Skírnir - 01.01.1869, Blaðsíða 143
Austurríki.
FRJETTIR.
143
manns skyldu nú verða ráíum Deaks til fyrirstö8u. Ýmsir ur8u
til a8 taka svari Kossúths, og sumir segja þa<3 muni jafnvel hafa
spillt fyrir Deak og hans flokki vi8 kosningarnar, a8 menn eign-
u8u stjórninni hlut í um þessa för og ræ8uhöld Perczels.
Rússland.
Eptir ófarirnar móti vesturþjó8unum sag8i Gortschakoff, „a8
nú yr8i Rússland a8 safna kröptum“; og flestir munu hafa skiliS
þau or8 svo, a8 kröptunum ætti a8 safna til þess a8 taka upp
þau rá8 a8 nýju, er þá voru borin aptur. A8 vísu hafa Rússar
engu fengi8 hreytt afþví, er til var skili8 í sáttmálanum í Parísar-
borg, en þeir búa sig undir nýja sókn máls síns vi8 Stólpasund;
þeir safna kröptum og þeir leita nú styrks í því, er svo mjög
hefir veri8 neytt á seinni árum í ýmsu skyni, í þjóBerniskenn-
ingum, e8a þjó81egum samdráttarkenningum fyrir öllum slafneskum
þjóSum. jpeir hafa skafiS út nafn Póllands á landalista Nor8ur-
álfunnar, gera allt alrússneskt, sem þegar er gert a8 mestu í
allri Lítáen, þyrma þar hvorki tungu nje trú, e8ur me8 ö8rum
or8um: þeir hafa fært takmörk rússneskunnar um Pólland vestur
upp á NorSurálfuna. í löndunum vi8 Eystrasalt hafa þeir veitt
rússneskri tungu einkarjett í stjórn og dómum, og búast til a3
ey8a me8 öllu bæ8i þýzkunni og mállýzkum landanna. þeir hafa
mjög auki8 járnbrautir um þvert land og endilangt, og eiga nú
mun betri kosti á en á8ur a8 syipa herdeildum sínum þanga8 sem
þörf ber til. þeir hafa á síSustu árum unni3 miklar landseignir
í Asíu, a3 vi8áttu sem allt Frakkland e8a meiri, og færast ávallt
nær Englendingum á Indlandi, en festast í ráSum í Persiu og
öllum grenndarlöndum þess ríkis, og færast svo a8 austan a8 ríki
Tyrkja. Svo umfangsmikil er þessi þjó8, og allt þetta sýnir, a8
hún eigi a8 eins safnar kröptum, en a3 hún beitir þeim svo á
mörgum stöBum, a3 ö8rum má standa geigur af henni. Eigi a8
sí8ur eru þeir hættir á öllu þjóSarfari og rikislífi Rússa, a8
mörgum þykir ósýnt, hvort svo mikiS rekst úr þeim, sem fyrir
þeim fer. Svo má kalla, sem allir straumar lífsins hafi veriS undir