Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Qupperneq 40
40
DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
>
Guðrún Antonsdóttir lést 29. ágúst sl.
Hún fæddist 2. maí 1902 á Djúpavogi.
Foreldrar hennar voru Magnea Guð-
björg Sæmundsdóttir og Anton Christ-
ensen. Árið 1923 giftist Guðrún Gesti
Ámundasyni en hann lést áriö 1937.,
Þeim varð fjögurra barna auðiö. Frá
1961 bjó Guðrún með Guðna Guðna-
syni. Utför hennar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Snorri Guðnason, Fýlshólum 1, andaö-
ist 25. ágúst. Utförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Magnús Einarsson húsvörður, Hverfis-
götu 83, lést í Landspítalanum 4. sept-
ember.
Hermann A. Kristjánsson verslunar-
maður, Melhaga 12, veröur jarðsung-:
inn frá Neskirkju í dag, mánudaginn 9.
september, kl. 13.30.
Erla Eyjólfsdóttir, Hraunbæ 174, lést 3.
september. Bálförin fer fram frá Foss-1
vogskirkju miðvikudaginn 11. sept-
ember kl. 15.
Sigurður Hjálmarsson, áður til heimil-
is að Ásgarði 11, lést hinn 19. ágúst sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
aö ósk hins látna.
Aðalsteinn Guðmundsson, Meistara-
völlum 25, verður jarðsunginn frá Há-
teigskirkju mánudaginn 9. september
kl. 13.30.
S. Benjamínsson húsgagnasmiöa-
meistari, Freyjugötu 34, veröur jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju þriðju-
daginn 10. september kl. 13.30.
Oskar Petersen, Sörlaskjóli 72, veröur
jarðsunginn frá Neskirkju í dag,
mánudaginn 9. september, kl. 15.
Bergþóra Elva Zebitz, Bræðraborgar-
stíg 13 Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11.
september kl. 13.30.
Axel Jónsson, fyrrverandi þingmaður,
verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju þriðjudaginn 10. september kl.
15.
Tilkynningar
Fyrsti félagsfundur JC Nes
starfsáriö 1985—86 veröur haldinn í Nýjabæ
v/Sefgarða á Seltjarnarnesi mánudaginn 9.
september nk. kl. 20.30.
Gestur fundarins veröur Pétur Blöndal,
framkvæmdastjóri Kaupþings, og mun hann
f jalla um húsnæöismál almennt.
JC Nes, sem stofnaö var 28. október 1980, er
meö starfssvæði á Seltjarnarnesi og í vestur-.
bæ. Þeir sem hafa áhuga á aö kynnast starf-
semi félagsins eru hvattir til aö mæta á fund-
inn.
Fjölmennið og takið meö ykkur gesti.
Frá Norræna félaginu
í Kópavogi
Aðalfundur Norræna félagsins i Kópavogi
verður haldinn í Þinghóli þriðjudagskvöldið
10. september og hefst klukkan 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Ljósmyndasýning
í Grindavík
Dagana 8., 14. og 15. september nk. verður
haldin í Festi, Grindavík, sýning á vegum
Ljósmyndasafnsins á gömlum ljósmyndum
úr safni Einars Einarssonar frá Krosshúsum.
Myndir þær, sem á sýningunni verða, tók
Einar í Grindavík á árunum 1920—1945.
Á þessu tímabili urðu breytingar miklar í
Grindavík. Otgerð áraskipa lagðist niður í
stað þeirra komu opnir vélbátar og þilfars-
bátar. Bryggjur voru gerðar í hverfunum og
hafnargerð hófst í Hópinu.
Á þessum árum voru einnig fyrstu bílarnir
að koma til Grindavíkur og listamennirnir
Sigvaldi Kaldalóns og Gunnlaugur Scheving
settu svip sinn á mannlíf staðarins.
Myndir Einars Einarsson eru merkar
heimildir um þróun og sögu byggðarlagsin:
á miklum umbrotatímum í sögu þjóðarinnar.
Sýningin, sem sett er upp í tengslum vif
ættarmót Húsatóftaættarinnar, verður opir
frá. kl. 14—22 fyrrgreinda daga og verðui
fólki gefinn kostur á að kaupa myndir.
Tilkynning
Helgi Jóhannsson ráöinn framkvæmdastjóri
Sam vinnuf erða-Landsýnar hf.
Á fundi stjórnar Samvinnuferöar-
Landsýnar hf. 5. sept. 1985, var Helgi
Jóhannsson ráöinn framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar. Hann hefur gegnt fram-
kvæmdastjórastarfinu síðan í ársbyrjun 1984 í
fjarveru Eysteins Helgasonar, sem nú hefur
ráöið sig til annarra starfa.
Helgi Jóhannsson er fæddur 23. apríl 1951.
Hann utskrifaðist frá Viðskiptafræðideild
Háskóla íslands vorið 1977 og var deildar-
stjóri á viðskiptasviði við Fjölbrautarskóla
Suöurnesja þar til hann tók til starfa sem
sölustjóri Samvinnuferða-Landsýnar áriö
1979 — og síðan sem settur framkvæmdastjóri
frá ársbyrjun 1984. Helgi Jóhannsson er
kvæntur Hjördísi Bjarnason. Þau eiga þrjú
börn.
Kynningarfundur á starfsemi
JC Garða, Garðabæ,
verður haldinn 10. sept. kl. 20.30 i Garðaskóla
Garðabæ. JC Garðar hefur starfað frá 1978 og
hefur starfsemi þess eflst með hverju ári. fnn-
an JC Garða er hægt að sækja fjöldann allan
af námskeiðum, meðal annars: námskeið í
ræðumennsku, fundarsköp og fundarstjórn,
vegur til velgengni, mannleg samskipti,
stjórnun, skipulag og ákvörðunartaka.
JC hreyfingin heldur uppi skóla sem er öll-
um opinn og er jafnframt ódýr en markviss
leið til að öðlast reynslu og þekkingu sem
hverjum ungum manni og konu er nauðsyn-
legt í nútímaþjóðfélagi. JC Garöar vill benda
fólki á kynningarfund sinn þar sem meðlimir
hreyfingarinnar eru boðnir og búnir að út-
skýra starfsemi og námskeiðahald hennar.
Hvetja JC félagar alla Garðbæinga 18—35
ára til að mæta á þennan fund og kynna sér
öflugt starf félagsins.
6. tölublað ABC er komið út
Meðal efnis í ABC er frásögn vinningshafa í
verðlaunasamkeppni Flugleiða af helgarferð
til Glasgow. Rætt er viö Onnu Margréti sem
kosin var ungrú Hollywood 1984. Tekið er
viðtal við Unni Berglindi, 7 ára sem sýnt
hefur dans hér heima og í Daumörku. Margar
smásögur eru í biaðinu, svo og vinsæla
myndasagan um Kalla í knattspyrnu. Fjölda
þrauta og brandara er einnig að finna, svo og
fjölbreytt föndur og handavinnu. Krakkar
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að ein-
dagi launaskatts fyrir mánuðina júní og júlí er 15.
september nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga
skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er,
talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og af-
henda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Um helgina Um helgina
United trónar á toppinum
Þaö eru miklar hræringar í sjón-
varpinu um þessar mundir. Ýmsir
sjónvarpsþættir aö koma eöa fara.
Einn albesti skemmtiþáttur um
langan tíma var þátturinn Allo Allo
sem sýndur var á laugardags-
kvöldum. Nú er skarö fyrir skildi og
laugardagskvöldin hafa misst sitt
aödráttarafl. Þó sat ég upptekinn viö
sjónvarpiö á laugardagskvöldið síð-
asta er sýnd var í beinni útsendingu
íþróttakeppni frá Italíu. Einar Vil-
hjálmsson keppti þar í spjótkasti.
Svo illa vildi til aö einungis eitt kasta
hans og frekar fá frá öörum spjót-
kastskeppendum voru sýnd. Hitt er
þó ef til vill meira um vert aö sjón-
varpið færði okkur nær alþjóölegri
íþróttakeppni þar sem margir af
bestu íþróttamönnum heims kepptu.
Urslit eru aö ráöast í íslandsmót-
inu í knattspyrnu, sem hefur veriö
mjög spennandi til þessa. Liö eru
ýmist í seilingarfjarlægð frá meist-
aratith eða án möguleika. Þannig
hafa liö skoppað tU og frá seinni part
sumars og leikurinn er ekki búinn
ennþá. Nokkur liö berjast um efsta
sætið og úrslit ráöast um næstu helgi.
Sjónvarpiö og útvarpiö hafa staöiö
sig vel í sumar aö fylgjast með
íþróttaviðburöum og látiö almenning
vita jafnóðum. Rás 2 hefur lýst leikj-
um og haft menn á öðrum leikjum
sem fara fram á sama tíma. Þetta er
mjög gott fyrirkomulag. Fer aö
veröa svipað og í Englandi þar sem
útvarpsstöðvarnar lýsa einum
leik og láta fylgja meö stööuna í
öörum leikjum. Þar er knattspyrnu-
deildin sú erfiöasta en Manchester
United hefur tekiö örugga forystu.
Besta liö Bretlands efst, þannig á
þetta aðvera.
Kvikmyndir sjónvarpsins hafa
veriö ágætar undanfariö og nokkrar
skemmtilegar á leiðinni. Þaö lítur út
fyrir ágætan vetur fyrir áhugamenn
um f jölmiðla, af nógu aö taka.
Eiríkur Jónsson safnstjóri.
skrifa í Póstkassann og segja frá öllu milli
himins og jaröar í þættinum: Samtíningur.
Ekki má gleyma Popp-þættinum. Aðalefni
hans aö þessu sinni er Eurythmics. Auk þess
er heilsíðumynd af Andy Taylor.
Afmæli
Tapað -fundið
Fía er týnd
Hún týndist frá heimili sínu aö Alfhólsvegi
113, Kópavogi, á sunnudaginn sl. Hún er svört
og hvít með rauða ól um hálsinn og var merkt
þegar hún týndist. Þeir sem hafa orðið varir
við hana vinsamlegast hringi í síina 41498.
Happdrætti
Vinningsnúmer í Byggingar-
happdrætti ÍUT — 1985
Dregið hefur verið í byggingarhappdrætti
1UT—1985. Vinningar komu á eftirtalin
númer:
1. vinningur, bifreið, Toyota Corolla, nr.
41.630.
2. -3. vinningur, IBM-PC einkatölvur, nr.
36.535 og 11.361.
4.-5. vinningur, Apple IIC einkatölvur, nr.
42.554 og 34.864.
6.-7. vinningur, myndbandstæki frá
NESCO, 23,788 og 24.691.
8.—20. vinningur, Sóley verðlaunastólar frá
EPAL, nr. 22.896, 40.261, 24.311, 36.044, 27.657,
5.753, 44.244, 23.927, 11.587, 44.819, 10.134,
43.888,48.939.
Islenskir ungtemplarar.
80 ára er í dag, mánudaginn 9.
september, Jóhanna Rósants, Tungu-
vegi 7 Hafnarfirði. Hún tekur á móti
gestum á heimili dóttur sinnar,
Klausturhvammi 3 Hafnarfiröi, eftir
kl. 19.
90 ára afmæli á í dag 9. september,
Salóme Björnsdóttir, Álfhólsvegi 69
Kópavogi. Hún er vistmaður í
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þar í
bænum óg er viö allgóöa heilsu.
80 ára verður mánudaginn 9.
september Sigríður Björnsdóttir,
Grænumörk 3, Selfossi. Hún er gift
Halldóri Vilhjálmssyni trésmiö sem
lést 1959. Sigríöur tekur á móti gestum
á heimili sonarins og tengdadóttur aö
Birkivöllum 34, Selfossi á sunnudag 8.
september.
60 ára afmæli á í dag Valdimar
Indriðason alþíngismaöur, Háteigi 14
Akranesi. Um árabil var hann fram-
kvæmdastjóri Síldar- og fiskimjöls-
verksmiöju Akraness hf. Hann hefur
mikið starfaö að félags- og stjórn-
málum, var m.a. forseti bæjar-
stjórnarinnar á Akranesi. Valdimar og
Ingibjörg Olafsdóttir, kona hans,
dvelja um þessar mundir í Torquay í
Bretlandi.
Heimsmeistaraeinvígið:
Jafntefli í
biðskákinni
— Karpov fékk þriðju
einvígisskákinni f restað
Kasparov tókst ekki aö nýta sér
stööuyfirburöi í annarri einvígis-
skákinni, sem tefld var áfram á
föstudag og eftir 65 leiki var samið
um jafntefli. Er skákin fór í biö
spáöu margir Kasparov sigri en
jafnteflismöguleikar voru fyrir
hendi og þá lét Karpov ekki fara for-
göröum. I slíkum endatöflum er
hann háll sem áll og „sér allt sem
hægt er að sjá og jafnvel meira” eins
og einn skákunnandi komst að oröi.
Þriöju skákina átti aö tefla á laug-
ardag en Karpov fór fram á aö henni
yrði frestað. Hvor keppandi hefur
rétt á aö fresta þremur skákum.
Sennilega vill hann betri tíma til þess
aö gaumgæfa Nimzo-indversku
vörnina, sem Kasparov tefldi svo
óvænt í fyrstu skákinni. Staðan er
11/2—1/2 Kasparov í vil. Á morgun,
þriðjudag, tefla þeir þriöju skákina.
Þannig var framhaldið í 2.
skákinni. Biðstaðan var þessi:
41, —Hbl
Biöleikurinn, sem varla hefur
komið Karpov á óvart. Þó átti
svartur ýmsa aöra kosti svo sem 41.
— h5eöa41. — h6! ?
42. Rcl
Ekki 42. Rc5? Hb5 og 43. Rxa4 er
svaraö meö 43. — Hxf5+ 44. Kg2 Hfl
og vinnur biskupinn.
42. —Hbl43. Ra2 Ha8
Kasparov afræður aö gefa e-peöiö í
trausti þess aö frelsinginn á a-línunni
sjái um sigurinn. Þaö er vissulega
sjaldgæft aö léttu mennirnir ráöi viö
slíkan frelsingja, sem hrókurinn
styöur viö bakið á.
44. He7 Hb2 45. Hxe2 Hxe2 46. Kxe2
He8+ 47. Kf2
Ekki 47. Kdl vegna 47. — He3 og
hrókurinn kemst inn og 47. Kd2 er
einnig slæmt vegna 47. —a3 og síöan
48. — Hb8 — kóngurinn má ekki
skyggja á biskupinn.
47.—h5 48. Bc3 Hb8 49. Bb4!
Karpov hefur náð aö byggja
virki. Biskupinn lokar fyrir,
hróknum á b- og c-línunni og hindrar
að hann komist inn fyrir.
49. — Hd8 50. Ke2 a3 51. Bc3
Peöið má hann auövitaö ekki
drepa vegna 51. — Ha8 og hann tapar
manni.
51. — fG 52. Bb4 Kf7 53. Rc3 Hb8 54.
Ra2 Hb5 55. g4 Hb8 56. Kd3 Hd8+ 57.
Kc4!
Nú hótar hann að drepa peöiö.
Slæmt hefði verið 57. Ke2? vegna 57.
- hxg4 58. hxg4 Hh8 59. Bd6 Hhl og
síðan 60. — Hal og vinnur.
57. —Hdl 58. Bxg3
58. — Hal 59. Kb3 Hhl 60. gxh5 Hxh3
61. Rc3 Hf3
Ef 61. — Hxh5 þá 62. Re4 og valdar
peðiö óbeint.
62. BclHxf563.h6!g6
64. Re4 Hh5 65. Bb2
og keppendur sömdu um jafntefli,
því að ef 65. -f5 þá 66. h7! Hxh7 67.
Rg5+ o.s.frv. Karpov varöist hárná-
kvæmt í endataflinu.
-JLÁ.