Morgunblaðið - 28.05.2008, Blaðsíða 36
Dylan býr yfir tak-
markaðri blásturs-
tækni, en bætir það upp með
innlifun og næmi … 43
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ ætlum að breyta staðnum úr
þeirri teknóbúllu sem hann var orð-
inn, sóðalegur og illa farinn. Í stað-
inn ætlum við að létta hann upp,
vera með góðan og traustan mat á
mjög góðu verði. Þá ætlum við líka
að vera með léttari tónlist, þannig að
það verði bara gott partí inni á
staðnum,“ segir Gunnar Már Þráins-
son, veitingamaður á skemmti- og
veitingastaðnum 22 sem verður opn-
aður á föstudaginn. Staðurinn er til
húsa á Laugavegi 22 í Reykjavík, á
sama stað og hinn upprunalegi 22
var á árum áður. Undanfarin ár hef-
ur veitinga- og skemmtistaðurinn
Barinn hins vegar verið rekinn í hús-
inu.
Gunnar segir að 22 muni koma til
móts við viðskiptavini sína í þeirri
kreppu sem nú stendur yfir. „Við
ætlum ekki að hafa hátt verð á mat
og drykk, dýrasti rétturinn verður
til dæmis á 1.290 kr. Svo verður
hægt að fá léttvínsflösku á 2.300, en
2.100 með mat. Loks verður hálfur
lítri af bjór á 600 kr.,“ segir Gunnar
og bætir því við að líkt og venjulega
þegar skipt er um nafn á skemmti-
stað hafi verið lappað upp á útlit
hans.
„Það er náttúrulega búið að taka
allt húsið í gegn, bæði að innan og
utan. Hann verður áfram á þremur
hæðum og með sumrinu ætlum við
til dæmis að opna kokteilbar á þriðju
hæðinni.“
Margir muna eflaust eftir tón-
leikastaðnum 22, en þar stigu marg-
ar hljómsveitir sín fyrstu skref.
Gunnar segir vel hugsanlegt að ein-
hverjir tónleikar verði haldnir á nýja
staðnum.
„Það er ekki búið að ákveða neitt
hvað það varðar, en við erum til-
búnir til að skoða allt,“ segir hann.
„Markmið okkar er annars að
höfða til sem allra flestra, þú þarft
ekki að vera einhver ákveðinn kar-
akter til að passa þarna inn.“
Þess má loks geta að Gunnar er
enginn nýgræðingur í bransanum,
en hann hefur áður rekið staði á
borð við Vegamót, Oliver og Barinn.
22 opnaður að nýju
Morgunblaðið/G.Rúnar
Barinn að baki Gunnar og Íris Dögg Konráðsdóttir, sem er eigandi stað-
arins ásamt þeim Páli Gunnari Ragnarssyni og Elmari Erni Guðmundssyni.
Þá er Aghata Ýr Gunnarsdóttir rekstrarstjóri 22.
Hinn fornfrægi skemmtistaður endurreistur við Laugaveg 22
Almennt er
góður rómur
gerður að tón-
leikum Bobs Dyl-
an sem fram fóru
í nýju Laug-
ardalshöllinni á
mánudag. Kallinn var að vísu við
sama heygarðshornið og síðast
þegar hann sótti landið heim; leyfði
engar myndatökur í húsinu og bak-
dyramegin var ljósmyndurum gert
ljóst að enginn kæmist upp með að
mynda Dylan eftir tónleikana. Hins
vegar stóð Dylan við gerða samn-
inga, stökk á svið á slaginu átta og
spilaði í meira en eina og hálfa
klukkustund. Hljómburður nýju
Hallarinnar þótti nokkuð góður.
Desíbelin voru að vísu ekki ýkja
mörg þetta kvöldið en þeir sem sáu
um að koma upp hljóðkerfinu fyrir
tónleikana, voru sammála um að
húsið væri langtum þægilegra en
önnur hér á höfuðborgarsvæðinu –
enda var gert ráð fyrir því við
byggingu að í húsinu yrðu haldnir
stórtónleikar.
Hljómburður Austur-
hallarinnar góður
Á hinn bóginn kvörtuðu all-
nokkrir yfir því hversu lágt sviðið
hefði verið í Austurhöllinni og þeg-
ar leið á tónleikana voru margir
hverjir búnir að gefast upp á því að
standa stöðugt á táberginu og sest-
ir á gólfið. Þó er ekki við tónleika-
haldara að sakast því Dylan hafði
krafist þess að sviðið yrði ekki
hærra en 1,50 m sem er vel að
merkja 10 sentímetrum hærra en
svið gömlu Laugardalshallarinnar.
Sömu sögu er að segja um sýning-
artjöldin sem alla jafna má finna
sitthvorum megin við sviðið en Dyl-
an hafði lagt blátt bann við slíkum
tjöldum. Það liggur við að maður
spyrji sig hvað svona tónlist-
armönnum gangi eiginlega til?
Dylan samur við sig
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞRÁTT fyrir ungan aldur leikur ET Tumason,
eða Elliði Tumason eins og hann heitir réttu
nafni, hráan deltablús í anda Robert Johnson
og fleiri meistara. Röð tilviljana olli því að
Newcombe var ráðinn til að taka upp plötuna,
en nafn hans varð nokkuð þekkt eftir að hin
lofaða heimildarmynd Dig! kom út, en þar er
rimmu hljómsveitar hans, The Brian Jon-
estown Massacre og hinnar öllu þekktari The
Dandy Warhols lýst á eftirminnilegan hátt.
Newcombe kallar ekki allt ömmu sína í rokk-
fræðunum en hann varð Íslendingum að góðu
kunnur þegar mikil vinátta tókst með honum
og rokksveitinni Singapore Sling og hefur
hann dvalið langdvölum hér, auk þess sem
hann á hér góða vini. Nú um stundir býr hann
í Berlín og leigir íbúð með einum af eigendum
barsins 8MM, sem er mikill Íslendingabar en
einn af fastakúnnunum þar er vinur vor Elliði.
8MM er einnig plötuútgáfa og gaf út stutt-
skífu, tónleikaplötu með Elliða í fyrra og hef-
ur einnig gefið út safnplötu með Singapore
Sling.
Stóð sína plikt
„Olli (annar eigandi 8MM) nefndi það við
hann hvort hann vildi ekki taka mig upp,“ seg-
ir Elliði. „Hann var til í það og var víst frekar
spenntur. Ég hef spilað mikið á „Áttunni“ í
gegnum tíðina og þetta bara gerðist einhvern
veginn.“
Elliði segir að þetta sé önnur tilraun við að
taka upp þessa plötu.
„Fyrstu upptökurnar voru stífar og þving-
aðar. Ég var að hjakka á sama laginu aftur og
aftur og það eyðileggur alveg það sem ég
stend fyrir. Þessi plata var tekin upp „live“ en
í einöngruðu umhverfi. Mér gengur best þegar
ég keyri bara í gegn og þó að ég geri einhver
smávægileg mistök þá held ég bara áfram og
pæli ekkert í því. Smávægileg mistök eru ekki
það mikilvæg og kannski bara örlítið sjarm-
erandi. Fullkomnunarstefnan í tónlist í dag er
óþolandi.“
Newcombe stóð sína plikt með sóma en
brugðið getur til beggja vona þegar slíkt ólík-
indatól á í hlut. „Það veitti mér innblástur að
hafa hann þarna. Hann er alltaf með hug-
myndir. Fullt af hugmyndum. En stundum
þurfti ég að sía aðeins út. Hann er nú eins og
hann er. En andinn á plötunni er mjög frjáls.
Við keyrðum bara allt í gegn, tókum stutta
pásu, og keyrðum svo aftur í gegn. Við tók-
um upp í stofunni hjá þeim félögum og hljóm-
urinn þar er frábær. Með mér spiluðu dansk-
ir félagar mínir, þeir Peder Vind og Karsten
Garner, á munnhörpu og trommur.“
Platan kemur út annaðhvort seint í sumar
eða snemma í haust, undir merkjum 8MM
Music og verður dreift um alla Evrópu og
verður auk þess fáanleg á ýmsum vefmiðlum.
Mannleg mistök
ET Tumason, ungt söngvaskáld með rætur í Berlín og Kaupmannahöfn, vann
fyrstu breiðskífu sína með leiðtoga The Brian Jonestown Massacre
Í hljóðverinu Elliði Tumason við upptökur í Berlín. Anton Newcombe er sá í lopapeysunni.
Morgunblaðið/Eyþór
Anton Newcombe Eitt laganna á nýjustu plötu
hans ber íslenskt nafn.