Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Qupperneq 14
14
DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
Spurningin
(Spurt á sýningunni „Heirnilið
'85")
Hvernig finnst þér sýningin?
Þormóöur Sveinsson (Þormóðssonar
ljósmyndara): Mjög góð. Ja, það sem
ég hef séð. Mér finnst full ástæða til að
halda svona sýningar. Maður getur séö
ýmislegt sem gott er að kaupa.
Guðmundur Jónsson: Mér finnst gam-
an á sýningunni. Best aö fá að smakka
á gottinu. Og fá sér kók og eitthvað að
borða á eftir.
Haraldur Þrastarson: Mér finnst allt
gaman hér á sýningunni. Kúlubíóið er
þó skemmtilegast. Það er líka ofsalega
gaman að smakka allt gottið.
Ragnheiður Guðmundsdóttir: Ég hef
nú bara séð tískusýninguna og hún er
frábær. Mér finnst hún allt öðruvísi og
betri en þær íslensku.
Ólöf Sveinsdóltir: Ég er nú nýkomin
inn og hef ekki séö neitt nema tískusýn-
inguna. Þetta eru litríkar stúlkur og
stórglæsilegar. Allt öðruvísi sýning en
þaö sem maður á að venjast hér.
Sigurður Gissurarson: Mér finnst hún
bara ágæt. Kúlubíóið best. Tískusýn-
ingin var líka ágæt. Sætar stelpur, en
ég varð samt ekkert skotinn i þeim.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Slæm reynsla
á Þingvöllum
6601-7818 skrifar:
Það hefur verið skrifað talsvert
um Þingvelli að undanförnu. Ég og
fjölskylda mín uröum fyrir mjög
niðurlægjandi reynslu um ver-slunar-
mannahelgina.
Viö erum fjögur og ætluöum aö
tjalda yfir eina nótt ðg leggja af stað
heim á sunnudagsmorgun. Komum
við til Þingvalla upp úr hádegi á
laugardag og tjölduðum ofan vegar,
nálægt vegvísi er á stóð Skógarkot.
Seinna kom gæslumaður og
rukkaöi okkur um gjald fyrir tjald-
stæöi sem var 120 kr. Við greiddum
það og fengum kvittun fyrir. Jafn-
framt fengum við í hendur reglur um
umgengni í þjóögaröinum.
Tjöld voru allt um kring, bæði fyrir
ofan og neðan veg, þegar við komum
og gerði gæslumaður enga athuga-
semd við tjaldstæði okkar.
Við byrjuðum á því að kanna
aöstæður og fórum í smá skoðunar-
ferð eftir að við vorum búin að flytja
allan farangur okkar upp í tjald.
Þegar ég fór með yngra barniö upp
í tjald um fimmleytið kom annar
gæsiumaður og rekur okkur burtu.
Mér þótti það skrítið og sýndi honum
greiöslukvittun og reglur staðarins.
Jafnframt sagði ég honum að hluti
f jölskyldunnar væri f jarverandi.
Um sjöleytið komu hinir fjöl-
skyldumeðlimirnir. Skömmu seinna
kemur gæslumaðurinn aftur og
segir: „Þið eruö ekki farin enn,” og
var með hótanir um að fyrst svo væri
yrði að senda á okkur lið.
Sagði hann að bannað væri að
tjalda fyrir ofan veg vegna eldhættu
(það stóð auövitað hvergi í reglunum
né með vegvísum). Við sögðum að
við værum bara að tjalda fyrir
börnin og við hjónin reyktum ekki og
ekki væri vín með í ferðum. Buöumst
viö til að elda neðan við veg ef þaö
gæti orðið til aö miðla málum.
Ekki kom til greina aö fara aö leita
að öðru tjaldstæði svona seint og
buröast með allan farangurinn því
við ætluðum aö leggja snemma af
stað heim á sunnudagsmorgun.
Þetta tjáðum við gæslumanni en
hann sýndi enga miskunn. Benti
hann á að við gætum fengið tjald-
stæðisgjaldiö endurgreitt með því að
fara niður í þjónustumiðstöð og hældi
sér af því aö vera nýbúinn að reka
þrjár aðrar fjölskyldur.
Viö kváðumst engan áhuga hafa á
rifrildi og þrasi. Hann væri búinn aö
eyðileggja fyrir okkur ferðalagiö.
Tókum við upp tjaldið og héldum
heim til Reykjavíkur. Fórum við
ekki fram á endurgreiöslu enda ekki
hægt að bæta svona tilfinningatjón.
— Við höföum ekki ekið lengi
þegar við sáum fleiri tjöld fyrir ofan
veg.
Mér finnst þessi framkoma fyrir
neöan virðingu Þingvalla. Þessi
staöur hefur verið okkur mjög kær
og oft höfum við ekið þar um og notið
fegurðar hans. En svona auömýkj-
andi reynslu er ekki hægt aö bæta.
Ég var í vafa hvort ég ætti að segja
frá þessu en gerði það loks í þeirri
von að aðrir ferðamenn þurfi ekki aö
lenda í slíku.
Tjaldstæði á Þingvöllum þurfa að
vera greinilega merkt og ef settar
eru upp sérreglur um tjaldstæði
vegna aukins fjölda ferðafólks hlýtur
að vera nauðsynlegt að kynna þær al-
menningi. Eða er þetta ef til vill
geðþóttaákvörðun viökomandi
gæslumanns?
HVER VANN ATLAVÍKURKEPPNINA?
Þaö er ekki hægt aö skipa fólki aö
þroskast. Þá væri barnauppeldi ekkert
mál.
Bidda skrifar:
Ég vil lýsa furðu minni yfir bréfi
sem Eva skrifaði til lesendasíöu DV
þann 20. ágúst sl. Hvers vegna í
ósköpunum á að banna Iagið Ung og
rík? Hvaö er unniö meö því? Eva gerir
sér bersýnilega enga grein fyrir því aö
bönnuö lög seljast betur og verða yfir-
leitt geysivinsæl.
Mér finnst textinn aö vísu þunnur og
klúðurslegur en síðast þegar ég vissi
var málfrelsi í landi voru. Ef textinn
misbýður siögæðisvitund þinni, Eva,
er sáraeinfalt að slökkva bara á út-
varpinu þegar P.S. og Co hefja upp
raust sína.
Annað bréf í sama blaöi vakti einnig
reiði mína. Það var frá 8989-1361 og
fjallar um „þroska”. Ég get ekki lesið
mikinn þroska út úr bréfi þínu 8989-
1361. Það er með tónlistarsmekk að
hann breytist og þróast með árunum.
Þaö sem manni finnst gaman aö 12 ára
er kannski hræðilegt nokkrum árum
seinna.
Skriðjökiar sigruðu i hljómsveitakeppninni i Atlavík.
Ef við hugsum okkur um, munum við
eflaust að sú tónlist sem okkur fannst
best við 12—14 ára aldur er ekki
endilega sú tónlist sem okkur finnst
best í dag. Ég fæ heldur ekki séð
aö Wham og DuranDuran séu nokkuö
verri hljómsveitir en aðrar.
Mér sýnist 8989-1361 fylgjast
ágætlega með þessum hljómsveitum.
Allavega virðist hann/hún lesa slúður-
dálkana með áfergju.
Happdrættafarganið:
Heimsendingar byrja
— beint í msííd
Langþreyttur skrifar:
Þegar haustar skal þaö ekki bregð-
ast aö yfir mann dynur þvílíkt flóð af
happdrættismiðum frá hinum ólíkustu
samtökum að maður hefur ekki við að
henda þessum ósköpum beint í ruslið.
Haustinnrás happdrættismiöanna
hófst nú strax í september, Lands-
happdrætti Samtaka um byggingu ein-
hvers, ég man ekki hvers, kr. 250,- á
alla meðlimi fjölskyldunnar! — Hvar
grafa þessir aðilar upp hver býr hjá
mért.d.?
Og allir miöarnir báru númer sem
voru í beinu framhaldi hvert af ööru
var mér sagt. Verðlaun voru bílar, ein
tuttugu stykki og útgefnir miðar voru
um 200 þúsund, að mig minnir.
Auðvitað eru þessar heimsendingar
happdrættismiöa orönar plága fyrir
löngu síðan og hélt ég að þetta væri lið-
in tíð. Þeir sem vilja styrkja ákveðiðn
líknarfélög eru oftast stuðningsmenn
og um þá er vitaö hjá viökomandi sam-
tökum.
En þegar nýir og nýir aöilar, samtök
og jafnvel byggingafélög eru aö senda
manni happdrættismiða, án þess aö
hafa hugmynd um hvort maður styður
viðkomandi málefni, er það hrein
ókurteisi og eindæma frekja.
Ég legg til að öllum samtökum, fé-
lögum og einstaklingum sem hafa hug
á að senda almenningi bréf inn á heim-
ili sitt veröi gert skylt að fá til þess
leyfi þeirra sem þeir ætla aö senda viö-
komandi fjárbeiðni.
Það má búast viö að allt til jóla verði
lítið lát á heimsendum happdrættis-
miðum og raunar lítið við því að gera
annað en þola áníösluna — nema auð-
vitað þeir, sem láta alltaf eitthvaö af
hendi rakna, um leið og þeim berst
beiöni um f járútlát.
Nei, í alvöru talað, — blessaðir hætt-
ið þessari vitleysu, allir þið sem ætiiö
að byggja, ferðast, kaupa orgel, halda
samsæti eöa fá ykkur neöan í’öí. —
Maður er orðinn langþreyttur á þessu.
Að lokum langar mig að beina fyrir-
spurn til tónlistarsíðu DV. Hvaöa
hljómsveit vann í Atlavík núna síðast?
Mér finnst þessi hljómsveitarkeppni
stórsniðug og því sorglegt hve lítið var
um hana fjallað. Ég man ekki eftir að
hafa séð mikið um hana í fjölmiðlum.
Gaman væri að vita eitthvað um sigur-
vegarana.
Hljómsveitin Skriðjöklar
sigraði
Lesendasíðan getur upplýst aö DV
hefur þegar gert hljómsveitarkeppn-
inni í Atlavík skil. Ennfremur að það
var hljómsveitin Skriöjöklar frá Akur-
eyri sem sigraði. Þegar við ræddum
við Jakob Magnússon Stuðmann gat
hann glatt okkur með því að þessi
bráðskemmtilega hljómsveit væri
væntanleg til Reykjavíkur um miðjan
september og hygöi á tónleika.
Ekki leika
baravinsæl-
ustu lögin
Tónlistarunnandi hringdi:
Ég vil biðja stjórnendur þátta á
rás 2 að auka lagaúrvalið til
muna. Dæmi eru um að þeir leiki
aðeins eitt lag á plötu, þaö vinsæl-
asta, þótt kannski séu ellefu
önnur góð á sömu skífu.
Við ég nefna plötu Eurythmics
sem dæmi um þetta. Sú er geysi-
góð og hvert lagið öðru betra.
Hins vegar var aöeins vinsælasta
lagið leikið og það svo gegndar-
laust að jaðrar við skemmdar-
verk.
Sömu sögu er aö segja um plötu
Dire Straits. Þótt hún sé aldeilis
frábær er einungis leikið eitt lag.
Það er eins og stjórnendur
þátta á rás 2 séu hræddir við aö
leika eitthvað annað en það allra
vinsælasta. Slíkt er afar þreyt-
andi ef hlustaö er á rásina allan
daginn og sama lagið heyrist
kannski 5—6 sinnum og það oft í
2—3 vikur......og svo áttu
kannski plötuna sjálfur. . .