
ett, Einar Kristján Einarsson, gítar,
Sigurður Halldórsson, selló, og
Helga Ingólfsdóttir, sembal.
A tónleikunum á laugardag kl.
17 eru einleiksverk fyrir flautu leik-
in af Kolbeini Bjarnasyni. Verkin
sem flutt verða eru Sori og Etýða
nr. 1 og 4 eftir I. Yun, Lethe eftir
Atla Heimi Sveinsson og Canto del
Alba eftir M. Lavista. Úrval úr efn-
isskrám laugardags verður flutt á
sunnudagstónleikum kl. 15. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis
og öllum heimill.
Messað verður í Skálholtskirkju
á sunnudaginn kl. 17. Séra Guð-
mundur Óli Ólafsson predikar en
organisti er Hilmar Öm Agnarsson.
Flutt verða tónverk úr dagskrám
helgarinnar við guðsþjónustuna.
Sætaferðir eru frá Umferðarmið-
stöðinni.
Tvö imgmenni ákærð
fyrir rán og manndráp
RÍKISSAKSÓKNARI hefur höfðað mál fyrir sakadómi Hafnarfjarð-
ar á hendur tveimur ungmennum, sautján ára pilti og fimmtán ára
stúlku, fyrir að hafa orðið Úlfari Úlfarssyni að bana í húsasundi við
Bankastræti aðfaranótt 3. marz síðastliðins. Ákæran hefur verið
birt sakborningum og verður málið væntanlega þingfest næstkom-
andi þriðjudag.
Pilturinn er ákærður fyrir mann-
’dráp, samkvæmt 211. grein al-
mennra hegningarlaga, en til vara
fyrir alvarlega líkamsárás, sam-
kvæmt 218. grein laganna. Brot,
sem telst varða við fyrri greinina,
getur varðað allt að ævilöngu fang-
elsi, en brot á þeirri síðarnefndu
allt að 16 ára fangelsi. Vegna ungs
aldurs piltsins má þó ekki dæma
hann í lengra fangelsi en til átta
ára. Stúlkan er ákærð fyrir sama
brot, en ekki talin beinn þátttak-
andi í verknaðinum, heldur hlut-
deildarmaður piltsins. Það getur því
komið til léttingar refsingunni,
samkvæmt 22. grein hegningarlag-
anna.
Bæði ungmennin eru einnig
ákærð fyrir rán, en þau hafa játað
að hafa stolið veski Úlfars heitins
og tekið úr því peninga. Einnig ját-
uðu þau að hafa ráðizt á annan
mann skammt frá þeim stað, sem
Úlfari var ráðinn bani, og rænt af
honum peningum.
Pilturinn situr nú í gæzluvarð-
haldi. Stúlkunni hefur hins vegar
verið komið í forsjá austur í sveit-
Tlutcuicv
Hcílsuvörur
nútímafólks
francrtal
REGNFATNABUR
VATNSHELDUR OG ANDAR
JAKKI
FRÁ KR. 8.980
BUXUR
FRÁ KR. 6.990
VELJIÐ AÐEINS ÞAÐ BESTA.
ALLT ANNAÐ ER
MÁLAMIÐLUN