Morgunblaðið - 27.02.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1998 39
+Sigurður Brynj-
ólfsson fæddist í
Skammadal í Mýrdal
27. febrdar 1925.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 20.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Brynjólfur Einarsson
frá Reyni í Mýrdal, f.
2.8. 1890, d. 23.3.
1984, og Áslaug Vig-
fúsdóttir frá Heiðar-
seli, f. 1.4. 1893, d.
16.11. 1972. Systkini
Sigurðar eru: Þór-
anna, f. 11.8. 1926,
Einar, f. 4.7. 1927, Sigfus, f. 8.7.
1928, Sigríður, f. 17.12. 1929, og
Vilborg, f. 27.12.1930, einnig Ólaf-
ur Siggeir og Sigrún Ólöf, sem
bæði létust í bemsku.
Sigurður kvæntist 28.1.1950 eft-
irlifandi konu sinni, Ingibjörgu
Markúsdóttur, f. 14.1. 1924 í Dísu-
koti í Þykkvabæ. Foreldrar hennar
voru Markús Sveinsson frá Vatns-
koti í Þykkvabæ, lengst af bóndi í
Dísukoti í Þykkvabæ, f. 2.4. 1879,
d. 26.7. 1966, og Katrínar Guð-
mundsdóttur frá Skarði í Þykkva-
bæ, f. 23.8. 1883, d. 17.10. 1957.
Sigurður hóf störf við bílamálun
1945 bjá Bílasmiðjunni hf. Hann
fékk meistararéttindi í iðn sinni
Ó, pabbi minn,
hve undursamleg ást þín var.
Ó, pabbi minn,
þú ávallt tókst mitt svar.
Aldrei var neinn
svo ástúðlegur eins og þú,
6, pabbi minn,
þú aetíð skildir aUt
Liðin er tíð
er leiddir þú mig h'tið barn
brosandi blítt
þú breyttir sorg í gleði.
Ó, pabbi minn,
ég dáði þína léttu lund,
leikandi kátt
þú lékst þér á þinn hátt.
Ó, pabbi minn,
hve undursamleg ást þín var
æskunnar ómar yija mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson.)
Það ríkti mikil kyrrð og friður þá
nótt er þú kvaddir þetta jarðneska
líf, pabbi minn. Dagurinn áður og
dánardagurinn þinn voru fegurstu
dagar þessa nýbyrjaða árs. Allan
daginn áður og þar til hjarta þitt
hætti að slá snjóaði mikið í
stafalogni. Á tré og annað settist
snjórinn og skapaði sannkallaðan
ævintýrablæ. Er birti af morgni
braust sólin fram og himinninn varð
heiður, sama lognið hélst og það var
fóstudagur. Fagrir fóstudagar voru í
seinni tíð miklir tilhlökkunardagar
hjá þér, þá héldu þér engin bönd og
þá var brunað austur, já, austur á
þínar bemskuslóðir í Mýrdalnum
ar sem fjölskyldan á lítinn sælureit.
sumar hefðu orðið tíu ár síðan við
lögðum grunn að þessum reit okkar í
Reynistúni. Á árunum höfum við átt
þar með þér yndislegar stundir.
Fyrst við byggingu húss, þá ræktun,
umhirðu og svo ótalmargt annað en
ekki hvað síst við að kynnast betur
fólkinu okkar þar og umhverfinu öllu
sem þú varst óþreytandi við að segja
okkur frá og kynna betur. Fyrir ári
vorum við þar á þorrablóti með
Hverfingum og nú var búið að boða
okkur á ný. En þú varst orðinn veik-
ur og við afþökkuðum. Við ætluðum
að fara seinna þegar dagurinn væri
orðinn enn bjartari og þú hressari.
En sá sem öllu ræður hefur nú hugs-
að þér annað hlutverk. Eftir erum
við og eigum minningar um einstak-
an og yndislegan föður, föður sem
hafði svo mikið til að gefa og miðla,
jafnt okkur ungum sem eldri og svo
börnum okkar og barnabörnum. Þú
varst svo yndislegur, pabbi minn, til
þín var svo gott að leita, það var svo
gaman að vera með þér, þú varst
okkur svo mikill félagi og vinur.
Er við vorum börn varst þú oftast
farinn til vinnu þegar við vöknuðum
og oft vorum við sofnuð þegar þú
6.11. 1964. Sigurður
vann hjá Bílasmiðj-
umú hf. til 1974 er
hann, ásamt
nokkrum vinnufélög-
um stofnaði Nýju
bílasmiðjuna hf. Frá
árinu 1987 vann Sig-
urður þjá Bflaverk-
stæði Jónasar í Kópa-
vogi.
Sigurður var einn
af 25 stofnfélögum
Félags bflamálara
sem stofnað var
24.11. 1956. Hann var
formaður þess frá
1965 til 1975 og heiðursfélagi frá
árinu 1991. Hann var formaður
prófanefndar um árabil og gegndi
ýmsum trúnaðarstörfúm fyrir fé-
lagið og Bfliðnafélagið.
Böm Sigurðar og Ingibjargar
em: 1) Marta Katrín, f. 23.11.1949,
gift Halldóri Sigdórssyni og eiga
þau þijú böm og tvö bamaböm. 2)
Áslaug Brynja, f. 23.11. 1951 og á
hún þijá drengi og eitt bamabam.
3) Ármann Óskar, f. 14.7. 1961, í
sambúð með Fríðu Bjömsdóttur
og eiga þau tvö böm.
Útfor Sigurðar fer fram frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
komst heim úr vinnu en þegar þú
varst ekki að vinna þá gafst þú okk-
ur allar þínar stundir. Oft komst þú
með eitthvað heim til okkar sem þú
hafðir búið til eða eitthvað til að
stinga upp í litla munna. Þú fórst
með okkur í göngutúra inn í Skeiðar-
vog til ömmu, afa og Fúsa eða þegar
þú eignaðist bíl þá fóru sunnudags-
morgnamir í bíltúr niður á höfn og
svo enduðum við inni í Skeiðarvogi.
Er við urðum stærri fórum við að
fara í veiðiferðir saman. Þú varst
slyngur og heiðarlegar stangaveiði-
maður og kenndir mér þá list að
veiða og gefa umhverfinu og náttúr-
unni sína virðingu. Ógleymanlegar
eru allar veiðiferðimar í Vatnsána
þar sem verslunarmannahelgunum
var eytt um árabil af fjölskyldum
ykkar Boggu systur þinnar. Til
þeirra ferða var hlakkað til lengi og
alltaf vom þær jafnskemmtilegar
hvort sem við veiddum vel eður ei,
því félagsskapurinn var númer eitt
en ekki skemmdi ef vel veiddist og
hverjum fiski var fagnað á sinn hátt.
Þú varst mikill jarðræktarmaður
og dafnaði allt vel sem þú ræktaðir,
jafnt kartöflur, grænmeti og tijá-
gróður, því þessu öllu sýndir þú svo
mikla alúð. Bamabörnin fengu
hvergi betri kartöflur en afakartöfl-
ur og alltaf var hægt að fá sér við-
bótarkartöflubita bara fyrir hann
afa. Þú varst bílamálarameistari að
mennt og vannst við það alla tíð frá
1945. Fagmennska þín var einstök,
þú varst framsýnn og varst fljótur að
tileinka þér allar nýjungar. Þú
gegndir um árabil formennsku í Fé-
lagi bílamálara og í prófanefnd bíla-
málara auk allra annarra trúnaðar-
starfa fyrir félagið og síðar Bíliðna-
félagið. Flestir af þeim sem stunda
rútubílaútgerðir og aðrar bílaútgerð-
ir þekktu Sigga í Bílasmiðjunni og til
hans var leitað. Virðing þín var ein-
stök í þessu fagi, enda varst þú gerð-
ur að heiðursfélaga. Þrátt fyrir að
við lærðum ekki það sama þá kennd-
ir þú mér handbrögðin og undirstöð-
una þegar ég vann hjá þér sem sum-
argutti þrjú sumur hjá Nýju bfla-
smiðjunni. Það sem ég lærði þá hef-
ur verið gott veganesti í mínu starfi í
dag.
Tónlistin og þá sérstaklega söng-
urinn var þér í blóð borinn í ríkum
mæli. Þú hafðir einstaklega fallegan,
djúpan og þýðan bassa, varst eftir-
sóttur í kómm og þú féllst vel inn í
söngfjölskylduna hennar mömmu
sem þú lagðir mikla rækt við. Hér í
Reykjavík varst þú hjá dr. Róbert
Abraham í kóram á yngri árum og
lærðir mikið af. Árið 1973 varstu
einn aðalmaðurinn að stofnun Söng-
félags Skaftfellinga í Reykjavík. Sá
kór söng við opnun hringvegai-ins á
Skeiðai-ársandi 1974 og hefur verið
starfandi síðan, eða í 25 ár. Öll þessi
ár hefur þú verið ein aðalkjölfestan í
kómum. Afmælishátíð verður eftir
viku og nú verður í kómum stórt
skarð. Pabbastrákur var ekki hár í
loftinu þegar hann fór fyrst með þér
á æfingai- niður 1 Lindargötuskóla og
hlustaði á. Seinna þegar ég hafði ald-
ur og rödd til fóram við að syngja
þar saman og það sama gerðum við
með karlakómum Stefni, eins í kirkj-
um og þá lékum við okkur að því að
syngja saman Glúnta og aðra dúetta.
Þannig færði söngurinn okkur þétt
saman og nutum við þeirra samvera-
stunda okkar sérstaklega. Það verð-
ur tómlegt að fara núna einn á æf-
ingar en ég veit að þú ert með okkur
og tekur undir í englakóram í Guðs-
ríki. Þú varst, pabbi minn, mikill fjöl-
skyldufaðii’ og þið mamma voruð
yndislegir foreldrar. Ást ykkar og
virðing hvort fyrir öðra er okkur til
fyrirmyndar. Það var yndislegt að
sjá hvað þið mamma nutuð ykkar nú
í seinni tíð þegar við voram öll farin
að heiman. Þið vorað mikið saman
og dugleg í að rækta vini og ættingja
og óþreytandi að fara austur í bústað
á fóstudögum eftir vinnu. Þrátt fyrir
að öll vinnuvikan lægi að baki fannst
þú ekki fyrir þreytu þegar þú varst
kominn þangað. Þannig veit ég að
þér líður þar sem þú ert núna.
Elsku pabbi minn. Við þökkum
þér fyrir allt það sem þú hefur gefið
okkur bömum þínum, alla þína ást
og hlýju og þann mikla kærleik sem
þú áttir. Bömin okkar smáu og
bamabörnin missa mikið því þú
hafðir svo mikið að gefa þeim, en
missir mömmu er mestur, síns besta
vinar og félaga í hálfa öld. Við syrgj-
um þig öll sárt en minning þín er Ijós
á vegi okkar.
Far þú í firiði,
ffióur Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarlmoss þú hljóta skalt
(V. Briem.)
Guð geymi þig, pabbi minn.
Marta Katrín, Áslaug Brynja
og Ármann Óskar.
Elsku afi okkar er látinn. Hann
kvaddi þennan heim aðfaranótt
fóstudags, 20. febrúar síðastliðinn,
heima í Skipasundi hjá ömmu og
bömum sínum. Amma vék ekki frá
þér síðustu vikurnar og hjúkraði þér
af alúð þar til yfir lauk. Eftir baráttu
við erfiðan sjúkdóm fékkst þú loks
hvíldina en við kveðjum þig með
trega, því söknuðurinn er sár.
Minningamar hrannast upp,
minningar tengdar manni sem aldrei
sat auðum höndum, já, þannig mun-
um við eftir þér, elsku afi, dyttandi
að litla fallega húsinu ykkar eða að
huga að kartöfluuppskeranni. Þú
hafðir mikið dálæti á söng og bók-
lestri, þú varst félagi í nokkram kór-
um og nóbelsskáldið okkar var í
miklu uppáhaldi hjá þér. Að sjálf-
sögðu áttir þú allt ritsafnið hans og
nutum við systkinin góðs af því á
menntaskólaárum okkar. Sumarbú-
staðurinn á Reyni, sem þú byggðir
ásamt Óskari frænda, var þér þó
kærastur og þar áttum við yndisleg-
ar samverastundir með þér og
ömmu. Þó að þú hafir ekki farið enn
eina ferðina austur, eins og þú
óskaðir þér, þá munum við ávallt
finna fyrir návist þinni á Reyni. Jóla-
dagskvöldin verða tómleg án þín, en
við vitum að þú vakir yfir okkur og
fylgist með okkur að handan.
Elsku afi, við þökkum þér fyrir
þær dýrmætu stundir sem við áttum
saman. Við hittumst síðar. Sæll að
sinni, elsku afi.
Far þú í friði,
Mður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma, mamma, Áslaug og
Óskar. Við biðjum góðan guð að
styrkja ykkur á þessum erfiðu tím-
um og þá sérstaklega ömmu, því
missir hennai- er mestur.
Sigurður Bryiyar, Þórey Iris
og Halldór Reynir.
• Fleiri minningargreinar um
Sigurð Bryi\jólfsson bíða birtingar
og munu biiiast í blaðinu næstu
daga.
SIGURÐUR
BRYNJÓLFSSON
+
Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
EGGERTS ÓLAFSSONAR
frá Höfnum,
til heimilis á Háteigi 18,
Keflavík,
fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn
28. febrúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Kirkjuvogskirkjugarði, Höfnum.
Ingi Eggertsson,
Ásbjörn Eggertsson,
Ólafur Eggertsson,
Signý Eggertsdóttir,
Páll Sólberg Eggertsson,
Sigurður Ragnar Magnússon,
Ágústa Halla Jónasdóttir,
Jenný Karitas Ingadóttir,
Kristjana Gisladóttir,
Páll Bj. Hilmarsson,
Kristjana Margrét Jóhannesdóttir,
Magnea Gretarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTBJÖRG LÚTHERSDÓTTIR
frá Þrándarstöðum, Kjós,
Nökkvavogi 11,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós laugardaginn 28. febrúar
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á Heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins.
Guðrún Ástvaldsdóttir,
Haukur S. Ástvaldsson,
Ingunn Ástvaldsdóttir,
Lúther Ástvaldsson,
Steinunn Ástvaldsdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN ÓLAFSSON,
Valdasteinsstöðum,
Hrútafirði,
verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju á
morgun, laugardaginn 28. febrúar, kl. 14.00.
Saetaferðir verða frá BSÍ.
Elsa Gísladóttir,
Sigurdís Erna Guðjónsdóttir, Ámi Karl Harðarson,
Ólöf Kristín Guðjónsdóttir, Baldur Sæmundsson,
Þórdís Edda Guðjónsdóttir, Bjarki Bjömsson,
Elsa Margrét Árnadóttir,
Bylgja Sif Árnadóttir,
Særún Erla Baldurdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNBJÖRG (Adda) MAGNÚSDÓTTIR,
áður lllugagötu 15,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju laugardag-
inn 28. febrúar og hefst athöfnin kl. 14.00.
Dana S. Arnar, Steingrímur Felixson,
Sandra ísleifsdóttir,
Örn Engilbertsson,
Marý Kristín Coiner, Stein Hinriksen,
(sleifur Arnar Vignisson, Hulda Ástvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir mín og tengdamóðir,
SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR,
Hverfisgötu 9,
Siglufirði,
verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 28. febrúar kl. 11.00 árdegis.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
slysavarnadeildina Vörn eða Sjúkrahús Siglu-
fjarðar.
Anton V. Jóhannsson,
Inger Kr. Jensen.