Skírnir - 01.01.1862, Blaðsíða 104
104
FRÉTTIR.
Bandaríkin,
um vi& hin fylkin, og tóku upp nýtt þíng og ný lög. Norferfylkiti
köllubu þá því upphlaupsmenn gegn landslögum, en hinir þóttust
geta sannað af bandalögunum, að hvert fylki hefði rétta lögheimild
að segja sig úr lögum við hin nær sem það vildi, og taka upp
þíng og stjórn sér. En sé svo, þá hefir stjórn Bandaríkjanna verið
oflofuð, því það er verra riki en ekkert, sem er svo laust saman-
bundið, að hvor getr sagzt úr lögum við annan, án þess að hon-
um sé nokkur ólög sýnd önnur en að verða undir í löglegum kosn-
íngi, yrði hvert þíng í heimi að pólsku þíngi, ef slíkt væri lög.
það var því almanna rómr, að suðrfylkin hefði gjört uppreisn á móti
löglegum kosníngum, og stjórnin í Washington kvaðst þvi hefja stríð
gegn þeim í laganna nafni. Nú voru í Norðrfylkjunum æstir flokk-
ar, hvor á móti öðrum. Abolitionistar heita þeir, sem vilja hafa
allt mansal í einu af numið. I suðrfylkjunum eru þessir hataðir,
sem vatn hatar eld, og kallað ab á þeim sé minni mannleg mynd
en á þrælum. Aðrir fara hóflegar, segja að það sé ólög, aÖ fara
svo geyst, verði það ekki til annars, en að kveykja þab hatr, að
aldrei kæmist sættir á að nýju. Að gefa alla þræla lausa væri
líkt og að fá þrælunum vopn í hendr til að myrða með húsbændr
sína, konur þeirra og börn, og væri síðan ekki annað úrræði en
ab höggva þrælana niðr hvern ‘á fætr öðrum; yrði sigrinn, þó hann
fengist á þann hátt, svo grimmr, að það væri landauðn. Miðfylk-
in, sem eru enn í sambandinu, mundi ganga úr með þessum hætti,
og öll suðrfylkin berjast tilþrautar, meban nokkur stæði uppi. Lin-
coln forseti hefir fylgt þessu máli, að þröngva suðrfylkjunum aptr
tii hlýðni vib lögin, en látið mansalib sjálft hlutlaust að sinni.
Suðrfylkin, sem sögðust úr lögum vib hin , eru nú 10 ab tölu, og
forseti þeirra Jeíferson Davis var kosinn forseti til 6 ára. Lincoln og
stjórn hans gjörðu þeim nú tvo kosti, að snda aptr til hiýðni innan
fárra vikna, eða þola her. Frestrinn leið svo, að hinir svöruðu
engu, nema bjuggu út her.
Nú drógu hvorirtveggju her að sér, og bjuggust til varnar.
Suðrfylkin, sera kalla sig Confederated states, eðr eiðsvararíki, settu
þíng eptir að forseti var kosinn; og var þíngið fyrst sett í Mont-
gomery í fylkinu Alabama. þrælafýlkjunum varð í fyrstu miklu