Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR9. SEPTEMBER1985.
27
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
„Allt að koma”
— segir Arnór Guð johnsen
Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara
DV í Belgíu:
„Þetta er allt að koma, ég er að ná
mér af meiðslunum og vantar aöeins
meiri leikæfingu. Ég er bjartsýnn á
að fá að leika meö aðalliöinu á
næstunni,” sagöi Arnór Guðjohnsen
er fréttaritari DV ræddi við hann um
helgina.
Arnór lék með varaliði Anderlecht
gegn Beveren og unnu Arnór og
félagar góöan sigur, 4—2. Arnór
skoraði ekki en hann lék stöðu
varnartengiliðs.
Fjórir landsliðsmenn í liði
Anderlecht eru nú meiddir, þeir
Scifo, Van der Eycken, Vercautern,
og Van der Bergh, svo að líklegt
verður að teljast að Arnór fái
tækifæri á næstunni. Ekkert var
leikið um helgina vegna landsleiks
Belga viö Pólverja í Póllandi sem
fram fer á mánudaginn. Sá leikur
sker úr um það hvort Belgar eiga
möguleika á að komast í undan-
keppni lokakeppni HM í Mexíkó.
-fros
Fyrsta mark Atla .
— fyrir Bayer Uerdingen sem gerði jafntefli við
Eintracht Frankfurt á útivelli. 1-1
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV
íÞýskalandi:
Atli Eövaldsson skoraöi sitt fyrsta
mark fyrir sitt nýja félag, Bayer
Uerdingen í Bundesligunni um helg-
ina. Hann kom liði sínu á bragðið gegn
Eintracht Frankfurt á útivelli á 10.
mínútu meö glæsilegu skallamarki
eftir fyrirgjöf frá Buttgereit. Uerding-
en sótti síðan mun meira en heimaliðið
náði að jafna ósanngjarnt úr víta-
spyrnu eftir að Funkel hafði brotið á
Jan Sveinsson. I síðari hálfleiknum
átti Uérdingen frekar undir högg að
sækja en úrslitin urðu jafntefli, 1—1.
Atli lék allan leikinn fyrir Uerdingen
og fékk fjóra í leiknum. Lárus Guð-
mundsson var tekinn út af í hálfleik og
fékk fimm.
Með mestri eftirvæntingu var beðið
leiks Werder Bremen og nýliöa
deildarinnar Nilrnberg. Rudi Völler
átti enn einn stórleikinn fyrir Bremen-
liðiö, hann skoraði fyrsta mark leiks-
ins á sjöundu mínútu og var það eina
mark hálfleiksins. Völler þurfti síðan
að yfirgefa völlinn í hléi vegna togn-
unar og þá fór allt í hnút hjá liðinu. Á
15. mínútu seinni hálfleiksins náði
Nurnberg að jafna með marki frá
fyrirliðanum, Gunther Guettler. Loka-
oröið var þó heimamanna. Austuríski
landsliösmaðurinn Bruno Pezzey
skoraöi sigurmarkið á 82. mínútu.
Werder Bremen heldur því enn forystu
sinni í deildinni.
Það bjuggust allir viö stórleik í
Miinchen þar sem Bayernliðið mætti
gömlum erkifjendum, Hamburger
Sportverein en urðu þó fyrir miklum
vonbrigðum því leikmenn liöanna tóku
enga áhættu og báru auðsjáanlega allt
of mikla viröingu hverjir fyrir öðrum.
Fyrsta markið leit ekki dagsins ljós
fyrr en á 63. mínútu er brotið var á
Bayerleikmanninum Frank Hartman
sem nýlega haföi komið inn á sem
varamaður. Lothar Mattheus skoraði
úr vítinu en nýliðinn átti eftir að koma
meira viö sögu. Hann bætti öðru marki
Bayern viö eftir frábæra sendingu
Danans Sören Lerby. Aðeins 45 þúsund
áhorfendur sáu leikinn og er langt síð-
an jafnfáir hafa komið á innbyrðis-
leik þessara liöa.
Annars uröu úrslit þessi i Bundesligunni:
Bayern Miinchen-HSV 2—0
Werder Bremen-Nurnberg 2—1
Bayer Leverkusen-Fortuna Diisseldorf 3—1
Borussia Dortmund-Mannheim 0—0
Borussia Mönchengladbach-Köln 1—1
Eintracht Frankfurt-Bayer Uerdingen. 1—1
Schalke-Hannover 2—2
Stuttgart-Saarbrucken 3—1
-fros
BURSIAEXJ
MEÐ
SOFTEX!
HALDGÓÐUR,
SLÍfmJR
ÁGÓÐUVERÐI...
J%3Pi
AFÓTEKINU