Skírnir - 01.01.1920, Blaðsíða 23
Skirnir]
Dr. Paul Carus.
17
setti hann í staðinn fyrir Kants »Ding an sicht. Hann
aðgreindi uppruna og orsök1) ratio og causa.
Um »Monistan« og önnur rit Carusar sleppi eg að tala
sérstaklega. Rit hans stór og smá komast á þriðja hundrað
að tölu og varð hann þó aðeins 67 ára gamall.
Siðasta bréf til mín frá dr. Carusi var ritað í júní
1917 og hljóðar þannig:
»Mig gleður í hvert sinni, sem eg fæ línu eða fréttir frá
yður. — Aldrei heyri eg ísland svo nefnt, að eg minuist yðar
ekki, í ySar afíkekta, kalda landi; eg vildi óska að þér gætuð enn
skroppið út og komið vestur til okkar, þegar ófriðnum loks er lokið.
Hór er alt í ógurlegum óróa og vafningi, enda stendur yfir
herskyldu útboðið, og hvað af því muni leiða er nú ekki unt að
sjá. — Hór í ríkjunum búa ótölulegur fjöldi Þjóðverja, og frá-
bituir hernaði og sama eða ennfremur eru vorir sosialistar og vinnu-
lýður. — Hvernig sem fer, finst oss sem vorir æskumenn sem til
slátrunar leiddir að skotgröfum Frakklands, og til hvers? — Til
einskis — því ekki búumst vér við að þeir ráði þeim vogarskálum,
sem 8ýni leikslok þessa hildarleiks, þótt hundruð þúsunda séu
sendir. Rússland er fallið í valinn, F>-akkland á heljarþröminni,
eg svo er æskulýð vorum ætlað að fylla eyðuna. — Hvar alt- lendir
veit enginn.
Eg só af brófi yðar að þér haldið fullri heilsu og í annan stað
vöktu skoðanir yðar um ófriðinn mikla eftirtekt mína. — Hitt
kom mér þó á óvart að þór virðist ekki sjá hið sanua gegnum dylgjur
pressunnar og undirferli, sem miðar íslandi sem öðrum löndum til
óhamingju. — Eg veit að alúð hefir verið lögð á að eitra hver-
vetna almenningsálitið, að sem flestir skyldu leggja upphaf ófriðar-
ins á herðar Austurrfki og Þýzkalandi og kenna þeim um glæp,
sem er gersamlega gagnstæður þeirra hugsunarhætti og vilja. Þjóðir
býzkalands, og ekki síður stjórnir þeirra, eru heimsins friðsömustu
þjóðir! — Séu þær neyddar til að verja hendur sínar, kostar það
blóð þeirra eigin barna; styrjöld er hræðileg, og jafnvel þeim, sem
sigur vinnur (eins og Moltke komst að orði). Eu vélabrögð Rússa
i Austurríki og um leið vonbrigði af hálfu Angelsaxa í verzlun og
*) Crrikkir kölluðu rök eða upphaf arke, en orsök aitia, sbr. ratio
°g causa hjá Rómverjum. En þessu rugla margir saman, einkum enskir
fræðimenn.
2