Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Qupperneq 48
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1985.
VEGAGERÐIN
KÆRÐ FYRIR
LANDSPJÖLL
— hreppsnef nd kref st brottrekstrar héraðsstjóra fyrir
ógætilegar sprengingar
Deila um þóknun
fyrirsölu
Flugleiðabréfanna:
„Verður
leyst í fullu
bróðerni”
„Þetta er ekkert stórmál,” sagði
Gunnar Helgi Hálfdánarson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins,
um ágreining félagsins og fjármála-
ráöuneytisins um upphæð þóknunar
fyrir sölu á hlutabréfum ríkisins í
Flugleiöum.
Eins og kunnugt er sá Fjárfestingar-
félagiö um sölu þessara bréfa fyrir
hönd fjármálaráðuneytisins. Þegar
bréfin voru seld til Flugleiöa var sölu-
veröiö ótryggt. Nú greinir menn á um
hvort greiða eigi þóknun fyrir söluna
sem eitt og hálft prósent af heildar-
söluverömæti bréfanna eöa staö-
greiðsluverömæti.
„Viö viljum fá hærri upphæöina, 990
þúsund en þeir vilja greiða lægri upp-
hæðina, um 600 þúsund sem er sjónar-
miö út af fyrir sig,” sagöi Gunnar. „Ég
hef ekki orðiö var viö neinn meiri hátt-
ar ágreining í þessu máli. Þaö verður
leyst í fullu bróöerni.”
-JKH.
Helgarskákmót
á Hólmavík:
Jón L. vann
Jón L. Árnason varö efstur á 30.
helgarmóti tímaritsins Skákar sem
haldiö var á Hólmavík. Hann hlaut 6
v„ af 7 mögulegum. I 2.-3. sæti uröu
Sævar Bjarnason og Halldór G.
Einarsson meö 5,5 v. Ásgeir Þór Árna-
son og Pálmi Pétursson fengu 5 v. og
Karl Þorsteins og Margeir Pétursson
komu næstir meö 4,5 v. Keppendur
voru 28.
Vegleg aukaverölaun, 40.000 kr.,
hreppti Haukur Angantýsson fyrir
bestan árangur í síöustu fimm mótum.
Haukur fékk 42 stig en Karl Þorsteins
fylgdi fast á eftir með 40 stig. Öldungs-
verðlaun hlaut Benóný Benediktsson.
Ný hrina fimm helgarmóta hefst
strax um næstu helgi meö móti á
Djúpavogi, 13.-15. september.
EINANGRUNAR
GLER
666160
LOKI
Hættuástand mun vera í
frystihúsum vegna jaka-
hlaups!
Deilur hafa blossaö upp í Eiða-
hreppi í Suður-Múlasýslu milli
heimamanna og vegageröarinnar.
Vegagerðin lét sprengja upp klett í
svokölluðu Illaklifi á föstudag og
hefur bóndi á Hjartarstööum kært
hana fyrir landspjöll og ógætilega
meðferö sprengiefna. Aö sögn Amar
Ragnarssonar oddvita fældust hross
og særöust er þau hlupu skelfingu
lostin á giröingar, tún skemmdist og
gr jót féll í stríðum straumum í Gilsá.
Hreppsnefnd Eiðahrepps og Vega-
gerö ríkisins hafa ekki verið á eitt
sátt um vegalagningu á þessum staö.
Fyrrnefndi aöilinn hefur viljaö láta
færa veginn framhjá Illaklifi en
Vegagerðin viljaö láta gera viö. „Við
héldum aö þetta mál væri úr sög-
unni,” segir örn Ragnarsson. „Þar
til aðfaranótt föstudags að vegagerð-
armenn byrja aö bora á milli
klukkan 2 og 5 um morguninn. Þaö
var reynt aö fá þá til að fresta aö-
gerðum, en þeir sögöust standa aö
þessu á þennan hátt til þess að okkur
gæfist ekki tími til að bregðast viö.
Guöni Nikulásson verkstjóri lét fýra
öllu upp um klukkan tíu um morgun-
inn og olli stórskemmdum. Þeir
héldu svo áfram að vinna allan dag-
inn og brutu allar reglur um meö-
ferð sprengiefna”.
Hreppsnefnd Eiöahrepps kannar
nú réttarstööu sína. „Viö munum
tala viö þingmenn og ráöherra og viö
hljótum að krefjast þess aö Guöni
Nikulásson héraösstjóri veröi látinn
víkja. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem hann veldur deilum, en nú er
soðið upp úr.”
Ábúandinn á Hjartarstöðum,
Halldór Sigurðsson, hefur kært
Guöna til lögreglu fyrir landspjöll.
„Þaö lentu nokkrir steinar inni á
túni, sem viö munum hreinsa upp,”
sagði Guöni Nikulásson. „Þaö voru
engir hross nálægt þegar
sprengt var. Eg vil ekkert segja um
hvenær viö byrjuðum aö vinna þarna
og vil ekki segja neitt um viöbrögð
heimamanna fyrr en ég hef fengiö
upplýsingar um þaö frá fyrstu
hendi.”
Ummæli sjávar-
útvegsráðherra:
Markleysa
— segir Björn
Dagbjartsson
„Ummæli þau sem sjávarútvegs-
ráðherra hefur haft um tilfærslu kvóta
milli ára eru aö mínu mati algjör
markleysa,” sagöi Björn Dagbjarts-
son, alþingismaöur og einn nefndar-
manna sjávarútvegsnefndar efri
deildar Alþingis, í viötali viö DV.
„Þaö er ljóst aö hann getur ekki
leyft sér aö færa til kvóta næsta árs þar
sem hann veit ekki hvort kvótakerfiö
veröur viö lýöi á næsta ári. Eg trúi því
ekki að sjávarútvegsráðherra ætli að
reyna að setja bráðabirgðalög um
þetta núna, ” sagöi B jörn.
Hann sagði aö öll umræöa væri eftir
á Alþingi um mótun framtíðar-
stefnunnar í sjávarútvegi og í raun
væri ekkert sérstakt sem benti til þess
að kvótakerfið yröi áfram næstu ár.
„Mér virðist aö sjávarútvegs-
ráöherra sé aö versla meö tilfærslu
kvóta gegn því að kvótakerfið verði
samþykkt af Alþingi næstu þrjú árin.
Þaö tel ég vera markleysu,” sagði
Björn. -APH.
Fresturinn
gleymdist
Ekkert veröur úr uppboöi því er
sýslumaðurinn í Baröastrandarsýslu
hafði boðaö til í dag á eignum Þörunga-
vinnslunnar á Reykhólum. „Ráðuneyt-
iö ætlaöi aö sækja um frest á greiðslu-
skuldunum til Þróunarsjóðs en svo
gleymdist aö sækja um frestinn,”
sagöi Kristján Þór Kristjánsson,
framk væmdast j óri Þörungavinnslunn-
ar, í viötali viö DV í morgun. Aö sögn
Kristjáns verður sótt um frestinn í dag
og fellur þá fyrirhugaö uppboð niöur.
ás
-HHEI.
Eldsupptök í birgðaskemmunni eru ekki kunn en grunur er um ikveikju.
DV-mynd Heiðar Baldursson.
GRUNUR UMIKVEIKJU
—birgðageymsla ístaks á Kef lavíkurf lugvelli brann um helgina
„Það bendir fátt til þess aö elds-
upptök séu eðlilegar ástæöur,” segir
Sveinn Eiríksson, slökkviliðsstjóri á
Keflavíkurflugvelli, um brunann í
birgða- og verkfærageymslu Istaks.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
varö elds vart um sexleytiö á laugar-
dagsmorgun. Eldurinn var í báru-
járnsklæddum bragga sem fyrirtæk-
ið ístak notar sem birgða- og verk-
færageymslu. Slökkviliö réö niður-
lögum eldsins á rúmlega tveimur
tímum. Urðu engin slys á mönnum.
Sögusagnir eru í gangi um aö elds-
voöinn kunni að vera af mannavöld-
um. Spurningu þar að lútandi svar-
aöi Sveinn Eiríksson eins og aö ofan
greinir, en bætti því við aö hvorki hiti
né rafmagn væri á húsinu og þvi væri
efast um aö „eðlilegar ástæöur”
væru rót brunans. „Málið er í rann-
sókn og ég get ekki svarað því aö svo
stöddu hvort viö höfurn einhverjar
vísbendingar.”
Gashylki voru geymd í birgöa-
skemmunni og lagði slökkviliðiö
áherslu á að kæla húsið og hylkin.
Ekki tókst aö bjarga neinu af inni-
haldi skemmunnar og er hér því um
talsvert tjón aö ræöa.
ás.