Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Blaðsíða 31
Fundurinn í Sao Paulo
Forseti samtakanna setti fundinn og drap á nokkur atriði, sem
samtökin hefðu látið til sín taka. Kvað hann ályktanir frá fyrri fund-
um hafa verið sendar ríkisstjórnum og hefðu samtökin haft forustu
um eða bein eða óbein áhrif á að þróa og bæta alþjóðalög eða löggjöf,
sem snerta samskipti þjóða.
Ráðstefnan stóð sem fyrr segir í 6 daga og fóru umræður jafnan
fram í fjórum fundarsölum í hinu mikla gistihúsi Sao Paulo Hilton
frá kl. 10-12 og kl. 16-19.
Dagskráin og umræðurnar snerust um alþjóðalög og lög, er varða
samskipti þjóða, mannréttindi og möguleika til aukins skilnings og
samstarfs þjóða á milli. Hitnaði mönnum stundum mjög í hamsi, eink-
um lögmönnum frá fátækari þjóðum heims, og voru sumir menn þung-
orðir í garð hinna auðugu stórvelda.
Málefni Alþjóðadómstólsins ekki á dagskrá
Illu heilli barst mér ekki dagskrá fundarins í hendur fyrr en rétt
áður en ég hélt af stað áleiðis til fundarstaðarins, en leið mín lá um
New York. Þar átti ég að fá afhentar tilvísanir um allt ferðalagið, gist-
ingu o.fl. Það urðu mér nokkur vonbrigði, að á dágskrá ráðstefnunnar
skyldi ekki að þessu sinni vera varið neinum tíma til þess að fjalla
um Alþjóðadómstólinn í Haag, störf hans, skipulag og framtíð, en
einmitt störf þeirrar merku alþjóðastofnunar og löggjöf um hana hafa
verið fastur liður á dagskrám funda þessara samtaka. Enn situr fast
í huga mér, hversu miður fór á sínum tíma, að við íslendingar einir
Norðurlandaþjóða skyldum ekki treystast til þess að reka mál okkar
út af útfærslu landhelginnar fyrir Alþjóðadómstólnum og vinna það,
eins og efni og rök stóðu til og bent var á í erindum í útvarpinu á
sínum tíma.
Enginn mun neita því, að Alþjóðadómstóllinn sé ein helsta von
mannkyns um varðveislu friðar í heiminum, ef dómstóllinn fengi að
starfa í þeim anda og á þann hátt, sem til var stofnað í upphafi og
vera ber.
Aukið verksvið Alþjóðadómstólsins
Á síðasta þingi alþjóðasamtaka þessara til varðveislu friðar í heim-
inum, sem haldinn var í Madrid í ágúst 1979, hafði ég gert að um-
talsefni undir dagskrái'lið, sem helgaður var Alþjóðadómstólnum, nauð-
syn þess að hann yrði í framtíðinni skipaður lögfræðingum af báðum
kynjum jafnt, þannig að í honum sætu alls 18 dómendur í stað 15,
73