Hugur - 01.01.2000, Blaðsíða 68
HUGUR IQ.-l 1. ÁR, 1998-1999
s. 66-87
Ólafur Páll Jónsson
Efahyggja um merkingu*
í bókinni Wittgenstein um reglur og einkamál* 1 setur Saul Kripke fram
þverstæðu þess efnis að ógerningur sé að fylgja reglum eða meina
yfirleitt eitt eða neitt. En Kripke setur líka fram lausn á þessari þver-
stæðu, efahyggjulausn sem hann kallar svo. Slík lausn felst ekki í því
að benda á meinbugi á röksemdafærslunni sem leiddi til þverstæðunn-
ar heldur í því að endurskoða í hverju það felist að fylgja reglu.
Kripke telur að þetta sé megin viðfangsefni Wittgensteins í Rann-
sóknum í heimspeki og uppistaðan í einkamálsrökum hans. í þessari
grein langar mig að varpa svolitlu ljósi á þverstæðu Kripkes og lausn
hans á henni, en ég mun láta liggja milli hluta hvort þverstæðuna eða
lausnina sé að finna í ritum Wittgensteins.
Kripke ítrekar að hann sé fyrst og fremst að skýra kenningar
Wittgensteins og því mun ég forðast að kalla þær hugmyndir sem
fram koma hugmyndir Kripkes sjálfs um þessi efni. En þar sem einn-
ig er mjög umdeilt hvort þær hugmyndir sem hann eignar Wittgen-
stein sé yfirleitt að finna í ritum Wittgensteins sjálfs er varasamt að
segja að það séu hugmyndir Wittgensteins sem hér eru til umfjöll-
* Ritgerð þessi er unnin upp úr raeistaraprófsritgerð minni „Scepticism about
Meaning" sem ég skrifaði undir handleiðslu Ali A. Kazmi í Calgary í Kanada
vorið og sumarið 1997. Fyrri útgáfa af ritgerðinni var lesin í Félagi áhugamanna
um heimspeki í janúar 1998. Meðal þeirra sem lesið hafa yfir handrit að ritgerð-
inni og fært til betri vegar eru Áslaug Ólafsdóttir, Ásta Kristjana Sveinsdóttir og
Einar Logi Vignisson. Ég þakka þeim kærlega fyrir.
1 Saul A. Kripke, Witlgenstein on Rules and Private Language: An Elementary
Exposition, Oxford 1982. Bók Kripkes hefur valdið miklu ritfári. Flestir eru
sammála um að Kripke hafi skrifað merkilega bók en menn deilast mjög í tvær
fylkingar eftir því hvort þeir telja að þær hugmyndir sem Kripke eignar
Wittgenstein sé yfirleitt að finna í ritum hans. I bókinni Rules and Private
Language finna G. P. Baker og P. M. S. Hacker túlkun Kripkes allt til foráttu,
aðrir gagnrýnendur taka ekki eins djúpt í árinni þótt gagnrýnin sé oft hörð. Má
hér nefna Alfred Ayer, John McDowell og Brian McGuinness. Nýlega
greinargerð fyrir sennileika túlkunar Kripkes má m.a. finna í stuttri grein eftir
Alex Byrne, “On Misinterpreting Kripke’s Wittgenstein,” í Philosophy and
Phenomenological Research, vol. 56, no. 2, 1986.