Hugur - 01.01.2000, Blaðsíða 49
HUGUR
Lífsþjáningin, leiðindin og listin
47
Bæði hafa hrunið fyrir tilstilli skynseminnar og bæði má reisa upp að
hluta til með því að vekja ástríðurnar til lífsins. Hér ber þó að athuga
að siðferðið veltur á hamingjunni. í stað þeirrar áráttu átjándu aldar-
innar að leita skýringar á því hvers vegna góður og almáttugur guð
léti afskiptalausa alla þá eymd er viðgengst í heiminum, nokkuð sem
kallað hefur verið „guðsvörn,“ setur Leopardi fram nokkuð sem kalla
mætti „mannsvörn“ og felst t.d. í eftirfarandi orðum hans úr „Sögu
mannkyns," sem ég geri jafnframt að lokaorðum þessa erindis:
[Elymdirnar eru þess eðlis að þær forherða og spilla jafnvel albestu
sálum og fá þær til að glata ást á heiðarleika og réttvísi. Þess vegna
blekkja þeir sig sem telja óhamingjuna fæðast af ranglæti og afbrot-
um sem framin eru gegn guðunum; illska manna verður þvert á móti
aðeins rakin til þeirra hörmunga er þeir hafa sjáltir þurft að þola.50
Tilvísanaskrá
Amerio, Romano: „L'„ultrafilosofia“ di Giacomo Leopardi“ Filosofia
4 (júlí 1953:3), bls. 451-83.
Aristóteles: Politica. Þýð. Benjamin Jowett. The Basic Works of
Aristotle, ritstj. Richard McKeon (New York: Random House,
1941). Berglind Bragadóttir: Tesi di un'Islandese su Giacomo
Leopardi e il „Pessimismo malinconico". Oprentuð B.A.-ritgerð í
ítölsku (Reykjavík: Háskóli íslands, 1997).
Flora, Francesco: „La rivolta romantica e la poesia come veritá“.
Leopardi: Discorso di un Italiano intomo alla poesia romantica
con una antologia di testimonianze sul romanticismo, ritstj. Ettore
Mazzali (Bologna: Cappelli, 1970), bls. vii-lxii.
Geir Sigurðsson: The World as Myth and Mechanism—Giacomo
Leopardi vs. Kant and the Enlightenment. Óprentuð M.A.-ritgerð í
heimspeki (Cork: UCC, 1997).
Kant, Immanuel: Antliropologie in pragmatischer Hinsicht. Kants
Werke—Akademie Textausgabe, VII (Berlin: Walter de Gruyter &
Co„ 1968).
50
Leopardi: „Saga mannkyns," bls. 416.