Skírnir - 01.01.1862, Blaðsíða 57
Miðrikin.
FRÉTTIR.
57
fara langan krók. Fyrst settu allir stjórnendr þýzkalands eina
verzlunarnefnd, en frumvarp hennar verSr nú ab leggja fyrir öll
þíng í hverjum hluta þýzkalands, og hvert þíng verbr ab taka frum-
varpib óbreytt. í sumar voru lög þessi fyrir á ymsum þíngum, og
mebal annars á þínginu í Miinchen. FJutníngsmabr þessa máls á
þínginu var Dr. Lauk, einn hinn drenglyndasti þíngmabr og ein-
arbasti, enda tóku þíngmenn vib lögunum óskorab , og unnu þannig
ab einíngu ættjarbar sinnar.
í Bayern eru saltnámurnar konúngsfé, og eins er í Austrríki,
og saltkarlarnir konúngsmenn. Austr í Salzborg eru miklar salt-
námur. þaban er saltlútinni veitt í stokkum margar þíngmannaleibir
gegnum Alpafjöllin allt vestr yfir Inn, og eru saltbrennur hvervetna
á leibinni, þar sem mestir eru skógar, ebr mótekja, sem menn
hafa nú til járnbrauta og gufuvéla jafnt sem kol, þar sem
skógana brestr, en pressa ábr móinn í steypum, sem þar til eru
gjörbar. Bændr hafa til peníngs síns ærib salt, og er þeim þab
jafn naubsynlegt sem hey, og er lágt verb á því salti, en matsalt
dýrara; fær þó stjórnin mikib fé af saltnámum sínum.
Bayarar hafa verib síbastir til skips, ab leggja járnbrautir um
land sitt, eu hafa þó nú fullgjört þær ab mestu. Af því austr-
hluti landsins er mest sveitaland, svipab og á Islandi, þá er merki-
legt ab sjá , hversu mjög vegir breyta verbi allra hluta. Nú eru jarbir
þar í tvöföldu verbi vib þab sem var fyrir átta árum, og svo er
um sérhváb þab sem jörbin af sér gefr, þegar flutníngrinn er Svo
skjótr og ódýr, og eykst vörumegnib ab sama hófi. Ounur hlunn-
indi af járnbrautunum eru þau, ab úr borgunum norbr og vestr
um Jandib er nú svo skömm og skjót leib inn í hin fögru Alpafjöll,
og er nú í dölunum húsfyllir af borgarmönnum, þar sem ekki sást
gestr né gangandi fyrir fám árum, og færist aubr þannig inn í hin
fátækari jjallalönd.
í Wiirtemberg er Vilhjálmrkonúngr fyrsti, hann er öldúngr
allra tiginna manna í Norbrálfunni, og er nú rúmlega áttræbr, en
hefir verib konúngr nærfellt 50 ár. Hann er einhver hinn vinsæl-
asti konúngr, og meban flest gekk ab forgörbum 1848, og víba
voru upphlaup, þá báru landsmenn svo mikla lotníngu fyrir kon-
úngi sínum, ab þeir skirtust vib vandræbi fyrir hans skuld. I Wúrt-