Skírnir - 01.01.1862, Qupperneq 18
18
FRÉTTIR.
F rnkkland.
aíl Savdiníukonúngr þorir ekki ab sækja borgina í hendr páfa meí)
herskildi. Hershöffcíngi yfir libi þessu er greifinn af Goyon, en
Lavalette greifi er þar sendiboþi. Milli þessara tveggja reis upp
misklíö ab sögn , því annar þeirra hélt meb páfa en hinn meö Ítalíu,
ætla menn, aÖ keisarinn liafi ab vilja valib svo, til þess aö beggja
hlutr vægi salt hvor á móti öÖrum, og slaka til vi& hvorn eptir
sem hæfa þætti, en enginn gæti ráÖib grun í hvaö keisara byggi í
hug. — Konúngr á Italiu og stjórn hefir leitaö allra ráöa, aö blíöka
hug keisarans til aö draga her sinn út úr Bóm, en keisarinn hefir
ætíö meö spekt vikib því máli af hendi, viku af viku og dag af
degi, og brugÖiÖ ymsu viö, ráöiö til biÖlundar þangaÖ til sín stund
væri komin, og hinsvegar hughreyst páfann og heitiö honum sinni
vernd; þannig hefir keisarinn beggja mál í hendi sér, og mænir
konúngr og þjóö hans vonaraugum til Parísar, en keisarinn er dul-
ráör og djúpsettr i ráöum, og vita fáir hvort honum líkar vel eÖr
illa, vaöa menn því í villu og svíma um: undan hverju rifi ráö hans
muni renna. í einn svipinn kemr grein í eitthvert franskt blaÖ,
sem er holl Ítalíu; flvgr þetta þá senr fiskisaga um alla Ítalíu, aö
nú sé náöin fyrir dyrum, en í næstu andránni kemr kvittr í ööru
blaöi, eöa orö í gagnstæöa átt, hjaÖnar þá vonin aptr eins og vatns-
bóla, og stendr allt viö sama, og engin afbrigÖi nema þau, aö
einn kvittrinn rekr annan, en ráÖ keisarans um hag Italíu vita menn
jafnlítt nú og menn vissu í byrjun ársins.
Innanlands hefir keisaranum veriÖ ár þetta nokkuÖ erfitt, og
þurft á allri röksemd aö halda, til aö ráöa bót á vanhag ríkisins.
Fyrst var þaÖ, aö uppskera varÖ einhver hin lakasta , og horfÖi til
hallæris, en í slíkum málum er þaö landsvenja á Frakklandi , aö
allir líta augum til keisarans og stjórnarinnar, svo sem forsjónar
landsins, sem eigi aÖ gefa landsmönnum frjóvsamar árstíÖir. I París
var hætt viÖ, aö mundi vaxa megn þykkja hjá múga manna, af
dýrleika á brauÖi; stjórnin varöi nú miklu fé til aö setja niör brauö-
veröiö, og nú var keypt korn úr útlöndum , sunnan til af þýzka-
landi, úr Danmörk, og enn víöar aÖ, var keypt korn , og flutt á
járnbrautunum dag af degi inn í Frakkland , hina síÖustu 6 mán-
uöi hins liöna árs; hefir af þessu alstaöar hækkaö verÖ á kornmat.
En fyrir öll þessi umsvif, og þaÖ, aö keisarinn sýndi svo mikla