Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1920, Síða 48

Skírnir - 01.01.1920, Síða 48
42 Kitfregnir. [Skírnir bein afleiðing, sem engum kemur á óvart, að þjóðin dregst aftur úr, kreppist í kút af örbirgð og einangrun, en hitt er aftur á móti undravert, að henni skyldi þrátt fyrir alt endast hugur og þrek til viðreisnar. Því er þessi þátturinn, verzlunarsagan, ef til viil átak- anlegasti örlagaþátturinn í allri sögu vorri. Þar er auðsætt ógifta vor og amióðaskapur, en þó hitt um leið, að seigt er og gott í »söguþjóðinni« og »sólareyjan« töturseig, alt að því ódáinsakur. Hér er því nóg, er hugann seiðir, íhugunarefnið endalaust á báða bóga. Bók þessi fjallar um svartasta kaflann í verzlunarsögu landsins, einokun Dana 1602—1787. Fyrst er þó inngangur (bls. 3—64), þar sem rakin er saga verzlunarinnar alt frá því er Norvegskon- ungur tekur að leggja hömlur á verzlunarfrelsi Islendinga, til þess er Kristján IV. smellir til fulls á þá handjárnunum með tilskipun- inni alræmdu 20. apríl 1602. Er farið fljótt yfir sögu framan af, meðan Englendingar og Þjótverjar keppa um verzlunina, en frá- sögniu gerist glögg og nákvæm, þegar þar kemur, að Danakonung- ur tekur að beita vaidl sínu til að ná henni úr höndum Þjóðverja handa Dönum. Stendur i því stímabraki meira en hálfa öid, því að bæði Þjóðverjar og íslendingar spyrna á móti, en Dani sjálfa Bkorti þá enn flest, er til þess þurfti að taka við af Þjóðverjum. Smám saman vex þeim þó fiskur um hrygg með stöðugu atfylgi konunganna. Þar er Kristján III. stórtækastur, er hann leigir borgarstjórninni í Kaupmannahöfn ísland alt til fullra umráða með sköttum og skyldum til 10 ára (1547). Mundi það fyrirmyndar stjórnarfyrirkomulag að iíkindum hafa fengið að standa lengur, ef Þjóðverjar og Islendingar hefðu ekki verið svo óþægir valdsmönn- unum, sem þessir nýju yfirboðarar skipuðu hingað, að þeir komu engu tauti við þá og hlutu »skell fyrir skillinga«. Varð svo kon- ungur að taka ráðin aftur í sínar hendur. Friðriki It. reynist hitt betur, að leigja hafnir landsins til verzlunar, hverja í sínu lagi ein- stökum mönnum, þýzkum, dönskum og jafnvel íslenzkum, fá ár í senn, og venur menn þaunig við einokunina. Og í lok 16. aldar 'telur Kristján IV. Dani einfæra um að reka alla verzlunina, enda þá fyrlr löngu úti öll varnarvon af hálfu íslendinga og þýzkra kaupmanna. Þá er lokið innganginum, og tekur þá við meginmál bókarinn- ar. Höfundurinn skiftir því í tvo aðalþáttu. Fyrri þátturinn, 'Verzlunarútgerðin (bls. 67—258), rekur alla sögu einokunarinnar >frá 1602 til 1787, og er skift í kafla eftir leigunautunum, erverzl
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.