Skírnir - 01.01.1869, Blaðsíða 64
64
FRJETTIR.
Frakkland.
orbi, er Duruy sagfei honura söguna: „ekki er að gefa sjer a8
svo litlu, en annars líkar mjer vel, a8 sonur minn getur sje8 þa8
þegar á ungum aldri, að ríkisstjórar, er vilja gegna vel skyldu
sinni, eiga opt aðrar leiSir a8 ganga, en þær, er rósunum eru
strá8ar“.
Vjer gátum i fyrra um hungursneyS i Alsír, en nú er þeim
ókjörum nokkuS af ljett. Menn ræddu og um vankvæði nýlend-
unnar á þinginu í sumar, og þóttust sumir hafa sannar sögur fyrir
sjer um, að skattheimtumenn stjórnarinnar hefbu stungiS hjá sjer mikl-
um hluta þess fjár, sem þeir hef?u pínt út hjá landsbúum. MeSan
hungursfáriS var mest hafSi landstjórnin tekiS aS sjer fjölda mun-
aSarlausra barna, en erkibiskupinn í Alsír Ijet um leiS fara a8
kenna þeim kristin fræSi. Mac Mahon, landstjórinn, var þessu
mótfallinn, og sendi flest börnin aptur til átthaga sinna, því hann
vissi, a8 ekkert mundi óvinsælla í landinu en þessi aSferö bisk-
upsins. Um þetta ósamþykki biskups og landstjórans var taiað á
þinginu, en þa8 virtist, sem stjórnin (e8a hermálará<5herrann, því
landinu er stjórnaS a8 hervaldslögum) ekki vissi, í hvorn strenginn
hún ætti a5 taka. í vetur bryddi á uppreist í suSurhjeruíum
landsins, en varS bráSum bæld niSur. Frá eyju Frakka fyrir austan
Su8urálfu (og í austur frá Madagascar), er Reunion (fyrrum Bour-
bon) heitir, bárust óeiröarsögur í desembermánuSi. þó eyjan hafi
ekki meir en 208 þúsund ábúa, eru þar stríSar deilur me8 klerka-
flokkinum og frelsismönnum. Klerkarnir höfbu fengi8 þann mann
til ritstjóra blaðs síns, er Buet heitir, og ritaði sem ákafast á móti
öllu lýbvaldi. Nú vildi svo illa til, a8 ljót saga (um vanþyrmsli
vi8 unga stúlku) var borin út um þenna mann. þetta stóBust
hinir ekki og gerSu atsúg a8 honum. Li8i8 skarst nú í leikinn, og
vi8 þa8 ur8u margir bæ8i drepnir og sær8ir. Landstjórinn vís-
a8i reyndar Buet á burt frá eyjunni, en hvorutveggju sendu nú
kærumál sin til stjórnarinnar í Parísarborg. Me8al annars heimt-
u8u frelsismenn, a8 breytt yr8i um alla stjórn eyjarinnar, og a8
þeir mættu senda fulltrúa sína á ParísarþingiS. Mótmælaflokkur-
inn ger8i þetta mál a8 fyrirspurnarefni í vetur, en stjórnin drap
öllu á dreif, og 'Sag8i, a8 landstjórinn hefSi fari8 rjett a8, en