Morgunblaðið - 28.05.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2008 17
LANDIÐ
Snæfellsbær | Nemendur grunnskóla Snæ-
fellsbæjar vinna þessa vikuna að gróðursetn-
ingu plantna, göngustígagerð og sáningu í
matjurtagarð. Er vinnan liður í umhverf-
isverkefni skólans.
Starfsstöðvar Grunnskóla Snæfellsbæjar á
Hellissandi og í Ólafsvík hafa fengið Græn-
fánann afhentan sem viðurkenningu á öfl-
ugu umhverfisstarfi skólans. Fáninn var af-
hentur nemendum 5. til 10 bekkjar við
hátíðlega athöfn í Ólafsvík og nemendum
1.-4. bekkjar við athöfn á Hellissandi. Með
því að draga fánann að hún við starfsstöðvar
Grunnskóla Snæfellsbæjar hafa allir skólar
bæjarins fengið þessa umhverfisviðurkenn-
ingu frá Landvernd. Áður höfðu Lýsuhóls-
skóli og leikskólinn Krílakot fengið fánann.
Snæfellsnes hefur fengið vottun „Green
Globe“ sem sjálfbært samfélag og miðað við
öflugt starf barnanna í Snæfellsbæ virðist
framtíð umhverfisverkefnisins vera í örugg-
um höndum.
Grunnskóla Snæfellsbæjar hefur verið út-
hlutað land upp af byggðinni í Ólafsvík til að
skipuleggja grenndarskóg. Nemendur 5. til
10. bekkjar helguðu sér þar reit, fyrir græn-
fánaathöfnina. Í tengslum við athöfnina á
Hellissandi tók umhverfisnefnd skólans að
sér að gróðursetja fyrstu birkiplönturnar
sem skólinn fékk úthlutaðar úr Yrkjusjóði. Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Nemendur vinna vel
að umhverfismálum
LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ verða
haldin í júní í nokkrum stöðum á veg-
um ljosmyndari.is.
Á Akureyri verða þrjú námskeið í
byrjun júní, á Egilsstöðum 9. og 10.
júní, á Höfn í Hornafirði 11. og 12.
júní og í Borgarnesi 18. og 19. júní.
Hvert námskeið tekur tvo daga, fjór-
ar klukkustundir hvorn dag.
Ljósmyndanámskeiðin eru fyrir
þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í
stafrænni ljósmyndatöku og einnig
þá sem vilja öðlast meiri þekkingu.
Kennt er á allar tegundir mynda-
véla. Farið er í helstu stillingaratrið-
in á myndavélinni, almenn mynda-
taka útskýrð og gefin góð ráð til að
ná betri myndum. Sýnt er hvernig
hægt er að koma betra skipulagi á
myndasafnið og geyma myndir á
öruggan hátt. Hægt er að sjá nánari
upplýsingar og skrá sig á vefsíðunni
www.ljosmyndari.is. Leiðbeinandi
verður Pálmi Guðmundsson.
Ljósmynda-
námskeið
um landið
Hveragerði | Tónlistarhátíðin Bjart-
ar sumarnætur verður haldin í
Hveragerði um næstu helgi. Þrennir
tónleikar verða í Hveragerðiskirkju.
Hátíðartónleikar verða á föstu-
dagskvöldið, kl. 20, tileinkaðir Jo-
hannesi Brahms á 175 ára fæðing-
arafmæli hans. Á laugardag, kl. 17,
verða leikin verk eftir Messiaen,
Mozart og fleiri og tónleikar á
sunnudag, kl. 20, verða með frönsk-
um blæ.
Listrænir stjórnendur hátíðarinn-
ar eru Gunnar Kvaran og Guðný
Guðmundsdóttir. Tónlistina flytja
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir, Hulda Jónsdóttir, Sigurð-
ur I. Snorrason og Tríó Reykjavíkur.
Bjartar
sumarnætur
Blönduós | Hafíssetrið á Blönduósi
verður að þessu sinni opnað laugar-
daginn 31. maí með ráðstefnunni
„Norðurslóðir, náttúra og mannlíf“
og sýningu heimildarmyndar.
Dagskráin hefst í Félagsheimilinu
kl. 13. Ráðstefnustjóri verður Skúli
Skúlason, rektor Háskólans á Hól-
um, og meðal fyrirlesara verður
Rögnvaldur Ólafsson prófessor.
Frumsýnd verður heimildarmynd
eftir Svein M. Sveinsson kvikmynda-
gerðarmann um leiðangur inn í botn
Scorebysunds og Þór Jakobsson
segir frá fræðslu- og könnunarferð
til Austur-Grænlands.
Við lok ráðstefnunnar opnar Arn-
ar Þór Sævarsson bæjarstjóri Haf-
íssetrið en þetta er þriðja sumarið
sem það starfar.
Ráðstefna
um norður-
slóðir
♦♦♦
♦♦♦
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
VILTU STUNDA NÁM VIÐ HR OG MIT SAMTÍMIS?
Háskólinn í Reykjavík hefur gert samstarfssamning við einn besta og virtasta tækni-
háskóla í heimi, MIT í Boston í Bandaríkjunum. Með þessum samningi gengur HR inn í
samstarf MIT og háskóla í Singapúr sem gerir meistaranemum í verkfræði við HR kleift
að taka hluta námskeiða sinna við MIT.
MIT er einn framsæknasti háskóli í heimi og hefur starf skólans getið af sér tæknilegar
framfarir á ótal mörgum sviðum. Þessi samningur er lýsandi dæmi um þá framsækni
og þann stórhug sem einkennir allt starf Háskólans í Reykjavík.
Hefurðu áhuga á verkfræðinámi? Komdu þá í HR og MIT samtímis.
Framtíðin er HR.
Rekstrarverkfræði BSc Ákvarðanaverkfræði MSc Fjármálaverkfræði BSc & MSc
Heilbrigðisverkfræði BSc & MSc Hugbúnaðarverkfræði BSc & MSc Véla- og rafmagnsverkfræði MSc
Hátækniverkfræði BSc
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8