Morgunblaðið - 27.11.2004, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 27
MENNING
!
"
#$$!
%# & !&! !$$'())
EIN mesta mezzósópransöngkona
okkar daga, Anne Sofie von Otter
syngur á tónleikum á Listahátíð 4.
júní í vor. Meðleikari hennar á
tónleikunum verður samstarfs-
maður hennar til margra ára,
Bengt Forsberg, sem sjálfur er í
miklum metum sem einn besti
ljóðapíanisti samtímans. Anne So-
fie von Otter er óvenju fjölhæf
söngkona og er jafnvíg á óp-
erusöng, ljóðasöng og barrokkt-
ónlist, en hefur einnig sungið bæði
leikhúss- og dægurtónlist, og
geisladiskar með söng hennar eru
margverðlaunaðir. Hún hefur
margsinnis hreppt Grammyverð-
launin, nú síðast á þessu ári, sem
besti söngvarinn.
Anne Sofie von Otter fæddist í
Stokkhólmi og stundaði söngnám
sitt í Guildhall School of Music
and Drama í London. Hún nam
ljóðasöng af Erik Werba, sem var
Íslendingum að góðu kunnur, sem
kennari nokkurra okkar bestu
söngvara, og píanóleikaranum
Geoffrey Parsons, í Vínarborg, og
hélt námi áfram í London hjá
Veru Rosza. Á óperusviðinu þótti
hún strax afburðatúlkandi á óp-
erum Mozarts, þar sem helstu
hlutverk hennar eru Cherubino í
Brúðkaupi Fígarós, Dorabella í
Cosi fan tutte og Sextus í La
clemenza di Tito. Þá sló hún líka í
gegn í hlutverki tónskáldsins í óp-
eru Richards Strauss Aríönnu á
Naxos.
Þrátt fyrir gríð-
arlega velgengni í
óperuheiminum hef-
ur Anne Sofie von
Otter helgað stóran
hluta ferils síns
ljóðasöng, einkum
ljóðum Brahms,
Mahlers, Strauss,
Wolfs og Zeml-
inskys. Hún er líka
þekkt fyrir fram-
úrskarandi túlkun
sína á norrænum
sönglögum sem hún
hefur iðulega á efnis-
skrá sinni.
Von Otter er
fastagestur á öllum kunnustu óp-
erusviðum heims, Metropolitan
óperunni í New York, Konunglegu
óperunni í Covent Garden, Scala
óperunni í Mílanó og Þýsku óp-
erunni í Berlín. Hún er hávaxin og
tíguleg og hefur því verið afar eft-
irsótt í svokölluð buxnahlutverk,
þar sem mezzósópransönkonur
eru í hlutverkum karla, eins og
tíðkaðist gjarnan á 17. og 18. og
að nokkru allt fram á 20. öld.
Barrokktónlistin hefur líka notið
krafta Önnu Sofiu, sem og tónlist
20. aldarinnar. Hún er vinsæll
gestur á öllum helstu tónlistar- og
listahátíðum um allan heim og er
dáð jafnt vestan hafs og austan.
Frá 1985 hefur Anne Sofie von
Otter hljóðritað fyrir Deutsche
Grammophon útgáfufyrirtækið, og
útgefnir titlar undir
hennar nafni skipta
tugum.
Góð tónlist, hverrar
tegundar sem er, virð-
ist hugnast þessari
virtu söngkonu, og
þeir listamenn sem
hún hefur unnið með
spanna ólík svið tón-
listarinnar, allt frá
helstu sérfræðingum
barokksins, eins og
John Eliot Gardiner,
til rokkmeistara á borð
við Elvis Costello, en
diskur með afrakstri
samvinnu þeirra kom
út fyrir skömmu.
Þegar aldarafmæli Nóbelsverð-
launanna var fagnað í Stokkhólmi
árið 2001 var Anne Sofie von Ot-
ter ásamt kollega sínum Bryn
Terfel, fengin til að syngja á sér-
stökum tónleikum fyrir alla þálif-
andi Nóbelsverðlaunahafa heims,
sem boðið hafði veið til Stokk-
hólms af tilefninu. Anne Sofie von
Otter þykir óvenju miklum mús-
íkgáfum gædd. Rödd hennar er
þýð og falleg, og hún þykir hafa
sérstaklega næmt eyra fyrir blæ-
brigðum ólíkra stíltegunda í tón-
listinni.
Á efnisskrá þeirra Bengts Fors-
bergs á Listahátíð í vor verða nor-
ræn og írsk sönglög, ljóðasöngvar
eftir Schubert og Mahler og leik-
hússlög eftir Kurt Weill.
Tónlist | Söngkonan heimsfræga Anne Sofie von Otter
verður með ljóðatónleika á Listahátíð í Reykjavík í vor
Óvenju músíkölsk og
afar fjölhæf söngkona
Anne Sofie von Otter
PLÁCIDO Domingo,
tenórsöngvarinn frægi,
er væntanlegur hingað
til lands í mars á næsta
ári, þar sem hann mun
halda tónleika í Egils-
höll í Grafarvogi þann
13. þess mánaðar. Sin-
fóníuhljómsveit Íslands
mun leika með Dom-
ingo á tónleikunum
undir stjórn Eugene
Kohn auk íslenskra ein-
söngvara og kórs, þó að
ekki hafa verið teknar
endanlegar ákvarðanir
um val í þeim efnum.
Að sögn Þóru Guð-
mundsdóttur, eins skipuleggjenda
tónleikanna, er um stórviðburð að
ræða, sem hefur verið í vinnslu í tvö
ár. „Ég vil nú meina að þetta sé það
stærsta sem kemur til Íslands, því
Domingo er frægasti tenór í heim-
inum dag. Hann heldur ekki marga
konserta á ári, á bilinu átta til tíu, og
ég myndi því segja að við værum af-
skaplega heppin að fá hann,“ segir
hún. Í boði verða um 5.000 sæti á tón-
leikunum og verður miðaverð frá
9.900 krónum. Þóra segir markið sett
á að selja alla miðana á tónleikana.
Hún segir Domingo ekki enn hafa
gefið upp hvað hann hyggst syngja á
tónleikunum, en segist sjálf ekki
myndu slá hendinni á móti að heyra
O, sole mio í flutningi hans í Egilshöll.
„Ég kannast við það frá því að ég var
pínulítil frá öðrum söngvurum og það
yljar manni alltaf um
hjartarætur, svo ég
hefði ekkert á móti
því,“ segir Þóra hlæj-
andi að lokum.
120 ólík hlutverk
Plácido Domingo
þykir einn fremsti lista-
maður heims í dag á
sviði óperulistarinnar.
Hann er fæddur í
Madrid á Spáni en flutt-
ist til Mexíkó átta ára
gamall, þar sem hann
hlaut tónlistarmenntun
sína. Frumraun hans á
óperusviðinu var Al-
fredo úr La Traviata í Monterrey-
óperunni, en eftir hana starfaði hann í
ísraelsku þjóðaróperunni í tvö og
hálft ár. Árið 1966 kom hann fyrst
fram í Bandaríkjunum og 1968
þreytti hann frumraun sína við
Metropolitan-óperuna í New York og
er starfsárið nú hið 36. sem hann
starfar við óperuhúsið.
Domingo kemur reglulega fram við
öll helstu óperuhús heims og hefur
sungið 120 ólík óperuhlutverk og
sungið inn á yfir 100 geisladiska, en
þar af eru 97 óperur í fullri lengd. Um
þessar mundir stjórnar hann bæði
þjóðaróperunni í Washington og Los
Angeles-óperunni, og var um tíma
orðaður við stöðu óperustjóra Met-
ropolitan. Hann hefur einnig staðið
fyrir ýmsum verkefnum til styrktar
upprennandi óperusöngvurum.
Tónlist | Plácido Domingo á tónleikum í
Egilshöll í mars á næsta ári
Heldur aðeins
tíu tónleika á ári
Plácido Domingo
ÍSLENSKAR hrollvekjur eru fá-
gæti. Það var því með mikilli eft-
irvæntingu sem Börnin í Húmdöl-
um eftir Jökul Valsson var brotin
um kjölinn. Hlutur þeirra greina
bókmenntanna sem gjarnan eru
kenndar við afþreyingarbók-
menntir, svo sem hrollvekjur, vís-
indaskáldsögur, glæpasögur og ást-
arsögur hefur aldrei verið mikill á
íslenskum jólabókamarkaði. Und-
anfarin ár virðist þó sem glæpasag-
an hafi fengið uppreisn æru. Ef
skrif hins liðlega tvítuga höfundar
Barnanna í Húmdölum gefa for-
smekkinn af því sem koma skal er
aldrei að vita nema álögunum verði
senn létt af öðrum greinum dæg-
urbókmenntanna. Nú stígur fram á
ritvöllinn sú kynslóð höfunda sem
alist hefur upp við afþreying-
armenningu á borð við kvikmyndir,
teiknimyndasögur og tölvuleiki frá
blautu barnsbeini. Áhugavert verð-
ur að fylgjast með því hvort sú
kynslóð muni að einhverju leyti
verða kyndilberi íslenskra dæg-
urbókmennta og auka veg þeirra á
komandi árum.
Dægurmenning samtímans virð-
ist vissulega hafa verið Jökli inn-
blástur í Börnunum í Húmdölum.
Bæði myndmál, frásagnaraðferð og
efnistök bera þess glöggt vitni.
Einn helsti styrkur bókarinnar eru
myndrænar lýsingar Jökuls.
Honum fer það vel úr hendi að
draga upp ljóslifandi myndir af
staðarháttum, persónum og atburð-
um. Sumar lýsingar hans minna
um margt á myndskeið úr kvik-
myndum. Í hinum
fjölmörgu bardaga-
og áflogasenum er
gjarnan notast við ýkt
myndmál kvik-
myndanna. „Hann
hafði náð að draga
peysuna á pabba yfir
höfuðið á honum, ríg-
hélt í hana og sneri
pabba hring eftir
hring líkt og hann
væri í kúlukasti.“ Hér
er dregin upp kómísk
mynd af slagsmálum
tveggja fullorðinna
manna sem svipar
helst til teiknimyndar.
Ekki líður þó á löngu uns alvaran
tekur við og hasar færist í leikinn.
„Hann kastaði sér á pabba með út-
rétta arma og lenti á honum með
fullum þunga. Rúðan mölbrotnaði
og þeir ultu báðir út um gluggann,
steyptust niður og snerust í hring í
loftinu í heiftarlegu faðmlagi“ (bls.
188).
Það er þó ekki aðeins í mynd-
málinu sem daðrað er við heim
kvikmyndanna heldur leikur höf-
undur sér einnig að því að nýta sér
frásagnaraðferð sem er líklega
þekktust fyrir að láta hárin rísa á
höfði gesta bíóhúsa. „Spennufalls-
kötturinn“ er gott dæmi. Hver
þekkir það ekki að vera búinn und-
ir að hrökkva í kút þegar eitthvað
hræðilegt er við það að gerast á
tjaldinu. Áhorfandinn kippist til í
sæti sínu – orsökin er köttur.
„Skyndilega heyrðist þrusk frá
gluggakistunni, bak við gard-
ínurnar. Nonni hrökk við og
Brynja lyfti sér upp á olnbogana og
kveikti á vasaljósinu. Þykkur ljós-
geislinn skarst í gegnum myrkrið
og lenti á Snúllu sem stökk niður á
gólfið og hljóp út úr herberginu“
(bls. 157). Vart þarf að taka fram
að stuttu eftir að önd-
inni hefur verið varpað
léttar, eftir spennu-
fallið, gerist að sjálf-
sögðu eitthvað hræði-
legt.Önnur algeng leið
til þess að hrella áhorf-
endur og að þessu
sinni lesendur er að
láta þorparann lifna við
eftir að hetjurnar telja
sig hafa yfirbugað
hann. Þessi leikur að
formi kvikmyndanna er
djarfur og spennandi
og tekst nokkuð vel
upp.
Börnin í Húmdölum
er grípandi hrollvekja sem heldur
lesandanum í heljargreipum. Lát-
laus stíllinn fer sögunni vel. Um-
hverfi hrollvekjunnar er komið
listilega til skila. Helsti veikleiki
bókarinnar er persónusköpun full-
orðna fólksins sem er nokkuð
grunn. Við hana hefði mátt leggja
meiri rækt. Einnig hefði mátt
fækka ofbeldislýsingum bókarinnar
því þótt þær séu oft vel skrifaðar
verða þær nokkuð langdregnar
þegar líða tekur á bókina. Lýsing-
arnar eru gjarnan nokkuð hrotta-
fengnar og því sennilega ekki ætl-
aðar viðkvæmum. „Um leið og
konan tók í öxl hennar kipptist Ey-
dís til og öskraði. Orkan sem leyst-
ist frá henni var svo kröftug að
hún tætti konuna í sundur. Blóð og
líkamsleifar slettust upp eftir
veggjunum, alla leið upp undir
loft …“ (bls. 268).
Óskandi er að hrollvekja Jökuls
Valsonar greiði leið annarra af-
þreyingarbókmennta inn á íslensk-
an bókamarkað. Börnin í Húmdöl-
um auðgar svo sannarlega
jólabókaflóruna í ár.
Grípandi hrollvekja –
ekki ætluð viðkvæmum
BÆKUR
Hrollvekja
Höfundur: Jökull Valsson.
Kápa: Hunang. Prentun: Oddi hf. 312 bls.
Bjartur, 2004.
Börnin í Húmdölum
Sif Sigmarsdóttir
Jökull Valsson
SAGNADANS er heiti nýútkom-
innar geislaplötu sem er síðasta
hljóðritun söngkonunnar Önnu Pál-
ínu Árnadóttur, en platan var hljóð-
rituð eftir afar vel heppnaða tón-
leika í Þjóðmenningarhúsinu í ágúst
sl.
Íslenskir sagnadansar, einnig
nefndir fornkvæði, eru danskvæði
sem eiga það sammerkt með forn-
sögunum að höfunda er aldrei getið.
Eftir heimildum að dæma hafa
sagnadansar lifað góðu lífi á Íslandi
allt fram á 18. öld.
Í endursköpun sagnadansanna er
haft að leiðarljósi að koma ljóðunum
vel til skila en einnig að dansinn sé
undirliggjandi þannig að skemmt-
unin og krafturinn sem þessi menn-
ingarfjársjóður býr yfir skili sér sem
best. Efnið er áhugavert með tilliti
til samfélagsins til forna, þ.á m. má
nefna stöðu og örlög kvenna.
Flytjendur: Anna Pálína Árna-
dóttir, söngur, Tomas Lindberg, gít-
ar, mandóla og búsúkí, Görgen Ant-
onsson, fiðla, Henning Andersson,
fiðla, og Pétur Grétarsson, slagverk.
Á plötunni er að finna þjóðlög og
nýrri lög sem Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson og Anna Pálína Árna-
dóttir hafa samið við fornkvæðin.
Vésteinn Ólason prófessor ritar for-
mála og allir textar eru birtir á ís-
lensku og í enskri þýðingu Bernards
Scudders. Hlynur Helgason hannaði
umslag.
Anna Pálína & sænska tríóið Draupner
Miðaldir og
nútíminn
kallast á
Sagnadans er komin út!