Morgunn - 01.12.1974, Page 18
96
MORGUNN
og Ólafur Jensson; auk þess sat í hringnum að ósk miðilsins
Ævar Kvaran. Þar að auki sátu í hringnum tvær konur og
þrír karlar, og skilst mér að sjónvarpsstjómendur hafi ráðið
þvi, hverjir það vom. Þá var enn komið fyrir fjórum öðrum
manneskjum í þetta litla herbergi, þ. á. meðal kvikmyndatöku-
manni sjónvarpsins með vél sína og starfsbróður hans með
hljóðritunartæki sín og hljóðnema. Enn var þarna fleira
fólk, svo ekki var hægt að leggja aftur hurðina á herberginu,
enda stóð sumt fólkið frammi á gangi.
Það þarf tæpast æfða fundarmenn til þess
að gera sér þess fulla grein, hve hörmuleg
skilyrði þetta eru fyrir hið viðkvæma miðils-
í glampandi
ljósum.
samhand. Hér urðu vitanlega að vera skjanna—ljós sökum
kvikmyndatökumanna, og Hafsteinn þess vegna með dökku
gleraugun sín. Vissulega voru þetta einnig mjög slæm skilyrði
fyrir kvikmyndarann, þvi hann gat sig hvergi hreyft, með
tæki sín og varð því að taka allt frá sama sjónarhomi. Þetta
liafði i för með sér þann mikla ókost, að á kvikmyndinni var
ekki hægt að sýna viðbrögð allra þeirra, sem hinir framliðnu
sneru sér til. En sumum þeirra var mjög brugðið, þegar hinir
látnu tóku að sanna sig.
Þótt ótrúlegt megi virðast, tókst þessi fundur með ága'tum
og stóð í heila klukkustund. Hafsteinn lét sér hvergi bregða,
þrátt fyrir þessar aðstæður; og sambandsmenn hans fyrir
handan lögðu sig einnig fram, svo þessi prófraun mætti
takast.
Föstudaginn þann 15. nóv. var svo sjónvarp-
að frá þessum fundi. Það var í fréttaþætti
þeim, sem ber nafnið „1 kastljósi“. Eftir nokk-
Hafsteinn
ur inngangsorð Áslaugar Ragnars komu myndir frá fundin-
um. Stóðu þær mjög stutt yfir, eins og fréttastofan vildi ekki
beint storka yfirlýsingu útvarpsráðs meirihlutans. Satt að segja
var lítið sem ekkert á þessari mynd að græða fyrir ókunnuga,
til þess var hún alltof samhengislaus og stutt. Slíka mynd þarf
að sjálfsögðu að gera í sjónvarpssal, þar sem viðunandi skil-
yrði eru fyrir hendi, og efninu öllu þarf að gera miklu ítar-