Skírnir - 01.01.1920, Page 47
Ritfregnir.
Einokunarverzluu Dana á íslandi 1602—1787 eftir Jðn*
J. Aðils.
Það er líkt um sögu vora og landið; landið er lítt ræktað eða
®kki, nema blettur og b'ettur, en landkostir ærnir, er bíða eftir
framtakssemi, kunnáttu og dugnaði. Eins er sagan lítt rannsökuð,
Denia kafli og kafli, heilar aldir enn í hálfrökkri vanþekkingar
°S ymsar hliðar þjóðlífsins mjög í þoku, en hins vegar söguefni úr
a® vinna svo mikið, eð ekki sór út yfir. aldaverkefni handa skörp-
fræðimönnum og snjöllum sagnariturum. Á síðustu árum hefir
þjóðfólagið reynt af veikum mætti að hlynna nokkuð að sagr.afræði.
Þegar er háskólinn var settur á stofn, fókk saga íslands einn kenn-
arastólinn, og þá fer fleira illa, ef hann verður nokkurn tíma aftur
tagður niður eða látinn standa auður. Til að byrja með var þó
Vegur sögunnar ekki gerður meiri en svo, að kennari hennar var
skipaður í hina óæðri röð háskólakennaranna, docentanna, en al-
þingi { sumar stýrði svo mannslega að hefja hann í röð prófessor-
anna. Og ekki stóð á borguninni frá hans hendi. Fáum dögum
sfóar var bók sú, er hór er nefnd að ofan, komin áboðstóla; mikil
bók að vöxtum, 47 arkir, og — að mínu viti — engu síður að efnb
°g kostum, enda sæmdi háskólinn þegar höfundinn doktorsnafnbót
aÖ launum.
Höfundurinn hefir lagt af alúð stund á íslandssögu síðan
a námsárunum, en þó sórstaklega á sögu verzlunarinnar.
Ekki hefir hann þar kjörið sór glæsilegasta þáttinu í sögu vorri,.
eÖa þann, er óblöndnust ánægja sé að rekja; en það er svo um
hverja þjóð, að hagur heunar, máttur og menning er mjög komin
Undir verzlun hennar og samgöngum við aðrar þjóðir, og þá ekki
8Ízt, er hlut á að máli afskekt smáþjóð, sem vór erum íslendingar.
Þegar skipastóllinn er genginn oss úr greipum og verzlun ölt og:-
Samgöngur komin í hendur annara þjóða, þá er það ekki annað en.