Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Blaðsíða 59
ALÞJÓÐASAMTÖK
UM FISKVEIÐIRÉTT STOFNUÐ
Alþjóðleg ráðstefna um fiskveiðirétt var haldin í Mexico City dagana 20.-25.
júlí 1981. Var til ráðstefnunnar boðað af rikisstjórn Mexíkó, en jafnframt átti
háskóli Mexíkóborgar aðild að ráðstefnunni. I lok hennar voru stofnuð al-
þjóðasamtök um fiskveiðirétt.
Um 100 lögfræðingar og sérfræðingar á sviði fiskimála sóttu ráðstefnuna,
en fulltrúar voru þar frá 23 löndum. Ráðstefnan var sett af rektor háskóla
Mexíkóborgar Serrano Rivero, en jafnframt flutti Gunnar G. Schram prófessor
þar erindi um helztu viðfangsefni á sviði hafréttar á næstu árum. Alls voru flutt
um 40 erindi um fiskveiðirétt á ráðstefnunni og var þar sérstaklega fjallað um
löggjöf hinna einstöku ríkja er þar áttu fulltrúa. Ræddi dr. Gunnar um íslenzka
fiskveiðilöggjöf og þróun hennar síðustu árin. Ráðstefnunni var slitið á há-
tíðarsamkomu í þjóðminjasafni Mexíkó þar sem forseti landsins, José López
Portillo flutti ræðu um hlutverk hinna nýju alþjóðasamtaka um fiskveiðirétt
og mikilvægi fiskveiða í hinum nýja hafrétti. Munu alþjóðasamtökin m.a.
gangast fyrir ráðstefnuhaldi um þróun fiskveiðiréttar, útgáfu tímarits og fræði-
rita um efnið og annarri upplýsingamiðlun.
LÖGFRÆÐINGAÞING í KAIRÓ
11. þing samtakanna World Peace Through Law Center verður haldið í
Kairó 25.-30. september 1983. Áformað var að halda þingið í Kína, en funda-
höldum þar hefur verið frestað um sinn. Frá samtökunum, sem að þinginu
standa, hefur verið sagt í TL, m.a. í þessu hefti. Formaður islandsdeildar
samtakanna er Páll S. Pálsson hrl. og veitir hann upplýsingar um starfsemi
þeirra, þ.á m. þinghaldið í Egyptalandi.
101