Morgunblaðið - 12.07.1991, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1991
„ópegiUinn ereJdci brötínn; þetta, er
hnojctónn, cJ þéh "
Með
morgunkaffmu
Ég var að tala við forstjór-
ann. Hvort á ég að ráða
þig eða reka?
NOTIÐ BÍLBELTIN
Ég vil koma á framfæri ábend-
ingu vegna fjolda símhringinga til
okkar hjá Umferðarráði. Það er
hringt hingað mörgum sinnum á
dag og kvartað yfir að börn sitji
laus í bílum. Einkum er þá um að
ræða börn sem vaxin eru upp
úr barnabílstólum.
En þessi börn eiga að nota belti.
I umferðarlögum er kveðið skýrt
á um það að hverjum þeim sem
situr í sæti þar sem bílbelti er fyr-
ir hendi sé skylt að nota það. Böm
yngri en 6 ára geta notað bamabíl-
stól eða barnabílbelti og þegar þau
vaxa upp úr því eiga þau að nota
venjuleg bílbelti. Undir engum
kringumstæðum eiga börn að
standa í bílum.
Undanfarið hefur verulega
dregið úr slysum á bömum í um-
ferðinni og hefur sú þróun haldist
í hendur við aukna bílbeltanotkun.
Ég get varla orða bundist yfir
skrifum ísaks Stefánssonar í Vel-
vakanda s.l. þriðjudag. Mér finnst
frásögn hans sýna hvað framkoma
hans sjálfs gagnvart börnum sé
ruddaleg. Einnig finnst mér alhæf-
ingar hans út frá þessu litla atviki
alveg fráleitar.
ísak gat vel beðið börnin sem
voru að flækjast á lóð hans kurteis-
lega að fara í stað þess að segja
þeim að hypja sig. Ég hef átt þó
nokkur samskipti við börn og veit
að það er afar sjaldgæft að þau
Hins vegar bendir þessi fjöldi af
ábendingum út af lausum börnum
í bílum til að annað tveggja sé að
aukast aftur að börn séu laus í
bflum eða þá að almenningur er
orðinn meðvitaðri um nauðsyn þess
Lánasjóður íslenskra náms-
manna (LÍN) hefur nú sem oft
verið til umræðu og oft verið kvart-
að undan því hve seint námslán
væra afgreidd eða hve illa gengi
að fá þá þjónustu sem slík stofnun
ætti að gefa.
Ég vil bara fyrir hönd margra
sem ég þekki koma á framfæri
kæru þakklæti fyrir frábæra þjón-
gegni ekki sé farið að þeim með
góðu. Auðvitað eru til undantekn-
ingar á þessu. Hins vegar er alveg
jafn algengt að fullorðnir sýni
börnum yfirgang og frekju, t.d. í
biðröðum í búðum.
Það hefur alltaf verið til sviðs
að kvarta sáran yfir unga fólkinu.
Það var líka gert þegar ég var
ung. Hins vegar er ég á þyí að
unga fólkið í dag sé blómstrandi
af væntumþykju og glæsileik og
gefi þeim sem eldri era síst eftir.
Sigríður Jóna Clausen
að reglum um bílbelti sé fylgt. Ég
vona að það sé hið síðarnefnda.
Höfum beltin spennt.
Margrét Sæmundsdóttir,
Umferðarráði
ustu og nauðsynlega aðstoð á
margan hátt á sl. áram. Alltaf var
staðið við það sem lofað hafði verið.
LIN er því á margan hátt vel
rekið þjónustufyrirtæki sem á
margan hátt mætti taka til fyrir-
myndar.
Lán hafa alla tíð verið afgreidd
á réttum tíma, og á allan hátt
verið vel að slíkri fyrirgreiðslu
unnið.
í dag er það líka hreint og beint
gaman að koma á skrifstofu LÍN,
og sjá hve allt er vel skipulagt,
opnunartímar vel skilgreindir, öll
pappírsvinna og skjöl sem þarf að
útfylla verið einfölduð og auðvelt
að geta spurt þeirra spurninga sem
mörg þúsund námsmenn þurfa að
spyija, og fá greinargóð svör.
Allt tal um hlutverk LÍN, aðal-
lega af hálfu þeirra sem ekkert
þekkja til þeirrar stofnunar, eftir
að undirritaður og mjög margir
aðrir hafa notið góðrar og skil-
virkrar þjónustu LIN í nokkur ár,
lítur maður á sem vott um þekk-
ingarleysi á svpna mikilvægri
stofnun eins og LIN er fyrir mörg
þúsund íslenska námsmenn hér-
lendis sem erlendis.
11265-3189
Músalína týnd
Grábröndótt ársgömul læða
hvarf frá Miklubraut 40 á
þriðjudag. Hún er merkt : Mú-
sólína. Þeir sem verða varir við
hana hringi í síma 19425 eða
11449. Fundarlauna heitið.
Börn eru besta fólk
Góð þjónusta LÍN
HOGNI HREKKVISI
Víkveiji skrifar
Lagfæringarnar á norðurbakka
Tjarnarinnar eiga eflaust eftir
að verða fegurðarauki, ef jafnvel
tekst upp og þegar austurbakkinn
var endurgerður. Víkveiji sér hins
vegar eftir gömlu ísbryggjunni, sem
nú hefur verið rifin. Bryggjan hafði
tvímælalaust sögulegt gildi og var
aukinheldur fallega hlaðin og vel
til þess fallin að standa á henni og
gefa öndunum. Skrifari sá í blaði
að Sigurður Skarphéðinsson að-
stoðargatnamálastjóri lét hafa eftir
sér að þetta hefði verið vegna
„mannlegra mistaka", gleymzt
hefði að segja verktakanum að ekki
mætti rífa bryggjuna. „Mannleg
mistök“ er eitthvert tízkuhugtak
úr stofnanamáli, sem oft er notað
til að breiða yfir það sem hlutirnir
heita í raun og veru. Svona lagað
heitir annaðhvort klúður eða aula-
skapur, og á ekki að eiga sér stað
við opinberar framkvæmdir.
Reykjavíkurborg - eða, umræddur
verktaki - ættu að sjá sóma sinn
í að endurhlaða ísbryggjuna til að
bæta fyrir „mannlegu mistökin".
XXX
Mikið getur álit manna á einu
bóndabýli breytzt eftir því
frá hvaða sjónarhorni þeir sjá það.
Eftir að hluti þjóðvegarins um
Blönduhlíð var færður niður á eyr-
arnar við Héraðsvötn hafa Silfra-
staðir öðlazt alveg nýja ímynd í
huga Víkveija. Aður lá þjóðvegur-
inn að húsabaki, en nú blasa kirkj-
an sérkennilega og reisulegt íbúðar-
hús við uppi í hlíðinni þegar ekið
er framhjá og bærinn fær á sig
þann svip höfuðbóls, sem hann á
skilinn.
XXX
Yíkveiji hefur áður kvartað und-
an símaþjónustu Háskóla ís-
lands. Það er ástæða til að hnykkja
á þeirri gagnrýni, því að símaþjón-
ustan hjá þeirri annars ágætu stofn-
un er gjörsamlega fyrir neðan allar
hellur. Víkverji þarf oft að hafa
samband við ýmsar deildir og stofn-
anir Háskólans. Oftar en ekki
hringir út þegar hringt er í aðal-
númer Háskólans. Ef svo vill til að
þar er svarað, er sjaldgæft að símta-
lið lendi á réttum stað í stofn-
uninni. Víkveiji hefur brugðizt við
þessu með því að koma sér upp
dálitlum lista yfir innanhússíma í
Háskólanum, sem má hringja í
beint, en hann hrekkur ekki alltaf
til. Forráðamenn Háskólans tala oft
um að hann þurfi að vera í betri
tengslum við þjóðfélagið, atvinnu-
lífið, framhaldsskólana og svo fram-
vegis. Með ónýta símaþjónustu er
skólinn náttúrlega ekki í tengslum
við eitt eða neitt af því að enginn
nær sambandi. Nýr Háskólarektor
ætti nú að beita sér fyrir bót á
þessu þegar hann tekur við starfi.