Morgunblaðið - 16.06.1992, Side 47

Morgunblaðið - 16.06.1992, Side 47
I Leikhópurinn Perlan. Leikhópurinn Perlan sýnir Mídas konung LEIKHÓPURINN Perlan sýnir á Hressó á listahátíð, 17. júní. Perlan sýnir leikverkin Síðasta blómið og Karnivalið í skógin- um. Leikgerð og leikstjórn er I höndum Sigríðar Eyþórsdótt- ur en tónlistina samdi Eyþór Arnalds sérstaklega fyrir leik- verkin. Perlan æfir nú Mídas konung af kappi um þessar mundir. Búningsgerð annast Dominuiqe Pauline og Þórunn Sveinsdóttir. Tónlistin er eftir Eyþór Amalds og leikstjóri er Sigríður Eyþórs- dóttir. Leikhópurinn Perlan heldur nú út í sumarið en sameinast á ný síðsumars með opnun sýn- ingarinnar á Mídasi konungi. VANNMN FJÖLSKYLDA? Heildarvinningsupphæöin : 84.911.205 kr. Röðin :X11-221-212-X222 13 réttir: 10raðirá 12 réttir: 350raöirá 11 réttir: 4.419 raöirá 10 réttir: 34.173 raöir á Engin röð kom fram meö 13 rétta hértendis aö þessu sinni. Þaö er því um aö geta aö vera meö og tippa á 13 rétta fyrir næsta laugardag kl 12.00. 2.292.600 - kr. 41.240-kr. 3.450 - kr. 940-kr. MORC-UNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1992 I I I Sandspyrna: Signrjón Haraldsson fljótastur ÍSLANDSMÓTIÐ i sandspyrnu fór fram um helgina i Jósepsdal og var 31 keppnistæki í keppninni, þar á meðal ný sérsmíðuð jeppa- spyrnugrind, sú fyrsta sinnar teg- unar hériendis undir stjórn Haf- liða Guðjónssonar, en Hlöðver Gunnarsson sá um hönnunina. ís- landsmeistarinn í sandspyrnu, Sigmjón Haraldsson, náði besta tíma dagsins, vann bæði allt flokk- inn og fiokk sérsmíðaðra fólks- bíia, en keppt var í 8 flokkum. Sjómannadagurinn í Keflavík: Þrír sjómenn heiðraðir Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Sjómennimir þrir sem heiðraðir vom í Keflavík á sjómannadaginn ásamt eiginkonum sínum. Á myndinni frá vinstri til hægri em: María Jónsdóttir eiginkona Einars Hannessonar sem stendur við hlið hennar. Þá kemur Loftur Pálsson ásamt eiginkonu sinni Guð- rúnu Einarsdóttur og lengst til hægri era Sigvaldi Jónsson og eigin- kona hans Bima Geirmundsdóttir. Keflavík. ÞRÍR sjómenn hlutu heiðursmerki sjómannadagsins í Keflavík að þessu sinni. Það vom þeir Einar Hannesson skipstjóri, Loftur Páls- son vélstjóri og Sigvaldi Jónsson. Snorri Gestsson formaður Skip- stjóra- og stýrimannafélagsins Vísis heiðraði þá félaga og eigin- konum þeirra vom jafnframt færð blóm við þetta tækifæri. Saman hafa þeir félagar verið tæplega 100 ár til sjós. Einar Hann- esson byijaði sem landmaður en fór til sjós árið 1944 á Svaninum með Marteini Helgasyni og var Einar með honum til ársins 1950 að hann lauk 30 tonna skipstjóraprófi. Árið 1952 var Einar á Ver og var þar í 9 ár, eða til ársins 1961 að hann gerðist skipstjóri á Ólafí KE 49. Með Ólafi var Einar til ársins 1973 en þá tók hann við Sæborgu sem hann var með til ársins 1981. Hann var síðan á ýmsum bátum til ársins 1989 að hann fór í land. Loftur Pálsson vél- stjóri hóf sinn sjómennskuferil ungur að árum á heimaslóðum sínum vestur á Ströndum. Hann lauk vélstjóra- prófi á ísafirði árið 1951 og hefur starfað síðan sem vélstjóri á bátum frá Suðumesjum. Meðal báta sem Loftur var á voru: Framtíðin, Reykja- röstin, Heimir KE, Andri, Harpa og Jöfur. Sigvaldi Jónsson fór til sjós 15 ára í Keflavík og meðal báta sem hann var háseti á má nefna Guðfínn, Björgvin og Lóminn þar sem hann var í mörg ár. Sigvaldi stundar enn sjóinn á trillu sem hann gerir út sjálf- ur. -BB „Það verður slagur um titla í mörgum flokkum í sumar, en mér sýnist að í flokki sérútbúinna fólks- bíla verði baráttan milli Siguijóns, Grétars Frankssonar og Gunnlaugs Emilssonar, núverandi meistara f fólksbílaflokki, sem mun þerjast við tvo erfíða andstæðinga. Ámi Kóps- son og Gísli G. Jónsson eru skæðast- ir í flokki sérútbúinna jeppa. Það er í raun barátta í öllum flokkum þó keppnistækin séu ekki mörg í hveij- um,“ sagði Katrín Helga Reynisdótt- ir, keppnisstóri Kvartmíluklúbbsins, sem hélt keppnina. Siguijón Haralds- son náði besta tíma dagsins í spymu- brautinni, fór á 4.007, en íslandsmet hans er 3.975, sem var sett í blaut- ari sandi en var um helgina. Í flokki standard fólksbfla vann Úlfar Ey- steinsson á Concord. Ekið var í tveimur jeppaflokkum, Ámi Kópsson lagði Gísla G. Jónsson í úrslitum í Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Hafliði Guðjónsson mætti á sér- smíðaðri spymugrind en lenti í smávægilegum vandamálum. Þetta er fyrsta grind sinnar teg- undar hérlendis. Einarsson Héðin Þorvaldsson. í sleð- aflokknum voru mikil tilþrif hjá þeim félögum Benedikt Valtýssini og Karli Gunnlaugssyni sem óku mikið breytt- um sleða. Benedikt hafði betur þrátt fyrir ævintýralega kollsteypu í úr- slitahrinunni og hlaut hann tímann 4.293. í flokki motor cross hjóla vann Kristján Viktorsson á Yamaha á 5.618 en Guðmundur Sigurðsson varð annar. Benedikt Valtýsson lagði Karl Gunnlaugsson að velli í vél- sleðaflokki en Karl mætti í sandspymukeppni í fyrsta skipti eftir slæmt slys er henti hann í fyrra í slíkri keppni. sérútbúnum flokki á 4.661 sekúndum en í standard flokki vann Þorsteinn Heimsbréf, 26,3% raunávöxtun á ársgrundvelli síðustu 3 mánuði Þar sem lítið samband er á milli hagsveiflna hér innanlands og erlendis og íslenska hagkerfið er einhæft eru íjárfestingar í erlendum verðbréfum skynsamleg leið til að dreifa áhættu. Heimsbréf eru ávöxtuð með kaupum í hlutabréfum erlendra iyrirtækja og traustum skuldabréfum og henta því vel fyrir þá sem vilja dreifa áhættu og njóta góðrar ávöxtunar til lengri tíma. Víðast í heiminum er spáð góðri ávöxtun hlutabréfa næsta árið og því eru horfur góðar fyrir þá sem fjárfesta í Heimsbréfum. Allar nánari upplýsingar veita ráðgjafar Landsbréfa hf. og umboðsmenn í Landsbanka íslands um allt land. LANDSBRÉF H.F. Landsbankinn stendur með okkur Suðurlandsbraut 24. 108 Heykjavtk. sími 91-879200. fax 91-078898 Löggilt verðbréfafyrirtœki. Aðili að Verðbréfaþingl íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.