Morgunblaðið - 16.06.1992, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1992
„þær -fd aldtejnógu mtkla soL hóma hjcurkn”
-\HJ&l
l-io
að hjálpast að.
TM Reg U.S Pal Off. — all righls reserved
® 1992 Los Angeles Times Syndicate
Hvernig reyndust hormóna-
töflurnar, frú mín ...?
fNtfrjguttltfofrfö
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Trúarhópur eina mannsins
Frá sr. Jan Habets:
Guðni skrifaði í Morgunblaðið 5.
júní 1992 grein um Votta Jehóva.
Það sem skiptir máli er, að Guðni
sýnir þar líka hans eigin guðfræði,
biblíufræði og rökfræði, t.d. um
heilaga þrenningu. Hver er þá okk-
ar kristna trúarjátning um hina
heilaga þrenningu? Fyrir lúterska
trú bendi ég á bók próf. Einars
Sigurbjörnssonar „Kirkjan játar“,
bls. 80: „Ályktun kirkjuþingsins í
Níkeu um einingu guðlegrar veru
og um þijár persónur er sönn og
vafalaus". Dr. Einar útskýrir bls.
67: „Að Sonur og Heilagur Andi
eru persónur merkir, að þeir standa
í sjálfstæðri afstöðu hver til ann-
ars.“ Kaþólska kirkjan hefur það
líka oft staðfest, t.d. á kirkjuþingi
í Flórens (1442): „Rómverska kirkj-
an játar einn Guð, einn í eðli (nátt-
úru) en þrefaldan í persónum“.
Kaþólskt fræðslurit „Vegurinn,
sannleikurinn og Iíflð“ kennir það
bls. 152: „Guð er ein guðleg vera
*
Odrengi-
lega vegið
að Sighvati
Frá Sigrúnu Guðmundsdóttur:
Miðvikudaginn 10. júní skrifar
Leifur Jónsson læknir bréf í þáttinn
Bréf til blaðsins, sem bar fyrirsögn-
ina Hjartaaðgerðir eða veggir fyrir
50 milljónir. Mér og sjálfsagt mörg-
um fleirum, er farið að þykja nóg
um þegar Sighvati heilbrigðisráð-
herra er kennt um allt sem aflaga
fer í heilbrigðiskerfinu. Ég er ekki
sammála því að hjartasjúklingar
eigi að vera rétthærri en geðsjúkl-
ingar. Ég veit dæmi þess að læknar
hafí ekki sinnt um að vista geðveikt
fólk á geðsjúkrahúsum og látið það
sitja í fangelsum þar sem engin
leið er að sinna því að viðeigandi
hátt. Sighvatur vinnur að lausn
þessa máls en það virðist vera orð-
in lenska hér að gera hann að alls-
heijar sökudólgi.
SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
Kötlufelli 5, Reykjavík.
í þrem persónum. Þessar þijár guð-
legu persónur hafa sama guðseðli
eða náttúru".
Hver er nú guðfræði Guðna Thor-
arensen? Hann segir: „Jesús og Guð
faðir eru einn og sami maðurinn".
Á eftir bætir hann heilögum Anda
við, því að skv. útskýringu Guðna
„segir Jóh. 4, 23 að Guð, Jesús og
Heilangur Andi séu ein persóna".
Hér er skýrt, að Guðni ruglar sam-
an einu eðli og persónum. Og hvað
segir þá þessi texti Jh. 4, 24?“ Guð
er andi, og þeir sem tilbiðja hann,
eiga að tilbiðja í anda og sann-
leika.“ Hvar stendur hér, að Guð,
Jesús og heilagur andi séu ein per-
sóna? Guðni bendir líka á Jóh. 8,
58 og Jóh. 8, 18-19. Sami rugling-
ur. Jóh. 8,16 segir jafnvel: „Ég (Jes-
ús) er ekki einn, með mér er faðir-
inn, sem sendi mig“ og því talar
Jesús þar um vitnisburð „Tveggja"
(v. 17).
Er Guðni a.m.k. sannfærandi
þegar hann ræðst á Votta Jehóva?
Nei, Guðni segir „að Guð í 3 M.
17, 12-14 sé ekki að tala við hinn
venjulega mann, heldur við ísraels-
ULPA
Barnaúlpa gleymdist hjá GS
varahlutum við Hamarshöfða 1
fyrir nokkru og er hægt að vitja
hennar þar.
BOLTI
Bolti fannst á homi Vatns-
stígs og Hverfísgötu. Upplýs-
ingar í síma 16794.
TASKA
Taska með pijónadóti merkt
Guðríði Hansdóttur var tekin í
strætisvagnabiðskýli við Hverf-
isgötu fyrir nokkru. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 16794.
menn og á þessi texti ekkert skylt
við menn utan þeirrar þjóðar og
allra síst á okkar tímum“. Það er
auðvelt fyrir Votta að benda á
móti til l.M.9,4. Þar bannar Guð
Nóa og syni hans að „eta hold, sem
sálin, það er blóðið er í“. Nói var
ekki gyðingur. Texti Guðna talar 3
M 17,12 líka um bann blóðs fyrir
„útlendinga“. Það hafði verið mögu-
legt að velja sannfærandi rök Bibl-
íunnar, t.d. 1 Kor. 10, 25. Þar leyf-
ir Páll postuli að „eta allt kjöt, selt
á kjöttorgi Korintu". Við getum
ályktað: í guðfræði er Guðni, fyrir
kristna menn, trúvillingur, í biblíu-
fræði og rökfræði er hann „veginn
á skálum og léttvægur fundinn"
(Dan. 5, 27). Og hve stór er trúar-
hópur Guðna? Kannski er það bara
einsmannshópur.
Um ófullkomleika í kirkjudeild-
um eigum við að íhuga að Jesús
stofnaði sína kirkjuna einmitt til
að hjálpa mönnum í veikleika
þeirra, og ekki aðeins fyrir full-
komna. Og hver er það?
KETTLINGAR
Fimm gullfallegir átta vikna
kassavandir kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 641616.
Níu vikna læða fæst gefíns
á gott heimili. Upplýsingar í
síma 677381.
SILFURARM-
BAND
Silfurarmband, sérkennilegt
útlits, með emaleruðum bláum
flötum, tapaðist í miðbæ
Reykjavíkur fyrir um það bil
ári. Um er að ræða ættargrip
sem hefur mikið persónulegt
gildi fyrir eigandann. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 31483 eða
813290. Góð fundarlaun í boði.
Sr. JAN HABETS
Austurgötu 7, Stykkishólmi.
VELVAKANDI
HÖGNI MKF.KKVÍSI
Víkveiji skrifar
Aukið frelsi í viðskiptum með
olíu og olíuvörur kemur nú
fram í vaxandi samkeppni á milli
olíufélaganna. Skeljungur hefur
haft forystu um að brydda upp á
nýjungum í viðskiptaháttum fyrir-
tækjanna. Fyrst hafði félagið frum-
kvæði að því að taka á móti greiðslu
fyrir benzin með greiðslukorti en
hin olíufélögin tvö fylgdu á eftir
samdægurs. Ósagt skal látið, hvort
sú ákvörðun OLÍS að gefa ákveðinn
hluta af andvirði hvers benzínlítra,
sem fyrirtækið selur til land-
græðslu, var svar við þessu frum-
kvæði Skeljungs eða hvort hér var
fyrst og fremst um að ræða áhuga
stjórnenda fyrirtækisins á málefn-
inu.
Morgunblaðið skýrði svo frá því
um helgina, að Skeljungur hefði
hafíð innflutning á nýrri tegund af
olíu, sem auk þess að vera umhverf-
isvænni en sú olía, sem hingað til
hefur verið flutt inn til notkunar í
skipum er ódýrari og getur sparað
nokkrar milljónir í rekstri físki-
skipa. Það á eftir að koma í ljós
hver verða viðbrögð hinna olíufélag-
anna tveggja. En það er alveg ljóst,
að aukið viðskiptafrelsi á þessu
sviði er þegar byijað að skila sér í
aukinni þjónustu við neytendur og
lægra vöruverði.
xxx
Ahrifa væntanlegrar þátttöku
okkar í Evrópska efnahags-
svæðinu er þegar farið að gæta í
viðskiptalífinu. Þær lagabreytingar,
sem eru fyrirhugaðar vegna rekst-
urs verðbréfafyrirtækjanna og
skýrt var frá fyrir helgi gefa nokkra
hugmynd um strangari reglur og
aga, sem viðskiptalífíð verður að
búa við í framtíðinni. Forráðamenn
verðbréfafýrirtækjanna hafa tekið
þessum breytingum ótrúlega vel
miðað við þá miklu breytingu, sem
augljóslega verður á rekstri þeirra
flestra. Það er svo áleitin spurning,
hver viðbrögðin hefðu orðið, ef hug-
myndir um slíkar breytingar hefðu
verið settar fram hér heima fyrir
án nokkurra tengsla við þróunina í
Evrópu. Hefðu menn tekið slíkum
hugmyndum jafnvel, ef þær hefðu
komið úr annarri átt?
xxx
VViðskipti á hlutabréfamark-
aðnum eru nú sýnilegra en
áður eftir að nýjar og breyttar regl-
ur um Verðbréfaþing íslands komu
til sögunnar. Það sem vekur mesta
athygli eftir þessa breytingu er ein-
faldlega það, hversu lítil viðskipti
með hlutabréf eru. Þau eru svo lít-
il, að hægt væri að halda því fram,
að hér sé enginn virkur hlutabréfa-
markaður starfandi!
Hvað veldur? Vonbrigði manna
yfír þvl, að bréfín hækka ekki enda-
laust í verði? Eða trú á, að þau
lækki enn frá því sem nú er? Auðvit-
að hlýtur samdráttur og kreppa að
hafa áhrif til lækkunar á verði
hlutabréfa. En er þá ekki einmitt
rétti tíminn til að kaupa fyrir þá,
sem hafa yfír fjármagni að ráða?