Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Blaðsíða 25
DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
25
MALASKOLINN
Upplýslnga^
og Innrltun
f síma
10004
21655
ir sumarsins
líf í meistaravon ÍA en Víkingar endanlega fallnir...
Sveinbjörn Hókonarson var besti
maður Skagaliðsins en einnig stóð
Birkir sig vel í markinu er á reyndi.
Sigurður Lárusson átti einnig ágætan
leik í vörninni. Hjá Víkingum áttu þeir
Atli Einarsson og Trausti Ömarsson
þokkalega spretti og virðist sem sá
síöarnefndi sé mikið efni. Ragnar Örn
Pétursson dæmdi ágætlega. Olafur
Þórðarson fékk eina spjald leiksins,
gult.
Lið IA: Birkir Kristinsson, Guöjón
Þórðarson, Heimir Guðmundsson,
Sigurður Lárusson, Jón Áskelsson,
Olafur Þórðarson, Júlíus Pétur
Ingólfsson, Karl Þórðarson, Aðal-
steinn Víglundsson. Hörður Jóhannes-
son, Sveinbjörn Hákonarson.
LiðVíkings: ögmundur Kristinsson,
Helgi Ingason, Magnús Þorvaldsson,
Björn Bjartmarz, Trausti Omarsson,
Jóhannes Bárðarson, Jóhann
Þorvarðarson, Andri Marteinsson, Atli
Einarsson, Einar Einársson, Ámundi
Sigmundsson.
Maður leiksins:
Hákonarson.
Sveinbjörn
-fros
ÍA meistari
— í 1. deild kvenna
eftirstórsiguráKA
Frá Sigþóri Eiríkssyni, fréttaritara
DVá Akranesi:
IA tryggði sér um helgina Islands-
meistaratitilinn í 1. deild kvenna er lið-
iö vann stórsigur á liði KA, 10—0.
Akranesliðið á ennþá einn leik eftir í
deildinni en er þegar öruggur sigur-
vegari og fékk það Islandsmeistara-
bikarinn afhentan upp á Skipaskagai
eftir sigurinn.
Rósa Guðmundsdóttir sem kom inn
á sem varamaður í liði IA skoraði
þrennu í leiknum, Laufey Sigurðar-
dóttir og Ragnheiður Jónasdóttir skor-
uðu sín tvö mörkin hvor og Kristínj
Aðalsteinsdóttir geröi eitt.
KA reið ekki feitum hesti frá bæjar-
ferð sinni um helgina. Auk leiksins við
IA lék liðið við Breiðablik og mátti þola
tap, 13-0. -fros.
ísmenn
:efli úrviðureigninni, 1-1
KR-ingar meira inn í leikinn en þegar
Gísli Guðmundsson, ágætur dómari
leiksins, flautaði hann af voru bæði
liöin einu stigi ríkari en þegar hann
hófst.
Víðismenn áttu skiliö að sigra.
Enginn sérstakur skaraði fram úr í liði
þeirra heldur böröust leikmenn vel
sem ein heild. I liði KR var Stefán
Jóhannsson markvörður bestur, eða
eins og Samúel Öm Erlingsson,
íþróttafréttamaður útvarps, sagði
rauður af kulda að leik loknum: „Hann
bjargaði KR—ingum frá tapi. Tví-
mælalaust maður leiksins.”
Víöir: Gísli Heiðarsson, Rúnar Georgsson,
Kiemens Sæmundsson, Vilhjálmur Einars-
son, Olafur Róbertsson, Guðjón Guðmunds-
son, Vilberg Þorvaldsson, Guðmundur Knúts-
son, Grétar Einarsson, Gísli Eyjólfsson,
Daníel Einarsson.
KR: Stefán Jóhannsson, Sæbjörn Guðmunds-
son, Hálfdán örlygsson, Hannes Jóhannsson,
Börkur Ingvarsson, Jósteinn Einarsson,
Ágúst Már Jónsson, Ásbjörn Stefánsson,
Björn Rafnsson, Július Þorfinnsson, Stefán
Pétursson. _ji.h
Einar í áttunda sæti
— í spjótkastskeppninni og féll niður í fjórða sætið í stigakeppninni. Padilla og Slaney sáu um
tvöfaldan sigur í stigakeppninni eftir lokamót Grand Prix sem haldið var í Róm á laugardaginn
Draumur ísleudiuga um að sjá
samlanda á verðlaunapalli fyrir afrek
í Iokakeppni Grand Prix mótanna í
Róm í frjálsum íþróttum átti sér enga
stoð í raunveruleikanum. Einar
Vilhjálmsson, spjótkastarinn kunni
sem hafði leitt bæði spjótkasts-
keppnina og heildarstigagjöf mótanna,
náði aðeins áttunda sæti á lokamóti
Grand Prix á laugardaginn. Þar með
varð draumur Einars aö engu. Sigur-
vegari í spjótkastinu varð Bandaríkja-
maðurinn Tom Petranoff sem kastaði
90,80 metra. Einar sem gekk ekki heill
til skógar vegna meiðsla, varð aö láta
sér lynda áttunda sætið í loka-
keppninni. Hann kastaði 80,48 metra
og féll niður i fjórða sætið í stigakeppni
spjótkastsins. Sorgleg úrslit en við
þeim er víst lítið hægt að segja.
Frammistaða Einars á mótum i ár
hefur veriö mjög góð landkynning.
Efstu menn urðu þessir í spjótkasts-
keppninni á laugardaginn:
1. Tom Petranoff, Bandar. 90,80
2. Duncna Atwood, Bretlandi 90,30
Kristín með
3. David Ottley, Bretlandi 84,92
4. Dag Wennlund, Svíþjóð 84,90
5. Zdenec Adamec, Tékkóslóvakía 83,94
6. Roald Bradstock, Bretlandi 83,20
7. Yrki Blom, Finnlandi 80,86
8. Einar Vilhjálmsson, ÍS 80,48
Stigagjöfin leit því þannig út eftir laugar-
daginn í spjótkastinu:
1. Tom Petranoff 55
2. Duncan Atwood 51
3. David Ottley 50
4. Einar Vilhjálmsson 45
5. Bradstock 38
Tvöfaldur
bandarískur sigur
Sigur hjá Einari í spjótkastinu hefði ekki
nægt honum til sigurs í heildarstigakeppninni
en sem kunnugt er var hann í þriðja sætinu
fyrir mótið í Róm. Dough Padilla, hinum
sterka fimm þúsund metra hlaupara, urðu
ekki á nein mistök. Hann sigraði örugglega i
grein sinni og skaust því upp fyrir Said Aouita
sem gat ekki tekið þátt í mótinu vegna
meiðsla sem hann hlaut í síðustu viku á frjáls-
íþróttamótinu í Riati. Einnig nokkuð sorgleg
endalok fyrir Marokkóbúann sem hafði tólf
stiga forskot fyrir lokakeppniua. Padilla fékk
átján stig fyrir sigurinn og endaði því sex
stigum ofar en Aouita.
Sigur Padilla í stigakeppninni lá því
nokkuð Ijés fyrir, Sovétmaðurinn Sergei
Bubka átti þó þokkalega möguleika á að ná
honum með því að setja nýtt heimsmet í
stangarstökki og fá að launum aukastig cn
tilraunir Sovétmannsins við 6,01 metra voru
litt sannfærandi.
4. kvennaflokki reyndist Mary Slaney,
einnig frá Bandaríkjunum, öruggur sigurveg-
ari. Slaney sýndi hvað í henni bjó er hún
vann 3 þús. metra hlaupið nokkuð örugg-
lega, þrátt fyrir að í því væru sex
hlaupakonur sem þátt tóku í ólympíu-
leikunum í Los Angles í fyrra. Þá varð Slaney
að hætta keppni eftir að hafa lent í samstuöi
við Zolu Budd en sú saga endurtók sig ekki nú.
Sigurvegararnir Padilla og Slaney gagn-
rýndu bæði fyrirkomulag Grand Prix mót-
anna eftir sigurinn. Sögðu að mótin byggðu
allt of mikið á ferðalögum og ef menn ætluðu
að ná langt á mótunum þá yrðu nenn að búa i
ferðatösku.
Stigahæstu menn í karlaflokku urðu:
1. Doug Padiila, Bandaríkin 63
2. Mike Franks, Bandaríkin 60
3. Sergei Bubka, Sovétríkin 59
4. Calvin Smith, Bandaríkin 59 -
Kvennaflokkur:
1. Mary Slaney, Bandarikin 69
2. Stefka Kostadinova, Búlgaríu 63
3. Judi-Brown Kíng, Bandarikin 63
4. Jarmiia Kratochvilova, Tékkóslóvakíu 59
Bobby Moore heiðursgestur?
deildar leikmanna
arakeppninui gegn Rúmenum.
Að sögn Heimis Karlssonar, eins af
1. deildar leikmönnunum, mun að
öllum líkindum verða reynt að leita eft-
ir gamalreyndum enskum landsliðs-
manni til að koma og hefur nafn Bobby
Moore borið á góma.
-fros
— á lokahófi 1.
Þaö er allsendis óvíst hvaða heiðurs-
gestur mun mæta á lokahóf 1. deildar
leikmanna sem fram fer 15.
september. Tilraunir til að fá
brasilíska knattspyrnusnillingin Pele
hafa farið út um þúfur og líklegt er að
Bryan Robson geti heldur ekki komist
vegna leiks Englendinga í heimsmeist-
sjarliðsins en Stefán Jóhannsson,
fimm
— þegar Valurvannþór
Frá Siefáni Arnaidssyni, fréttaritara DV á Akureyri:
Kristín Arnþórsdóttir gerði hvorki
fleiri né færri en fimm mörk þegar
Valsstúlkurnar unnu stórsigur á slök-
um Þórsstelpum á Akureyri á laugar-
daginn. Úrslitin 7—0 fyrir Val og hefði
sigur þeirra getað orðið stærri. Ragn-
heiður Víkingsdóttir skoraði tvö mörk
fyrir Val en staðan var 4—0 í hálfleik.
-fros.
Einherji vann
— Selfoss ífyrri úrslita-
leik 3. deildarinnar
Einherji vann Selfyssinga er liðin
mættust á Vopnafirði á laugardaginn.
Úrslitin 2—1 og hafa Vopnfirðingarnir
þvi eitt mark í veganesti fram til næstu
helgar er þeir munu halda til Selfoss og
leika seinni leikinn um toppsæti deild-
arinnar.
Selfoss sigraði í a-riðli 3. deild-
arinnar en Einherji í b-riðlinum. Bæði
liðin hafa því tryggt sér þátttöku-
réttinn í 2. deildinni næsta sumar.
-fros.
16. september - 2. desember
Zetulið Mímis ernafn á námskeiðum
fyrir þá sem kunna málin þokkalega
eða jafnvel prýðilega en skortir tæki-
færi tilaðhalda þeim við. Mímirbýð-
ur uppá möguleika til að viðhalda
málakunnáttunni á skemmtilegan
hátt á veitingahúsinu Gauki á Stöng
í vetur. Umræðustjórarnir eru er-
lendir og þú tekur þátt í zetuliðinu
einu sinni í viku á mánudögum,
hittir sama fólkið við sama borð á
sama tíma, kl. I84OO.
EIIXA
Hýei/ w.
fDAIlðl/A
ímsm
SPÆNSKö
einu sinni í viku
sama fólkið
á sama tíma
við sama borð
jþróttir fþróttir íþróttir íþróttir