Morgunblaðið - 28.05.2008, Síða 21
og breytast á misjöfnum hraða og
eiga ekki að þurfa að hugsa um
þetta. Það kann ekki góðri lukku að
stýra ef nokkur börn eru að leika sér
saman í Wii Fit, eitt þeirra er
þyngra en hin og fær að vita að það
sé yfir kjörþyngd. Markmiðin sem
slík eru góð en það er ekkert sér-
staklega uppbyggjandi fyrir krakka
að heyra að hann þurfi að léttast.“
Morgunblaðið/Frikki
rækt
Jafnvægisæfingarnar eru
góðar til að styrkja kvið og
bak á meðan þolæfing-
arnar virka alls ekki.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2008 21
Þetta er sambærilegt
við orðasambandið
sýknt og heilagt. Eng-
um dettur í hug að
segja sýknt á heilagt.
x x x
Einhvern tímannvar Víkverja
bent á að það bæri að-
eins að nota orðið þó
ef hægt væri að setja
samt í staðinn. Ella
ætti að nota þó að eða
þótt. Víkverji hefur
reynt að fara eftir
þessu, en rekur sig
ítrekað á það að jafn-
vel virtustu pennar
nota jöfnum höndum þó, þótt og þó
að. Og þó.
Kunningi Víkverja er lítt hrifinn
af því þegar sagt er að einhver sé
engum líkur og þykir það flat-
neskjulegt. Hér sé ekki átt við
mannjöfnuð og betur fari á að segja
að Jón sé engu líkur, það sé á öðru
plani, mun yfirgrips- og aðsóps-
meira.
x x x
Gagnsæi málsins er mikilvægt ogaugljóst að upprunaleg merk-
ing ýmissa orðasambanda hefur litla
skírskotun í nútímasamfélagi. Allir
vita til dæmis að það að vera kom-
inn á fremsta hlunn merkir að vera í
þann veginn að gera eitthvað, en
færri vita að hlunnur merkir til
dæmis tré eða hvalbein, sem notað
er til að skorða skip. Það er því
spurning hvort ekki sé ástæða til að
nútímavæðingar á þessu sviði sem
öðrum. Fyrir margt löngu hætti
Flosi Ólafsson leikari að berjast í
bökkum og fór að berjast í bönkum.
Síðara orðasambandið er vitaskuld
mun skiljanlegra nútímamanninum
og skírskotar beint til reynslu hans,
ekki síst um þessar mundir. Það er
fremur fornt að tala um að of seint
sé að byrgja brunninn þegar barnið
er dottið í hann, enda brunnar frem-
ur fáséðir hér á landi. Ef hins vegar
væri sagt að of seint væri að byrgja
barinn þegar barnið væri dottið í
það myndi það skiljast um leið.
Föst orðatiltæki ogorðasambönd
eiga það til að breyt-
ast í tímans rás, jafn-
vel þannig að þau
verði merkingarlaus.
Hvað merkir það til
dæmis þegar talað er
um að eitthvað gerist
oft á tíðum? Er þá átt
við að það geti gerst
oft, sama hvaða árstíð
er? Haft var fyrir Vík-
verja að þarna væri á
ferðinni tvítekning og
rétt væri að segja oft
og tíðum. Tvítekn-
ingin er þarna stíl-
bragð til áhersluauka.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
ingastaði, vinnustaði eða heimili ætt-
ingja og vina. Ástæður fyrir því að
forðast tóbaksreyk eru margar, en í
óbeinum reyk eru fleiri en 250 skað-
leg efni og um 50 þeirra eru krabba-
meinsvaldandi (þ. á m. ammóníak og
blásýra). Óbeinar reykingar eru sér-
staklega hættulegar börnum og auka
hættuna á andarteppu, eyrnabólgu,
lungnakvefi og lungnabólgu. Það
skiptir því sköpum að gera umhverfið
reyklaust, sérstaklega þar sem börn
eru tíðir gestir.
Til að aftra ungu fólki frá því að
byrja að reykja er vænlegt að …
hafa skýrar reglur og viðurlög
varðandi tóbaksnotkun. Þessi þáttur
vegur einna þyngst til að skýra af
hverju ungt fólk byrjar ekki að
reykja.
ungt fólk viti hver raunveruleg út-
breiðsla reykinga er, þ.e. að reyk-
ingar séu ekki eitthvað sem „allir
gera“. Að meðaltali telja krakkar í
10. bekk á Íslandi, sem reykja ekki að
um 30% jafnaldra sinna reyki dag-
lega. Af þeim sem reykja daglega of-
meta hinsvegar níu af hverjum tíu
fjöldann og telja hlutfallið vera 47%
að meðaltali. Raunin er hinsvegar sú
að aðeins um 11% af 10. bekkingum
reykja daglega (ESPAD, 2007).
segja frá skammtímaáhrifum
reykinga, svo sem andfýlu, minna
þoli, lykt af fötum og meiri hættu á að
fá bólur og gular tennur.
leggja áherslu á að hætt sé við að
verða háður nikótíninu í sígarettum á
nokkrum dögum.
Hinn árlegi alþjóðlegi tóbakslausi
dagur (eða „World no tobacco day“)
er haldinn laugardaginn 31. maí og í
ár er þemað „tóbakslaus framtíð“.
Styðjum ungt fólk með því að nýta
umræðuna til að draga enn frekar úr
tóbaksneyslu á Íslandi.
Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnis-
stjóri fræðslumála hjá Lýðheilsustöð.
13:00 – 13:10 Setning – Ebba Þóra Hvannberg, forseti verkfræðideildar HÍ
13:10 – 13:25 Gunnar Svavarsson, alþingismaður og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, fulltrúi 20 ára verkfræðinga
13:25 – 13:40 Björn Margeirsson, doktorsnemi: Að hefja doktorsnám í verkfræðideild HÍ
Meistaradagur verkfræðinnar
fimmtudaginn 29. maí kl. 13:00 – 18:00
í VR-II, Hjarðarhaga 6
VERKFRÆÐISTOFNUN www.verk.hi.is
» Stofa 158
Allir velkomnir www.verk.hi.is
Dagskrá:
14:00
15:00
16:00
VERKEFNASTJÓRNUN
(stofa 158)
Kynning á verkefni fjöl-
þjóðlegs hóps meistara-
nema:
A real life international
project experience
PM Board Game
Umsjón: Helgi Þór Ingason
Meistaravörn:
Gréta María Grétarsdóttir
Stjórnun vöruþróunar
Leiðb.: Helgi Þór Ingason
TÖLVUNARFRÆÐI OG
HUGBÚNAÐARGERÐ
(stofa 157)
Meistaravörn:
Guðmundur Freyr
Tunerific. Gagnvirkur
tónstillir fyrir farsíma
Leiðb.: Jóhann P. Malmquist
Meistaravörn:
Anna Ólafsdóttir
Björnsson
Ubiquitous computing
in parliament
Leiðb.: Ebba Þóra Hvannberg
Meistaravörn:
Jónas Árnason
Improving particle systems -
Utilizing the GPU for
general purpose
programming
Leiðb.:
Hjálmtýr Hafsteinsson
SAMGÖNGUR, SKIPULAG
OG UMHVERFI
(stofa 156)
Meistaravörn:
Helga Þórunn Gunnlaugsdóttir
Burður vega á þáatíma - úrvinnsla
falllóðsmælinga
Leiðb.: Sigurður Erlingsson
Kynning á meistaraverkefnum
Sverrir Örvar Sverrisson
Á slóðum borgarferðamannsins.
Greining á landnotkun, umhverfi
og stefnumótun ferðamennsku í
Reykjavík
Leiðb.: Sigríður Kristjánsdóttir, lektor
LBHÍ, Trausti Valsson, prófessor
RAFMAGNSVERKFRÆÐI
(stofa 156)
Meistaravörn: Páll Sigurjónsson
Dreifing kennistærða rafgass í tíma
og rúmi í háaflspúlsaðri segulspætu
Leiðb.: Jón Tómas Guðmundsson
JARÐVARMANÝTING
(stofa 155)
Meistaravörn:
Oddgeir Guðmundsson
Aðferðir við að greina
útfellingar í varmaskiptum
Leiðb.: Ólafur Pétur Pálsson
Meistaravörn:
Caixia Sun
Feasibility study of
geothermal utilization of
Yangbajain field in Tibet
Autonomous Region,
P.R.China.
Leiðb.: Páll Valdimarsson
17:00 – 18:00 Léttar veitingar og spjall
14:00 – 17:00 Meistaravarnir og kynningar á meistaraverkefnum
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
4
25
55
0
5/
08