Morgunblaðið - 28.05.2008, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
TILBOÐ
Í
BÍÓ
Made of Honour kl. 8 - 10:15
Superhero Movie kl. 4 - 6 B.i. 7 ára
Bubbi Byggir m/ísl. tali kl. 4
Horton m/ísl. tali kl. 4
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG SMÁRABÍÓI
Kickin it old school kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
Harold og Kumar kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Made of Honour kl. 5:50 - 8 - 10:10
21 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Brúðguminn enskur texti kl. 6 B.i. 7 ára
ÖSKUR BERA
ENGAN ÁRANGUR !!
ÞAÐ ÞARF ALVÖRU KARLMANN
TIL AÐ VERA BRÚÐARMEYJA
BREIKIÐ ER EKKI DAUTT...
ÞAÐ HEFUR BARA LEGIÐ Í DVALA!
SÝND Í REGNBOGANUM
Hinn frábæri grínari
Jamie Kennedy fer á
kostum semeilífðarbreikari
sem vaknar efir
20 ára dásvefn,
Frábær gamanmynd sem
kemur öllum í gott skap.
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Indiana Jones 4 kl. 5:20D - 8D - 10:40D Digital
Indiana Jones 4 LÚXUS kl. 5:20D - 8D - 10:40D Digital
Prom Night kl.6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
What happens in Vegas kl. 5:45 - 8 - 10:15
OG REGNBOGANUM
eee
,,Hugljúf
og skemmtileg"
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
Indiana Jones 4 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
Harold og Kumar kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
What happens in Vegas kl. 10
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
2 FYRIR 1
á myndina í dag, mið. 28.maí
BANDARÍSKI leikstjórinn, framleiðandinn og
leikarinn Sydney Pollack lést á heimili sínu í
fyrradag úr krabbameini, 73 ára að aldri. Pol-
lack var með áhrifamestu leikstjórum Banda-
ríkjanna og margtilnefndur til virtustu kvik-
myndaverðlauna heims. Hann hlaut m.a.
Óskarsverðlaunin fyrir Out of Africa árið 1986,
heiðursverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Berl-
ín árið 1982 fyrir Absence of Malice, dönsku
Bodil-verðlaunin 1983 fyrir Tootsie, Hollywood
Film-verðlaunin fyrir afrek á sviði kvikmynda-
framleiðslu árið 2003, New York Film Critics
Circle-verðlaunin fyrir Tootsie árið 1982 og var
tilnefndur til margra fleiri verðlauna, bæði fyrir
leikstjórn og framleiðslu. Af öðrum vinsælum
og rómuðum kvikmyndum Pollacks sem hér
hafa ekki verið nefndar má nefna The Way We
Were, Three Days of the Condor, Jeremiah
Johnson og They Shoot Horses, Don’t They?.
Pollack lék í fjölda kvikmynda og sjónvarps-
þátta á ferli sínum og naut þar leiðsagnar virtra
leikstjóra á borð við Stanley Kubrick í Eyes
Wide Shut, Woody Allen í Husbands and Wives
og Robert Altman í The Player svo einhverjir
séu nefndir. Þá stóð hann sig vel á móti George
Clooney í Michael Clayton í fyrra. Hann lék
auk þessa í vinsælum þáttaröðum á borð við
Sopranos og Will & Grace.
Hóf ferilinn sem leikari
Pollack hóf feril sinn sem leikari og kenndi
leiklist í New York á 6. áratugnum. Nokkru síð-
ar hóf hann að leikstýra sjónvarpsþáttum og
sneri sér svo að kvikmyndum. Það voru engir
aukvisar sem léku aðalhlutverkin í fyrstu kvik-
mynd Pollacks, The Slender Thread (1965),
Sidney Poitier og Anne Bancroft. Kvikmynda-
gagnrýnandi dagblaðsins New York Times,
Janet Maslin, segir Pollack hafa haft næma til-
finningu fyrir markaðssetningu kvikmynda,
hvað þyrfti til að draga fólk í bíó og því hefðu
myndir hans ávallt verið stjörnum prýddar. Því
til dæmis leikstýrði hann Robert Redford í sjö
kvikmyndum.
Sjálfur sagði Pollack um þá stjörnutilhneig-
ingu í samtali við New York Times að slíkir
leikarar væru eins og hreinræktaðir hestar.
Þeir væru hættulegir, styggir og hættan meiri
á því að vera kastað af baki en þegar þeir gerðu
það sem þeir gerðu best, þ.e. að leika, væri það
virkilega spennandi.
Samstarfsmenn Pollack vottuðu honum
margir virðingu sína í gær. Leikarinn George
Clooney sagði Pollack hafa bætt heiminn og
kvikmyndagerð almennt og hans yrði sárt
saknað. Leikarinn Martin Landau sagði Pol-
lack hafa skarað fram úr í öllu því sem hann tók
sér fyrir hendur, allt frá því hann hóf að leika á
sviði á Broadway í New York.
Pollack greindist með krabbamein fyrir ein-
um níu mánuðum og lést í faðmi fjölskyldunnar
á heimili sínu í Los Angeles. Hann lætur eftir
sig eiginkonu, tvær dætur, sex barnabörn og
bróður.
Sydney Pollack látinn
Áhrifamikill og marg-
verðlaunaður leikstjóri
og leikari
Afríka Meryl Streep í Óskarsverðlaunamyndinni Out of Africa.
Clooney og Pollack Í lögfræðidramanu Michael Clayton.
Reuters
Pollack Við tökur á mynd sinni Absence of
Malice árið 1981.