Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1996, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1996 JjV
Heimir Már Pétursson er nýr framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins. DV-mynd ÞÖK
Dagur í lífi Heimis Más Péturssonar, nýs framkvæmdastjóra Alþýðubandalagsins:
Pólitískur refur, bragðarefur
eða kannski Mikki refur?
-voru vangavelturnar á Alþingi þegar fréttir bárust af forseta íslands í Danmörku
Það kemur vel á vondan að eina
útvarpsstöðin sem útvarpsvekjar-
inn minn samþykkir er Kanaút-
varpið. Eftir að loftnetið slitnaði af
klukkunni sendi hún lengi vel að-
eins frá sér truflanir en af ein-
hverjum dularfullum ástæðum tók
svo Kaninn upp á því að vekja
mig, að vísu dálítið bjagaður.
Eftir hefðbundin morgunstörf
var Mogginn gripinn og haldið upp
á efri hæðina þar sem Boxer og
Tinni teygðu sig letilega á fætur.
Þá var að hleypa Blíðu inn úr
kuldanum en hún stendur vaktina
um landareignina á næturnar.
Kettimir vita að fyrsta verk tvífæt-
linganna á heimilinu á morgnana
er að gefa þeim að borða. Hvort á
það nú að vera kanínugúllas eða
túnfiskur?
Á meðan kettimir smjatta á
morgunmatnuiH reyki ég fyrstu
sígarettu dagsins á meðan blaða-
maður Morgunblaðsins lýsir fyrir
mér hlýjum móttökum sem forseti
íslands og frú fengu hjá dönsku
konungsijölskyldunni. Ólafur
Ragnar kann sig sem þjóðkjörinn
forseti og hellir sjálfur upp á kaffi
fyrir danskan blaðamann. Og svo
bað hann guð að blessa Margréti
Þórhildi og fjölskyldu hennar.
Öðruvísi sjónarhorn
Eftir stuttan stans á skrifstofu
Alþýöubandalagsins hélt ég niður
á Alþingi til að sitja mikilvægan
fund. Kom við á pósthúsinu til að
sækja málverk sem vinur minn
Bjartmar Guölaugsson málaði og
sendi mér frá Danaveldi. Þar hefur
Bjartmar brillerað sem myndlist-
ar- og tónlistarmaður undanfarin
ár og myndin mín hefur farið víða
til sýningar. Enda gerði borgar-
stjórn Óðinsvéa Bjartmar að borg-
arlistamanni.
í mínu fyrra starfi var ég vanur
að bíða fyrir utan fréttnæma fundi
í stjómmálunum. Nú horfir svo
við að ég sit fyrsta fund fulltrúa
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks,
Kvennalista og Þjóðvaka um hugs-
anlega samvinnu eða jafnvel sam-
einingu þessara flokka fyrir næstu
kosningar. Óneitanlega er þetta
annað sjónarhorn. Ég velti því fyr-
ir mér hvort ég sé nútímalegur
jafnaðarmaður eða bara gamal-
dags kreppukommi en kemst svo
fljótlega að þeirri niðurstöðu að
„ég sé bara ég, ekki annar“ eins og
Megas komst að orði í einum texta
sinna.
Frakkar mynda
brúðkaup homma
Eftir þennan fyrsta alvörufund
um vinstra samstarf og spjall við
nokkra fyrrverandi kollega í blaða-
mannastétt lá leiðin út á Hótel
Loftleiðir til að taka á móti frönsk-
um sjónvarpsfréttamanni. Hann er
fyrstrn- til landsins af fjögurra
manna hópi sem ætlar að fylgjast
með því þegar tveir vinir mínir
staðfesta samvist sína í dag.
Frökkum þykja íslensku samvist-
arlögin merkileg. í landi rómantík-
urinnar þykir ekki við hæfi sam-
kvæmt lögum að tveir karlmenn
eða tvær konur bindi trúss sitt.
Ekkert upplýsingartímabil hjá
Frökkum í þeim efnum. Svona
erum við miklir menn íslendingar,
að frátöldum nokkrum Lundakoll-
um í Eyjum og fommönnum á
fasta landinu.
Eftir að Frakkanum hafði verið
skilað inn á hótel lá leiðin á nýjan
leik út á Alþingi. Þar voru atburð-
ir dagsins ræddir við nokkra þing-
menn, bæði úr Alþýðubandalagi og
öðrum flokkum. Þau tíðindi höfðu
borist frá Danaveldi að bílalest for-
seta íslands og Danadrottningar
hefði keyrt yfir ref. Menn ræddu
hvort það hefði verið pólitískur
refur, bragðarefur eða bara ósköp
venjulegur danskur refur. Von-
andi barnanna vegna að þetta hafi
ekki verið Mikki refur.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður minn, fjarstýrir Alþýðu-
bandalaginu þessa dagana með öll-
um þeim leiðum sem rafræn tækni
nútímans býður upp á. Ég hef ekki
tölu á öllum þeim erindum sem
sinna þurfti fyrir hana þennan
dag. Við áttum nokkur ítarleg sam-
töl um hitt og þetta. Það einkennir
samtöl mín við Margréti að ég fer
frá þeim verkefnum hlaðinn og
ekkert nema gott um það að segja.
Kvöldmaturinn var snæddur
undir fréttaflutningi útvarps og
sjónvarps. Ég er orðinn sérþjálfað-
ur í að hlusta bæði á sjöfl-éttir
RÚV og horfa á ísland í dag. Þetta
kvöldið tróð Rúnar Þór, bróðir
minn og tónlistarmaður, upp á
Stöð 2 með eitt af nýju lögunum
sínum. Eftir fréttir var aftur rætt
við Frakkann. Það er að mörgu að
hyggja fyrir myndatöku af brúð-
kaupinu. Og þegar ég dottaði um
síðir fyrir framan sjónvarpið man
ég hvorki á hvaða stöð ég var að
horfa né hvað var á skjánum. Síð-
asta hugsunin fyrir svefhinn var:
Það verður mikið að gera á morg-
un. En kötturinn til fóta hefur
sjálfsagt verið aö velta því fyrir sér
hvað hann fengi í morgunmat.
Finnur þu fimm breytingar? 386
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð áttugustu og
fjórðu getraun reyndust vera:
Brynjar Lárus Brynjarsson Anna Katrín Sveinsdóttir
Víðimýri 6 Gaukshólum 2
550 Sauðárkróki 111 Reykjavík.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriöi skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 4.900, frá Bræðmnum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond- bók-
in Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagiö með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 386
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík