Morgunn


Morgunn - 01.07.1974, Qupperneq 13

Morgunn - 01.07.1974, Qupperneq 13
DULARFULLi FYIURBRIGÐI í FORNRITUM VORUM 11 það, að forfeður vorir hafi einhverja reynslu haft í þessu efni, og að frásögurnar séu ekki með öllu gripnar úr lausu lofti. En svo að ég hverfi aftur að liamfarafyrirbrigðinu, þá er nafnið sennilega dregið af því, að fornmenn hugsuðu sér, að á þessum ferðum væru fjölkunnugu mennirnir i ýmsum höm- um. Sendimaður Haralds konungs Gormssonar er í hvalslíki, eins og ég hef þegar bent ykkur á. Um það verður ekkert sagt, hvort mennirnir hafi hugsað sér það sjálfir, og þeim þar af leið- andi fundizt þetta. En ekki er það neitt óliklegt, því að þeir hafa tæplega haft neina hugmynd um andlegan líkama eða eterlíkama, eða hvað við eigum nú að kalla það gervi, sem and- inn virðist taka á sig, þegar hann losnar að litlu eða miklu leyti við líkamann. En jafnframt er að geta þess, að þessara ham- skipta er alls ekki ævinlega getið í sambandi við þetta fyrir- brigði. T.d. er þeirra ekki getið um sendimenn Ingimundar gamla, Finnana, sem hann fékk til þess að fara fyrir sig frá Noregi til Islands. Þeir voru byrgðir einir saman í þrjár nætur i húsi, og meðan þeir voru þar, mátti enginn nefna þá. Líklegl virðist, að þeir hafi verið i trance þann tíma, og að þeir hafi verið hræddir um, að þeir fengju ekki við ráðið og hyrfu aftur, ef þeir væru nefndir. Þessar hamfarir virðast aðallega hafa verið farnar í því skyni að skyggnast um á fjarlægum stöðum og fá þar einhverja vitneskju, sem mönnum lék hugur á. Naumast þarf að taka það fram, að þetta hlýtur að vera sama fyrirbrigðið, sem vér nefnum nú oftast „að fara úr líkamanum", eða með einu orði sálfarir. Enginn vafi getur leikið á því, að það fyrirbrigði ger- ist. Sterkasta sönnunin, sem vér höfum fengið fyrir því hér i Reykjavík, er það, þegar maður, sem liggur sofandi úti í Dan- mörku, sannar sig á tilraunafundi hér, eins og síra Har. Níels- son gerði grein fyrir í bók sinni Kirkjan og ódauÓleikasann- anirnar. En tilkomumesta sönnunin, sem ég hef lesið um, er sú, þegar frú Vlasek gerir vart við sig á raddafundi og líkamar sig í Los Angeles í Kaliforníu, meðan líkami hennar liggur sofandi langar leiðir þaðan, eins og skýrt hefur verið frá í Morgni. — Enginn vafi virðist geta leikið á því, að forfeður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.