Morgunblaðið - 28.05.2008, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Einhver frumlegasti og vinsælasti
skákmaður seinni tíma, Rússinn Al-
exander Morozevich hefur tekið for-
ystuna á hinu árlega stórmóti í Sa-
rajevo. Eftir þrjár umferðir hafði
Morozevich hlotið 2½ vinning og sig-
urskákir hans báðar tefldar af mikl-
um þrótti. Í 3. umferð lagði hann
Sergei Movsesian að velli með glæsi-
legri taflmennsku en Movsesian hef-
ur náð afburða árangri upp á síð-
kastið og vann t.d. B-flokk Wijk
Zee-mótsins í ársbyrjun. Sex skák-
menn tefla tvöfalda umferð í Saraj-
evo og er staðan þessi eftir þrjár um-
ferðir:
1. Morosevich (Rússland) 2½ v. 2.
Lenier Dominguez ( Kúba ) 3. 3.-4.
Ivan Sokolov (Holland) og Artyom
Tymofeev (Rússland) 5. Sergei Mov-
sesian (Slóvakíu) 1 v. 6. Borki Pre-
dojevic (Bosníu) ½ v.
Í uppgjöri Morosevich og Mov-
sesian sem hér á eftir undirbýr hvít-
ur framrás á miðborðinu í mestu
makindum. Þegar svartur verður
fyrri til er gagnatlaga hvíts fljót að
koma. Galdurinn við taflmennsku
„Moro“ í þessari skák er kannski sá
að hann veit upp á hár hvaða upp-
skipti eru honum hagstæð. Riddara-
fórnin á f5 stenst fullkomlega og er
tiltölulega einföld, t.d. er 25. … Bf8
svarað með 26. Dc3 sem hótar 27.
Hxe8 o.s.frv. Ógnun hvíts eftir
hornalínunni a1-h8 ræður að lokum
úrslitum:
Sarajevo 2008; 3. umferð:
Alexander Morosevich – Sergei
Movsesian
Slavnesk vörn
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3
a6 5. e3 b5 6. c5 Rbd7 7. Bd2 a5 8.
Hc1 Ba6 9. a3 Dc7 10. b4 axb4 11.
axb4 g6 12. Bd3 Bg7 13. 0-0 0-0 14.
Re2 Bb7 15. h3 Ha3 16. Bc3 Hfa8 17.
Bb2 H3a6 18. Db3 Re8 19. Hfe1 e5
20. e4 dxe4 21. Bxe4 Rdf6 22. Rg3
exd4 23. Rxd4 Hd8 24. Bf3 Haa8
25. Rdf5 gxf5 26. Rxf5 Hd7 27.
Rxg7 Kxg7 28. Dc3 Df4 29. He4 Dd2
30. De5 Ha2 31. He2 Dh6 32. Hce1
Hxb2 33. Dxb2 Rc7 34. Bg4 Hd3 35.
He7 Rd5 36. Hxb7 Hd2 37. De5
– og svartur gafst upp.
Bragi efstur á stigamóti Hellis
Bragi Þorfinnsson vann öruggan
sigur á Stigamóti Hellis sem fram
fór um helgina. Alls tóku 22 skák-
menn þátt í mótinu sem fór fram
með atskáka fyrirkomulagi. Bragi
vann allar skákir sínar sjö talsins en í
2. sæti varð Henrik Danielssen með
6 vinninga. Hellismenn með þá
Gunnar Björnsson og Vigfús Vigfús-
son fremsta í flokki hafa verið dug-
legir að halda mót undanfarin ár en
þessir tveir voru skákstjórar um
helgina. Lokaniðurstaðan varð þessi:
1. Bragi Þorfinnsson 7 v. (af 7) 2.
Henrik Danielssen 6 v. 3.-4. Hjörvar
Steinn Grétarsson og Halldór B.
Halldórsson. 5 v. 5.-6. Atli Freyr
Kristjánsson og Rúnar Berg 4½ v.
7.-10. Páll Sigurðsson, Dagur Andri
Friðgeirsson, Stefán Bergsson og
Bjarni Jens Kristinsson.
Meistaramót Skákskólans
hefst um næstu helgi.
Eitt sterkasta barna- og unglinga-
mót sem haldið er hér á landi ár
hvert fer fram dagana 30. maí-1.
júní. Tefldar verða sjö umferðir.
Þrjár fyrstu með atskákarfyrir-
komulagi og þær fjórar síðustu með
kappskáka fyrirkomulagi. Á síðasta
móti urðu Guðmundur Kjartansson
og Hjörvar Steinn Grétarsson efstir
en Guðmundur vann síðan eftir æsi-
spennandi aukakeppni.
Laugardaginn 24. maí var haldin
keppni fyrir yngstu nemendur skól-
ans. Þar voru tefldar sex umferðir og
sigraði Skúli Guðmundsson með
fullu húsi, Veronika Steinunn Guð-
mundsdóttir varð í 2. sæti með 5
vinninga og Bjarni Dagur Kárason
varð i 3. sæti með 4 vinninga.
Morosevich í ham
Efstur Bragi Þorfinnsson vann alla
andstæðinga sína á stigamóti Hellis
um helgina
SKÁK
Sarajevo, Bosníu
Bosnía – Sarajevo-mótið
23. maí-2. júní 2008
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Íslendingar bikarmeistarar
Norðurlandanna
Bikarmeistarar síðasta árs tóku
nú um helgina þátt í móti í Rottneros
í Svíþjóð og sigruðu með nokkrum
yfirburðum.Spiluðu þeir gegn bikar-
meisturum allra Norðurlandanna og
unnu alla leikina.
Fyrir Íslands hönd spiluðu Bjarni
Einarsson, Steinar Jónsson, Aðal-
steinn Jörgensen og Sverrir Ár-
mannsson. Íslendingarnir fengu 98
stig, Svíar höfnuðu í 2. sæti með 86
stig og Danir í 3. sæti með 81 stig.
Bikarmeistarar Þeir sigruðu í keppni bikarmeistara Norðurlandanna sem
fram fór um helgina. Frá vinstri: Aðalsteinn Jörgensen, Sverrir Ármanns-
son, Bjarni Einaesson og Steinar Jónsson. Með þeim í för var Þorsteinn
Berg forseti Bridssambandsins.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði°, Stangarhyl 4, fimmtud. 22.
maí.
Spilað var á 8 borðum. Meðalskor
168 stig.
Árangur N-S.
Guðni Sörensen – Sigurður Pálsson 193
Ólafur Ingvarsson –
Skarphéðinn Lýðss. 173
Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 172
Magnús Oddsson – Olíver Kristóferss. 172
Árangur A-V.
Óli Gíslason – Ægir Ferdinandsson 218
Jón Lárusson – Ragnar Björnsson 195
Bjarni Ásmunds – Þröstur Sveinsson 171
Gunnar Jónsson – Þröstur Sveinsson 170
Gullsmárabrids
Það var spilað á 12 borðum 22. maí
sl. og úrslitin urðu þessi í N/S:
Þorsteinn Laufdal - Magnús Halldórss. 211
Sigtryggur Ellertss.- Tómas Sigurðss. 195
Birgir Ísleifsson - Örn Einarss. 178
Elís Kristjánss. - Páll Ólason 173
A/V
Sigurður Björnss. - Ólafur Gunnarss. 201
Einar Markúss. - Steindór Árnason 193
Guðrún Gestsd. - Bragi Björnsson 184
Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 180
Það var spilað á 7 borðum 26. maí.
Úrslit í N/S:
Páll Ólason - Elís Kristjánss. 135
Birgir Ísleifsson - Örn Einarss. 135
A/V
Ernst Backman - Stefán Ólafss. 145
Ragnh. Gunnarsd. - Björn Björnss. 138
Sigurður Björnss. - Ólafur Gunnarss. 138
Ekki verður spilað 29. maí og
verður því spilað næst mánudaginn
2. júní. Af þátttökunni ræðst svo
hvort spilað verður út júní. Nýr for-
maður félagsins er Leifur Kr. Jó-
hannesson.
Ástkær vinur og
tengdafaðir er farinn.
Það er erfitt að hugsa
til þess að eiga ekki fleiri stundir með
þér. Minningarnar eru svo sterkar og
góðar um tímana sem við áttum sam-
an og vildi ég geta bætt við í þann
banka.
Ég kynntist þér þegar ég var bara
17 ára polli. Man það svo vel, kom til
ykkar í Hliðsnesið. Ég og Sóla búin
að vera að rugla saman reytum í smá
tíma og nú var tíminn að hitta tengdó.
Búin að heyra af þér og óttinn leyndi
sér ekki. Ég kem inn, svolítið smeyk-
ur við þennan mikla mann og fel mig
inni í sjónvarpsherbergi. Þetta var
fyrsta og eina skiptið sem ég var eitt-
hvað smeykur við þig, elsku vinur
minn. Í framhaldi myndaðist með
okkur góður vinskapur og aldrei var
langt í grínið.
Ég hugsa til þess þegar árin liðu og
vinskapur okkar óx. Ég man þegar ég
og Sóla vorum að koma af djamminu
og þarna sátuð þið, Anna og Ási –
með góða gesti eins og ekki var óal-
gengt. Við eitthvað að skjóta hver á
annan og áður en ég veit er ég komið í
fangið á þér, sit þarna eins og smá-
strákur hjá þér í sófanum. Upp frá
því var ég alltaf kallaður Golíat.
Ég hugsa líka til þess þegar þið
Anna og Inga voruð hjá okkur í Dan-
mörku, fórum niður til Þýskalands og
ferðuðumst þar saman. Við vorum
jafningjar í þýskunni – kunnum varla
Ársæll Karl Gunnarsson
✝ Ársæll KarlGunnarsson
fæddist í Reykjavík
12. júlí 1953. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 26. apríl síð-
astliðinn.
Útför Ársæls var
gerð frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ
2. maí sl.
stakt orð og Þjóðverj-
arnir jafn góðir í ensku
og við í þýsku, upphóf-
ust oft mikil leikrit til
að útvega herbergi.
Hver hefði getað séð
þessa stöðu fyrir þá,
aðeins 3 ár eru liðin og
bæði eruð þið farin frá
okkur.
Minningar, þær eru
svo margar og góðar;
sumarbústaðurinn,
gera upp íbúðina sam-
an, áramótin, á Hliðs-
nesinu, í Brekkuskóg-
unum og svona mætti áfram telja –
bara að ég gæti bætt við í þennan
minningarbanka. Ég sakna þín elsku
vinur, þú varst mér svo miklu meira
en tengdafaðir. Það er huggun að vita
af góðu fólki sem tekur á móti þér
hinum megin, ég veit að þú ert kom-
inn til Önnu á öðrum og betri stað. Ég
sakna ykkar beggja svo mikið og vildi
að ég gæti fengið meiri tíma með ykk-
ur, en ég er svo þakklátur fyrir þann
tíma sem ég fékk.
Þinn vinur,
Golíat – betur þekktur sem Ingó af
öðrum.
Ingólfur Vignir Ævarsson.
Ási er farinn. Enginn átti von á því
að það yrði svona stutt á milli þeirra
hjóna. Það er ekki nema rúmlega eitt
og hálft ár síðan við ræddum saman
um það að Önnu yrði líklega ekki
bjargað frá þeim ægilega sjúkdómi
sem krabbameinið er. Anna var að-
eins 48 ára þegar hún dó. Okkur
fannst það svo óraunverulegt að hún
skyldi vera tekin frá okkur svona
ung. Í samræðum okkar talaði Ási oft
um hve heitt hann vildi geta skipt við
Önnu sína og að honum fyndist lífið
hafa lítinn tilgang án hennar. Þegar
hann var síðan sjálfur kominn í svip-
aða baráttu við krabbameinið sagði
hann við mig að hann væri svo sem
búinn að gera allt sem hann langaði
að gera en hann vildi að hann hefði
fengið meiri tíma barnanna vegna.
Þannig fékk ég kynnast æðruleysi
hans þegar hann þurfti svo stuttu
seinna að mæta sömu örlögum. Þetta
kom mér svo sem ekki á óvart. Ég
kynntist Ása fyrst fyrir u.þ.b. 34 ár-
um þegar Anna bróðurdóttir mín
kom til að passa fyrir okkur hjónin og
kynnti hann sem kærasta sinn. Ég
man að ég var svolítið hissa og hugs-
aði með mér hvað hún Anna væri að
gera með þennan gamla karl. Ási var
nefnilega aðeins 5 árum yngri en ég.
En ástin lætur ekki að sér spyrja og
það var greinilegt að þau voru ást-
fangin. Þau komu oft í heimsókn til
okkar þegar þau voru að byrja saman
og varð okkur vel til vina. Ási var einn
af þessum mönnum sem kom hreint
til dyranna. Hann hafði sterkar skoð-
anir og lá ekkert á þeim. Maður veit
hvar maður hefur slíka menn og líður
vel með þeim sem koma svona hreint
fram. Strax í upphafi sambúðar
þeirra var Ási byrjaður að úthugsa
leiðir til að koma fótunum undir sig
og það er ekki að sjá annað en honum
hafi tekist það nokkuð vel. Ég minn-
ist Ása fyrir ýmislegt sem var svo
sérstakt í fari hans. Ási var hjátrúar-
fullur og allar stórar ákvarðanir varð
að taka á réttum dögum. Hann var
líka duglegur að sannfæra sjálfan sig
í því að hægt væri að laga þetta til. Til
dæmis hafði hann þá trú fyrst þegar
ég kynntist honum að ef svartur kött-
ur hlypi fyrir bílinn hans þá væri eins
gott að snúa við heim aftur því eitt-
hvað skelfilegt myndi annars gerast.
Honum tókst seinna að sannfæra
sjálfan sig um það að ef þetta gerðist
yrði hann að fara sérstaklega varlega
þar til hann væri kominn á leiðar-
enda. Við sáumst ekki oft þegar börn-
in fóru að koma og leiðir okkar lágu
ekki saman, hvorki í leik né starfi.
Þegar Anna háði baráttu sína við
krabbameinið tengdumst við aftur
sterkari böndum og þá og einnig í
baráttu Ása við sama mein fékk ég að
kynnast börnum þeirra betur. Á þeim
má sjá hve vel Anna og Ási stóðu sig
því börnin bera þeim gott vitni. Ási,
það var áðdáunarvert að sjá hve
börnin þín stóðu sig vel meðan á
þessu stríði þínu stóð. Eins veit ég að
þau munu styðja hvert annað í fram-
tíðinni. Það er trú mín að algóður Guð
muni vernda þau og blessa. Við kveðj-
um Önnu og Ása og óskum börnum
þeirra, barnabörnum, ættingum og
vinum alls hins besta í framtíðinni.
Guð gefi ykkur styrk til að takast á
við sorgina.
Gunnar Vilhelmsson,
Bjarney K. W. Gunnarsdóttir.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Það er svo ótrúlegt og óskiljanlegt
að Ási mágur, þessi stóri klettur, sé
allur. Ég horfi á fallegu myndirnar
sem voru teknar fyrir nokkrum vik-
um. Þar er Ási með hattinn góða svo
hressilegur að sjá, með börnum sín-
um, fallegu afabörnunum og heimilis-
hundinum Patta. Veikindin virðast
víðs fjarri og dauðinn svo fjarstæður.
Þessar fallegu myndir og allar góðu
minningarnar um Ása eru gullmolar
sem eiga eftir að ylja á erfiðum tím-
um og um ókomna tíð.
Ég minnist þess þegar ég hitti Ása
fyrst fyrir um 35 árum, þegar hann
var að gera hosur sínar grænar fyrir
Önnu systur. Hann mætti í Faxatúnið
á stórum, grænum, amerískum
kagga að ná í hana. Þetta var nátt-
úrlega afskaplega spennandi. Við
mamma lágum á gægjum inni í stofu.
Þau skutust inn í herbergi, við vorum
of seinar, sáum ekkert nema ótrúlega
stóra skó í forstofunni. Við fyrstu sýn
þótti mér, barninu, hann vera algjör
fornöld og óttalegur rumur. Ég varð
þó að viðurkenna að hann var með
falleg augu og stríðnislegt bros, enda
reyndist hann hinn mesti hrekkja-
lómur og stríðnispúki. Ég heyri enn
hláturinn hans óma og sé hann fyrir
mér ljóma af kæti yfir að hafa getað
enn einu sinni strítt einhverjum.
Skemmtilegast var þegar Önnu syst-
ur tókst að stríða honum á móti og
minnisstæðar eru þær stundir þegar
hún tók sig til og hermdi eftir öllum
hans góðu töktum. Þá var oft hlegið
og stóri rumurinn varð pínu kjánaleg-
ur.
Ási minnti mig oft á víking eða
fornmann, bæði í útliti og oft í hugs-
unarhætti. Hann var mjög sérstakur
persónuleiki, hjátrúarfullur, harður í
viðskiptum, söngmaður, gleðimaður,
ákveðinn og fylginn sér. Hann setti
sér markmið og náði þeim. Þessi stóri
maður var líka mjög handlaginn og
mikill fagurkeri. Allt sem hann gerði
var hundrað prósent. Hann þoldi ekki
hnökra neins staðar. Á það sérstak-
lega við um húsbyggingarnar hans.
Þar var alltaf vandað til verka.
Ási hafði sterkar skoðanir á mönn-
um og málefnum og stundum voru
skoðanir hans á skjön við allt og alla
en hann lét það sjaldnast trufla sig
því hann fylgdi sinni sannfæringu og
lifði lífi sínu með reisn.
Við vitum að dauðinn er óhjá-
kvæmilegur hluti lífsins en það er
óbærilega erfitt að kyngja því að
Anna og Ási hafa verið tekin frá okk-
ur, á besta aldri í blóma lífsins. Miss-
irinn er mikill og þau skilja eftir sig
stórt skarð sem verður seint fyllt.
Þeirra er sárt saknað.
Við Bjarni viljum þakka samfylgd-
ina og allar góðu samverustundirnar
sem við fjölskyldan áttum með þeim
og börnum þeirra. Minning þeirra
mun lifa með okkar um ókomna tíð.
Elsku Inga Birna, Sóla, Gunnar
Karl, Rakel og fjölskyldur. Þið eruð
búin að vera ótrúlega dugleg og sterk
í veikindum pabba ykkar. Þið hafið
sýnt að þið eruð sterk saman og fyr-
irmynd annarra. Megi góður Guð
gefa ykkur styrk áfram í ykkar miklu
sorg.
Laufey Hafsteinsdóttir.